Morgunblaðið - 17.10.2013, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.10.2013, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2013 Fyrstu minningarnar sem koma upp í hugann um hana ömmu eru frá Brúarholti. Þegar við vorum krakkar eyddum við mörgum stundum hjá ömmu og Jóhanna Dagmar Pálsdóttir ✝ Jóhanna Dag-mar Pálsdóttir fæddist á Sveðju- stöðum í Miðfirði í V-Húnavatnssýslu 27. apríl 1930. Hún lést á Hjúkr- unarheimilinu Garðvangi 4. októ- ber 2013. Útför Jóhönnu fór fram frá Kefla- víkurkirkju 11. október 2013. afa og ýmislegt var brallað. Amma hafði mikla þolinmæði fyr- ir því að við værum að leika okkur með slæðurnar hennar og hringana. Heilu leik- ritin voru sett upp þar sem allir voru klæddir upp í slæður og stundum fengum við meira að segja að nota varalit. Þegar það voru réttir voru haldin rétt- arböll hjá ömmu og afa þar sem við krakkarnir sýndum leikrit og dans ásamt því að fá dýrindis kræsingar. Ferðir í berjamó, tína blóðberg og búa til te, kenna okk- ur að prjóna og sauma í, allt eru þetta hlutir sem amma var dugleg að gera með okkur. Við munum ávallt varðveita stundirnar sem við áttum saman í Brúarholti þeg- ar dagurinn byrjaði á að hlusta á morgunleikfimi á Rás 1 og við tóku hin ýmsu verkefni dagsins og þó svo að það hafi stundum verið erfitt að finna sér eitthvað til að hafa fyrir stafni var hún amma alltaf með góða hugmynd að leik til þess að láta tímann líða. Eftir að amma og afi fluttu til Keflavík- ur var enn styttra að fara til þeirra og það var alltaf gott að koma þangað enda tekið á móti manni með kossi og faðmlagi og séð til þess að enginn færi svangur heim. Eftir því sem árin liðu fækkaði þó ferðunum til ömmu og afa því verkefnin í lífinu urðu fleiri en hver heimsókn var kærkomin og alltaf notalegt að eiga góða stund með ömmu og ræða við hana um gamla tíma. Einstaklega þakklát erum við ömmu okkar fyrir að hafa kennt okkur að fara með bænir og signa okkur því það hefur veitt okkur mikið í gegnum tíðina, ekki síst á stundu sem þessari. Undanfarna mánuði höfðu veikindin tekið mikið á ömmu, hún var ekki lengur hún sjálf en við vitum að amma okkar er núna komin á góðan stað eflaust með prjóna í hönd, nýbúin að baka kleinur og tilbúin að takast á við næsta verkefni sem bíður hennar. Takk fyrir allt, elsku amma, þín verður sárt saknað. Endar nú dagur, en nótt er nær, náð þinni lof ég segi, að þú hefur mér, Herra kær, hjálp veitt á þessum degi. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Þín barnabörn, Eygló og Stefán Þór. Í dag 17. október hefði okkar elskulegi Hjölli orðið 50 ára gamall, en örlögin höguðu því þannig að hann kvaddi þenn- an heim eftir erfið veikindi þann 6. nóvember 2009 aðeins 46 ára að aldri. Missir okkar fjölskyld- unnar er meiri en orð fá lýst og við söknum hans óendanlega. Þótt hann sé farinn verður hann og er alltaf stór hluti af lífi okkar og mikið hefðum við viljað geta haldið þennan gleðidag hátíðleg- an með hann okkur við hlið. Minningin um þig lifir áfram í hinum yndislega syni þínum Hjörleifur Gunnarsson ✝ HjörleifurGunnarsson fæddist 17. október 1963. Hann lést á líknardeild Land- spítalans í Kópa- vogi 6. nóvember 2009. Hjörleifur