Morgunblaðið - 17.10.2013, Qupperneq 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2013
SVIÐSLJÓS
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Leiðtogar demókrata og repúblikana
í öldungadeild bandaríska þingsins
komust í gær að samkomulagi um
tímabundnar fjárheimildir ríkisins
og hækkun skuldaþaksins. Hljóti til-
laga þeirra náð fyrir augum þingsins
verða opinberir starfsmenn kallaðir
aftur til vinnu í vikunni og Banda-
ríkjunum bjargað frá yfirvofandi
greiðslufalli.
Leiðtogi demókrata, Harry M.
Reid, tilkynnti samkomulagið á þing-
fundi í öldungadeildinni í gær en
heimildarmenn Washington Post
innan raða demókrata, sögðust í kjöl-
farið gera ráð fyrir að tillagan yrði
fyrst afgreidd með atkvæðagreiðslu í
efri deildinni, áður en hún yrði tekin
fyrir í fulltrúadeildinni seinnipart
dags eða um kvöldið.
Tillagan felur í sér hækkun
skuldaþaksins fram til 7. febrúar
næstkomandi og tímabundna fjár-
mögnun hins opinbera fram til 15.
janúar. Þá verður sett á laggirnar
þverpólitísk nefnd, leidd af formönn-
um fjárlaganefnda beggja þing-
deilda, sem er ætlað að skila sam-
komulagi um ríkisútgjöldin í
desember.
Fengu lítið fyrir mikið
Niðurstaða samningaviðræðna
öldungadeildarleiðtoganna er fjarri
þeim markmiðum sem repúblikanar
settu sér þegar rimman um fjárlög
næsta árs hófst fyrir alvöru fyrir
rúmum tveimur vikum með lokun
ríkisstofnana og launalausu leyfi
hundraða þúsunda opinberra starfs-
manna. Skotmarkið var heilbrigðs-
löggjöf forsetans, Obamacare, sem
teboðsmenn vildu afnema en aðrir
flokksmenn breyta. Í því sambandi
var m.a. rætt um frestun sérstaks
skatts á lækningatæki og ákvæði
sem forðaði vinnuveitendum og
tryggingafélögum frá því að þurfa að
greiða fyrir heilbrigðisþjónustu sem
gengi gegn siðferðilegri eða trúar-
legri sannfæringu, s.s. getn-
aðarvarnir.
Það eina sem repúblikanar náðu
að knýja fram í frumvarpi Reid og
Mitch McConnell, leiðtoga repúblik-
ana í öldungadeildinni, var hert eft-
irlit með því að fólk sem sækir um
niðurgreiðslu á sjúkratryggingum
eigi sannarlega rétt á þeim.
Eftir að hafa varið þriðjudeginum
við að reyna að ná sáttum milli stríð-
andi fylkinga innan raða repúblikana
um ásættanlega lausn mála, játaði
forseti fulltrúadeildarinnar, John
Boehner, sig sigraðan og tilkynnti
flokkssystkinum sínum á lokuðum
fundi í gær að hann og aðrir leiðtogar
repúblikana í neðri deildinni myndu
greiða atkvæði með samkomulaginu.
Líkur þóttu á að tillagan yrði sam-
þykkt með atkvæðum allra þing-
manna demókrata í fulltrúadeildinni
og fáeinna hófsamra repúblikana.
Það var mál manna að helsta ljónið
í veginum fyrir afgreiðslu tillög-
unnar í öldungadeildinni væri þing-
maðurinn og harðlínurepúblikaninn
Ted Cruz en hann tjáði blaðamönn-
um í gær að hann myndi ekki reyna
að tefja málið frekar. „Að sjálfsögðu
ekki, það var aldrei ásetningur minn
að tefja þessa atkvæðagreiðslu,“
sagði hann. Cruz ítrekaði þó að hann
myndi greiða atkvæði gegn sam-
komulaginu.
„Engir sigurvegarar“
Leiðtogar demókrata stóðust
freistinguna að hreykja sér af sigr-
inum og sögðu samkomulagið af-
rakstur samvinnu flokkanna tveggja.
Jay Carney, talsmaður Hvíta húss-
ins, sagði að forsetinn, Barack
Obama, lýsti velþóknun sinni á sam-
starfi leiðtoga öldungadeildarinnar
Sátt á elleftu stundu
Leiðtogar demókrata og repúblikana í öldungadeildinni komast að samkomulagi um tímabundnar
fjárheimildir og hækkun skuldaþaksins Atkvæðagreiðslur stóðu fyrir dyrum í gærkvöldi
AFP
Birtir til Það hefur farið mikið fyrir John Boehner í fjölmiðlum vestanhafs síðastliðnar vikur en hann hefur mátt sæta gagnrýni úr öllum áttum fyrir störf
sín. Þingmönnum repúblikana, sem fjölmiðlar ræddu við í gær, þótti ólíklegt að gerð yrði tilraun til að þvinga hann úr forsæti fulltrúadeildarinnar.
Eftirlifendur 7,1 stigs jarðskjálfta
sem reið yfir Filippseyjar á þriðju-
dag leituðu ættingja og vina í rúst-
um bygginga á eyjunni Bohol í
gær. Að minnsta kosti 151 lést í
skjálftanum, sem skók í sundur
brýr, felldi aldagamlar kirkjur og
olli skriðuföllum sem færðu heilu
húsin á kaf.
Stjórnvöld sögðu í gær að raf-
orkuleysi og skemmdir á vegum og
brúm hömluðu hjálparstarfi í af-
skekktum byggðum. Ástandið var
einna verst í strandbænum Loon,
þar sem að minnsta kosti 42 létu
lífið. Þar sáu íbúar og lög-
reglumenn sjálfir um björg-
unarstarfið.
Bóndinn Serafin Megallen sagð-
ist í samtali við AFP hafa þurft að
grafa gegnum rústir heimilis síns
til að ná til tengdamóður sinnar og
frænku.
„Þær voru á lífi en létust af sár-
um sínum þremur stundum seinna.
Það barst engin hjálp, við þurftum
að reiða okkur á aðstoð ná-
granna,“ sagði hann.
AFP
Eyðilegging Skjálftinn olli m.a. skemmdum á kirkjum, vegum og brúm.
151 látinn eftir jarð-
skjálfta á Filippseyjum
Íbúarnir sjálfir í björgunarstörfum