Morgunblaðið - 17.10.2013, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2013
Nokkrir þingmenn Sjálfstæð-isflokksins hafa endurflutt
þingsályktunartillögu Sigurðar
Kára Kristjánssonar frá síðasta
kjörtímabili um rannsókn á emb-
ættisfærslum og ákvörðunum ís-
lenskra stjórnvalda og sam-
skiptum þeirra við bresk og
hollensk stjórnvöld vegna Ice-
save. Gerð er tillaga um sérstaka
rannsóknarnefnd með víðtækar
rannsóknarheimildir.
Starf íslenskra stjórnvalda ásíðasta kjörtímabili er sam-
felld röð mistaka og þar fer Ice-
save-málið vafalítið fremst í
flokki þó að önnur séu líka risa-
stór. Ef þjóðin hefði ekki gripið
inn í væri býsna nöturlegt um að
litast á landinu og sjálfsagt að
kannað verði hvernig ráðherrar
stóðu að málum.
Margt annað kallar á ýtarlegaskoðun, svo sem afhending
stjórnvalda á nýju bönkunum í
hendur kröfuhafa. Ásgeir Jóns-
son hagfræðingur hefur bent á að
hefði hagnaður bankanna runnið
til Íslands en ekki kröfuhafanna
hefði ríkið nánast getað unnið
upp tap sitt af falli þeirra.
Gríðarhátt skuldabréf í er-lendri mynt sem þáverandi
stjórnvöld samþykktu á milli
gamla og nýja Landsbankans er
þriðja dæmið um afdrifarík mis-
tök sem landsmenn eru enn að
súpa seyðið af.
Þeir stjórnmálamenn sem ákaf-astir voru að rannsaka mis-
tök og kalla saman landsdóm á
síðasta kjörtímabili geta varla
sett sig upp á móti því að þessi
mál verði rannsökuð í þaula.
Mörgum spurn-
ingum ósvarað
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 16.10., kl. 18.00
Reykjavík 8 léttskýjað
Bolungarvík 4 skýjað
Akureyri 4 alskýjað
Nuuk 0 þoka
Þórshöfn 7 alskýjað
Ósló 5 alskýjað
Kaupmannahöfn 8 skýjað
Stokkhólmur 7 skýjað
Helsinki 1 heiðskírt
Lúxemborg 8 skýjað
Brussel 11 heiðskírt
Dublin 10 skúrir
Glasgow 11 skúrir
London 16 léttskýjað
París 15 skýjað
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 11 skýjað
Berlín 10 skýjað
Vín 12 léttskýjað
Moskva 8 skúrir
Algarve 23 heiðskírt
Madríd 23 heiðskírt
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 27 léttskýjað
Róm 22 léttskýjað
Aþena 22 skýjað
Winnipeg 2 skýjað
Montreal 17 skúrir
New York 17 alskýjað
Chicago 11 alskýjað
Orlando 26 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
17. október Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:26 18:02
ÍSAFJÖRÐUR 8:37 17:59
SIGLUFJÖRÐUR 8:21 17:42
DJÚPIVOGUR 7:57 17:29
Sigurður Guðmundsson, fyrrverandi
flugafgreiðslumaður, lést í ferðalagi á
Spáni síðastliðinn sunnudag, 87 ára
að aldri. Sigurður var einn af þeim
sem björguðust þegar Goðafossi var
sökkt af þýskum kafbáti í seinni
heimstyrjöldinni.
Sigurður var fæddur á Akureyri 7.
apríl 1926, sonur Guðmundar Ólafs-
sonar og Ástu Jónínu Daníelsdóttur.
Hann ólst upp á Akureyri, í Skaga-
firði og víðar og fór til sjós 14 ára
gamall. Var á kaupskipum, meðal
annars Goðafossi og Lagarfossi.