var jarðsunginn 12. nóvember 2009. Viktori Frey sem á svo margan hátt minnir okkur á þig. Þú hefðir verið stoltur af þessum flotta strák, eins og þú ávallt varst með- an þú lifðir. Við vit- um að þú vakir yfir okkur og verður með okkur í anda í dag þegar við höld- um þennan stóra dag hátíðlegan. Við minnumst þín fyrst og fremst sem elsku- legrar manneskju sem hafði svo margt til brunns að bera og þú gafst svo mikið af þér. Við minn- umst þín líka sem yndislegs föð- ur, sonar, bróður og frænda. Kærleikurinn breiðir yfir allt, trúir öllu, vonar allt, umber allt. Kærleikurinn fell- ur aldrei úr gildi. (úr 1. Kórintubréfi) Til hamingju með daginn, elsku Hjölli. Mamma, pabbi og systkini. Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð- viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Bílar MMC Pajero did. Árgerð 2003, ekinn 155 þús. km, dísel, sjálfskiptur. Verð 2.250.000. Rnr. 131646. Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is - Hlíðasmára 2. VW Golf variant comfortline 8v. Árgerð 2003, ekinn 189 þús. km, bensín, 5 gírar. Verð 550.000. Rnr. 106104. Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is - Hlíðasmára 2. Toyota Yaris t-sport. Árgerð 2007, ekinn 79 þús. km, 5 gírar. Verð 1.690.000. Rnr. 108226. Bíllinn er á staðnum!!! Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is - Hlíðasmára 2. Suzuki Sx4 glx. Árgerð 2007, ekinn 96 þús. km, bensín, 5 gírar. Verð 1.690.000. Rnr. 108227. Bíllinn er á staðnum!!! Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is - Hlíðasmára 2. Hyundai Santa fe 4x4. Árgerð 2005, ekinn 163 þús. km, dísel, sjálfskiptur. Verð 1.450.000. Rnr. 107983. Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is - Hlíðasmára 2. Ford Explorer xlt 4x4. Árgerð 2007, ekinn 127 þús. km, bensín, sjálfskipt- ur. Verð 1.990.000. Rnr.106599. Bíllinn er á staðnum!!! Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is - Hlíðasmára 2. AudiI A4 sedan. Árgerð 2005, ekinn 69 þús. km, sjálfskiptur. Verð 2.190.000. Rnr. 108371. Bíllinn er á staðnum!!! Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is - Hlíðasmára 2. Aðeins 250 þús. útborgun. VW Golf variant comfortline 8v. Árgerð 2006, ekinn 89 þús. km, bensín, 5 gírar. Verð 990.000. Rnr. 105383. Bíllinn er á staðnum!!! Nánari uppl. í síma 588 5300 eða www.netbilar.is - Hlíðasmára 2. SKRÁÐU BÍLINN FRÍTT OG FÁÐU FRÍA AUGLÝSINGU! Söluhæsta netbílasala landsins. 25% afsláttur af sölugjöldum. Frí auglýsing í Morgunblaðið. www.netbilar.is, Hlíðasmára 2, sími 588 5300. Nýr Jeep Grand Cherokee Over- land CRD Diesel Með öllu sem hugsast getur og nokkrum hlutum sem þú hefur ekki ímyndunarafl í. Sambærilegir jeppar kosta 16 til 17 milljónir. Þessi kostar 12.900 þús. Einn bíll eftir, næstu bílar kosta um 2 milljónir í viðbót. www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið kl. 12-18 virka daga. Hjólbarðar Matador vörubíladekk - Tilboð 385/65 R 22.5 kr. 78.088 + vsk. 295/80 R 22.5 kr. 76.016 + vsk. 275/70 R 22.5 kr. 66.215 + vsk. 11 R 22.5 kr. 36.900 + vsk. 12 R 22.5 kr. 39.500 + vsk. 265/70 R 19.5 kr. 44.500 + vsk. 285/70 R 19.5 kr. 49.800 + vsk. 40 feta notaðir gámar til sölu. Kaldasel ehf. dekkjaverkstæði Dalvegi 16 b, 201 Kópavogi, s. 544 4333. Kebek neglanleg vetrardekk 185/55 R 15 15.900 kr. 195/65 R 15 15.900 kr. 205/55 R 16 17.900 kr. 205/60 R 16 21.500 kr. 215/65 R 16 20.900 kr. 225/65 R 17 28.900 kr. Kaldasel ehf., Dalvegi 16 b, 201 Kópavogi, s. 544 4333. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD - árg. 2012. Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 6960042, bilaskoli.is Smáauglýsingar Það er erfiðara en orð fá lýst að átta sig á því að okkar yndislegi frændi, Róbert Magnús Fjeldsted, hafi kvatt þetta líf tæplega 17 ára gam- all. Við brosum þó í gegnum tárin að þeim fjölmörgu dýrmætu minningum sem við eigum um hann. Minningum um ljúfan, sí- brosandi dreng sem horfði á mann með bláu augunum sínum fullum af trúnaðartrausti. Við frænkurnar vorum að sjálf- sögðu nýttar til barnfóstrustarfa á þeim tíma sem allar voru barn- lausar og gekk á ýmsu. Í eitt skipt- ið passaði Badda systkinin fjögur þegar Róbert var 3 mánaða og var að skipta um bleyju. Hún skildi Róbert Magnús Fjeldsted ✝ Róbert MagnúsFjeldsted fæddist 27. nóv- ember 1996. Hann lést 27. september 2013. Útför Róberts fór fram frá Grund- arfjarðarkirkju 12. október 2013. pilt eftir einan í augnablik á rúminu á meðan hinum systkinunum var sinnt og hann rúllaði fram úr með háum dynk. Skelfingu lost- in barnapían hringdi í foreldrana sem voru reynsluboltar og sögðu henni að anda rólega. Í annað skipti passaði Jór- unn þegar hann var 4 ára og þá hljóp hann á vegg og fékk gat á hausinn. Frænkan hentist skelf- ingu lostin á slysó með barnið sem var hið rólegasta, horfði bara í augun á frænku á meðan hann var saumaður. Pabbinn var alveg jafn rólegur og Róbert. Lilja var bíó- frænkan og fór oft í bíó með syst- kinunum og voru áhöld um hvort hún eða börnin skemmtu sér bet- ur. Róbert var yfirleitt á ferð og flugi út um allt, enda oft kallaður Gormur. Á 4 ára afmælinu hans var hann t.d. í svo góðum gír að hann var kominn upp á eldhús- borð þegar blásið var á kertin. Um tíma var mikill boxáhugi hjá Lalla pabba hans og var ósjaldan safn- ast saman hjá þeim Grétu til að horfa á box. Mesta gamanið var að fá Róbert, 3 ára, til að sýna hvern- ig boxarar gerðu en hann kýldi út í loftið af mikilli innlifun. Einu sinni kom Róbert í heimsókn til Jór- unnar frænku sinnar þegar hann var 8 ára. Hann fékk Batman-bún- ing lánaðan og ofurkraftarnir létu ekki standa á sér en kappinn fór í ótrúlegustu stökk á gólfinu. Á þessum tíma var Róbert með sítt hár og 4 ára frændi hans var því sannfærður um að hann væri stelpa. Einnig er minnisstæð heimsókn til Böddu þar sem öll systkinin voru í Súpermanbúning- um hönnuðum af Grétu. Róbert var mjög umhyggju- samur, ekki síst gagnvart frænd- systkinum sínum. Hann velti því fyrir sér hvort þau væru of mikið í tölvu, hvort þau ættu heppilega vini á Facebook, spjallaði við þau og spilaði tölvuleiki. Hann ræddi svo skemmtilega við þau um að vera alltaf kurteis við foreldra sína og sagði svo skemmtilega „af því að þau eru awesome“. Einnig eru Böddu ómetanlegar „it’s a men’s world“-stundirnar þegar bræð- urnir Hjörtur Steinn, Hafsteinn og Róbert voru saman heima hjá henni ásamt sonunum að spila