Hann var háseti á Goðafossi sem
þýskur kafbátur sökkti við Garð-
skaga 10. nóvember 1944 en var í hópi
þeirra sem björguðust. Meðal annars
hefur verið skrifað um atburðinn í
Útkallsbókinni Árás á Goðafoss eftir
Óttar Sveinsson en hún kom út fyrir
tíu árum. Þegar þýsk útgáfa bók-
arinnar var kynnt á Bókamessunni í
Frankfurt 2011 hitti Sigurður Horst
Koske sem var loftskeytamaður á
þýska kafbátnum. Það var tilfinn-
ingarík stund. Koske lést fyrir ári.
Sigurður lærði vélvirkjun á Seyð-
isfirði þar sem hann bjó með fyrri
eiginkonu sinni, Hólmfríði Gísladótt-
ur. Hann hóf störf hjá Loftleiðum í
byrjun sjötta áratugarins og starfaði
hjá félaginu og síðar Flugleiðum,
meðal annars við flugafgreiðslu á
Keflavíkurflugvelli, í tæp fjörutíu ár.
Eftirlifandi eiginkona Sigurðar er
Hrefna Björnsdóttir sem vann síma-
og verslunarstörf. Þau bjuggu í
Grindavík í 20 ár og síðan í Reykja-
vík.
Sigurður lætur eftir sig tvö upp-
komin börn, Guðmund og Hjördísi.
Andlát
Sigurður Guðmundsson
Morgunblaðið/Kristinn
Fundur Sigurður Guðmundsson, sem er til vinstri, og Horst Koske hittust á
Bókamessunni í Frankfurt 2011 vegna útgáfu bókar um Goðafoss.
Meirapróf
Næsta námskeið hefst 23. október 2013
Upplýsingar og innritun í síma 567 0300, 894 2737
Ný ríkisstjórn tók
við ráðuneytum
sínum í Noregi í
gær. Á meðal
þeirra sem hófu
störf var Reynir
Jóhannesson.
Hann er pólitísk-
ur ráðgjafi sam-
gönguráðherra
Noregs, Ketil Sol-
vik Olsen.
Reynir er 28 ára stjórnmálafræð-
ingur frá Háskóla Íslands. Hann er
fæddur og uppalinn á Siglufirði þar
sem hann bjó til átta ára aldurs. Þá
flutti hann til Noregs og varð bæj-
arstjórnarfulltrúi fyrir Framfara-
flokkinn (FrP) þar í landi 18 ára að
aldri. Hann flutti síðan til Íslands til
þess að læra stjórnmálafræði við HÍ
og hér kynntist hann einnig eigin-
konu sinni, Ástu Hrund Guðmunds-
dóttur, áður en hann flutti aftur til
Noregs.
Var byrjaður í einkageiranum
„Þegar ég flutti aftur til Noregs
hóf ég störf á samskiptasviði þing-
flokks Framfaraflokksins. Ég starf-
aði fyrir hann fram að kosningunum
nú í haust og var í raun hættur og bú-
inn að hefja störf í einkageiranum.
En eftir aðeins 14 daga þar var svo
hringt í mig, og mér boðið þetta starf,
þannig að það varð mjög stutt stopp,“
sagði Reynir í samtali við Mbl.is.
„Þetta gerðist allt á svo fáum klukku-
stundum, þannig að ég er enn að
koma mér fyrir.“
Alls hefur ráðherrann fjóra póli-
tíska ráðgjafa, þrjá frá FrP og einn
frá Hægriflokknum (Høyre).
Aðspurður hver stærstu verkefni
samgönguráðuneytisins séu sagði
hann þau vera vega- og lestakerfið.
„Við í FrP höfum verið talsmenn
þess að breyta vegakerfinu og finna
nýjar leiðir til að fjármagna það.“
bmo@mbl.is
Valdi sér
íslenskan
ráðgjafa
Vinnur fyrir sam-
gönguráðherra Noregs
Reynir
Jóhannesson