tölvuleiki. Róbert vann í Krónunni í Árbæ í sumar og þar hitti Lilja hann oft. Hann átti alltaf knús handa henni og börnunum. Jór- unn og hennar börn heimsóttu Grundfirðingana í sumar og er ferð á skotæfingasvæði, þar sem Róbert sýndi listir sínar með byssur og skaut meðal annars stígvél sem kastað var á loft, sér- lega minnisstæð. Við systurnar og fjölskyldur okkar vottum Lárusi, Grétu, Hirti, Hafsteini, Kristbjörgu, öf- um, ömmum og öðrum aðstand- endum samúð okkar í þessari miklu sorg. Jórunn K. Fjeldsted. Það er erfitt að missa einhvern náinn, en það er einmitt það sem gerðist 27. september sl. þegar Róbert frændi minn dó. Mig lang- ar að minnast hans. Róbert var góður við mig og mér þótti vænt um hann. Við fórum á skotsvæði í sumar og ég fékk að skjóta úr byssu og bróðir minn líka. Róbert skaut stígvél og dósir. Það verður erfitt að lifa án hans og ég mun sakna hans. Ég votta Lalla, Grétu, Hirti, Hafsteini, Kristbjörgu og öllum öðrum sem elskuðu hann samúð mína. Soffía Ósk. Við kynntumst árið 1996 þar sem þú vægðarlaust steigst fram og studdir okkur Dagbjörtu í vonlausri baráttu við valdið og mannfjöldann. Þú horfðir ákveðið fram og lést engan bilbug á þér finna. Ég gat alltaf treyst þér og þú vékst aldrei undan, hvorki fyr- ir hótunum né öðru valdi. Þú varst vægðarlaus í þínum skoð- unum og komst mér oft niður á jörðina og í raunveruleika lífsins. Nálægð þín var djúp og kærleiks- rík og með óendanlegum baráttu- vilja stóðst þú keik með sannleik- anum. Án þín hefði það verið erfitt að ná fram réttlætinu og þeirri uppreisn æru sem við feng- um 2010. Við höfum reynslu sem gerði okkur að „systrum“ eins og við kölluðum hvor aðra. Mikil er virðing mín fyrir þér og ég get aldrei endurgoldið þér þann stuðning sem þú hefur sýnt mér í Stefanía Þorgrímsdóttir ✝ Stefanía Þor-grímsdóttir fæddist á Húsavík 11. apríl 1950. Hún lést á Landspít- alanum í Fossvogi 30. september 2013. Útför Stefaníu fór fram frá Foss- vogskirkju 10. október 2013. gegnum árin. Kjarkur þinn var ómetanlegur og um- hyggjan þín dýr- mæt. Með þér hverfur hluti af minni sögu sem var líka þín saga. Ég verð þér ævinlega þakklát og það er öll mín fjölskylda líka. Fórn þín fyrir sann- leikann var mikil en þú kvartaðir aldrei né sást eftir að hafa staðið við hlið mína hvort sem það var frammi fyrir heilli prestastétt og/eða á opinberum vettvangi. Minningarnar hrann- ast upp og ég leita eftir myndum og þannig að finna nálægð þína. Myndir frá kvennadeginum þar sem við stöndum saman að mót- mæla kynferðislegri áreitni og annarri valdbeitingu. Þar sem við tökum á móti viðurkenningu frá femínistum og ekki síst þar sem við fengum uppreisn æru og af- sökunarbeiðni frá þjóðkirkjunni, ásamt miskabótum. Þetta eru myndir af stoltri konu sem vissi, skildi og þagði aldrei. Ég kveð þig með virðingu og kærleika með sorg og tómleika. Guð geymi þig og takk fyrir allt, elsku Stefanía mín. Kveðja, Sigrún Pálína Ingvarsdóttir. Myndir | Hafi mynd birst í tilkynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent má senda myndina á netfangið minning@mbl.is og gera umsjón- arfólki minningargreina viðvart. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.