Morgunblaðið - 17.10.2013, Síða 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2013
en inntur eftir nánari útlistun á við-
brögðum forsetans við samkomulag-
inu, ítrekaði hann að málið væri ekki
í höfn fyrr en það hefði hlotið af-
greiðslu á þinginu.
„Það eru engir sigurvegarar
hérna. Við höfum sagt það frá upp-
hafi og munum segja það allt til enda
því það er sannleikurinn. Ameríska
þjóðin hefur goldið fyrir þetta,“ sagði
Carney, spurður að því hvort þetta
væri óflekkaður sigur fyrir Hvíta
húsið. Hann sagði endurbætur á inn-
flytjendalöggjöfinni næsta stóra
málið á dagskránni.
Hækkun varð á mörkuðum í
Bandaríkjunum í kjölfar þess að
fréttir bárust af samkomulaginu en
Dow Jones-vísitalan hafði hækkað
um 1,36% þegar markaðir lokuðu og
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s
sagði í gær að lokanir opinberra
stofnana hefðu kostað bandaríska
hagkerfið að minnsta kosti 24 millj-
arða Bandaríkjadollara.
Heimildir: Fjárlagaskrifstofa þingsins, bipartisanpolicy.org
Ríkisstofnunum lokað
800.000 opinberir starfsmenn
sendir í launalaust leyfi
Ekki nægt fjármagn í
ríkisfjárhirslunni til að
mæta daglegum útgjöldum
Tímabilið þegar ríkið fer að lenda
í vanskilum ef skuldaþakið hefur
ekki verið hækkað
Á gjalddaga: Fyrsti stóri
reikningurinn
12 milljarðar dollara
vegna almannatrygginga
Á gjalddaga: 6 milljarðar dollara
vegna vaxtagreiðsla af skuldum
ríkisins, endurfjármögnun
ríkisskuldabréfa að andvirði
115 milljarða dollara
Á gjalddaga: 55 milljarðar dollara
vegna Medicare, almanna-
trygginga, launagreiðsla heraflans
100
sæti
Öldungadeildin
53 45 201 234
2Óháðir
Fulltrúadeildin
435
sæti
Frá
1. okt.
17. okt.
Demókratar Repúblikanar
15. nóv.
Á gjalddaga:
12 milljarðar dollara
vegna útgreiðslu
almannatrygginga
$1.363 ma
2014-2023Áætlaður kostnaður
við heilbrigðislöggjöf
forsetans (Obamacare)
Barack Obama
$16,772
biljónir
Aðrir
bandarískir
fjárfestar
Seðla-
bankinn og
opinberir
reikningar
Opinberar
skuldir
6,657
4,391
Þrætueplið
Eigendur bandarískra ríkisskuldabréfa
H
æ
tta
n
á
gr
ei
ðs
lu
fa
lli
ey
ks
t
23. okt.
31. okt.
18. okt.
5. nóv.
1. nóv.
Erlendir
fjárfestar
5,724
Í rjáfri skuldaþaksins
Bandarískir stjórnmálamenn hafa staðið í ströngu við að reyna að ná saman um hækkun skuldaþaksins, til að forða
Bandaríkjunum frá greiðslufalli sem sumir segja að myndi hafa hörmulegar afleiðingar fyrir heimshagkerfið
Stríðið um fjárlögin og skuldaþakið stóð ekki ein-
göngu milli demókrata og repúblikana, því þeir síð-
arnefndu voru margklofnir í afstöðu sinni til málsins.
Það reyndist John Boehner, forseta fulltrúadeildar
þingsins, á endanum ofviða að ná samstöðu innan
flokksins um ásættanlega niðurstöðu en á meðan hóf-
samari repúblikanar voru fyrir löngu búnir að gefa
upp á bátinn að nota skuldaþakið sem vogarafl í bar-
áttunni gegn heilbrigðislöggjöf forsetans þráaðist te-
boðsarmur flokksins við.
„Við erum að kljúfa repúblikanaflokkinn í stað þess
að ráðast gegn demókrötum,“ sagði öldungadeildarþingmaðurinn John
McCain 27. september síðastliðinn, þegar lokun ríkisstofnana blasti
við.
Hann sagðist aldrei hafa upplifað annað eins þrátefli og það í Wash-
ington síðustu vikur en deilur repúblikana hafa alls ekki staðið um
markmið flokksins, heldur aðferðirnar til að ná þeim.
Repúblikanaflokkurinn klofinn
DEILDU UM AÐFERÐAFRÆÐINA
John McCain
Rannsóknarlögreglumönnum, sem
rannsaka hvarf Madeleine McCann
á ferðamannastað í Portúgal árið
2007, hafa borist fleiri en þúsund
símtöl og tölvupóstar með ábend-
ingum, síðan lögregla bað um aðstoð
almennings í þættinum Crimewatch
á mánudag.
Í þættinum voru birtar tölvugerð-
ar andlitsmyndir af manni sem sást
bera barn í átt að ströndinni í Praia
da Luz kvöldið sem Madeleine hvarf.
Nokkrir einstaklingar sem telja sig
vita hver maðurinn er og hafa sett
sig í samband við lögreglu hafa bent
á sama einstaklinginn. Meðal þeirra
sem hafa hringt inn með ábendingar
eru ferðamenn sem dvöldu í Praia da
Luz á sama tíma og McCann-
fjölskyldan en hafa aldrei verið yfir-
heyrðir í tengslum við málið.
Madeleine var nærri fjögurra ára
þegar hún hvarf 3. maí 2007 en for-
eldrar hennar, Kate og Gerry
McCann, svæfðu stúlkuna og yngri
systkini hennar og skildu eftir í íbúð
á sumarleyfisstaðnum á meðan þau
snæddu kvöldverð á nærliggjandi
veitingastað. Þegar móðir stúlk-
unnar fór að athuga um börnin
nokkru síðar var Madeleine horfin
en bresk lögregluyfirvöld telja lík-
legt að um skipulegt mannrán hafi
verið að ræða.
Hafa borist þús-
und ábendingar
Rannsaka hvarf Madeleine McCann
Eftirlýstur Írsk fjölskylda sá mann-
inn bera ljóshært barn, hugsanlega
klætt náttfötum, í átt að ströndinni.
Þú færð GO walk skó í
Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og
Smáralind | Intersport Lindum, Kópavogi | Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði
Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi | Hafnarbúðin, Ísafirði
Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum
Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Skóbúðin, Keflavík
Axel Ó, Vestmannaeyjum
Skoðaðu úrvalið á www.jens.is
Kringlunni og
Síðumúla 35
Gjafavara
Mikið úrval gjafavöru, borðbúnaðar,
skúlptúra og skartgripa
Viðskiptavinir fá persónulega
viðgerðar- og viðhaldsráðgjöf
á gullsmíðaverkstæði Jens í
verslun okkar í Síðumúla
Blaðastandur
11.900 kr
Innskotsborð
sett (tvö borð) 98.500 kr
stakt borð 55.900 kr
Kökuhnífur með
norðurljósamunstri
12.800 kr
Eyjafjallajökull
5.900 kr
Salattöng með
norðurljósamunstri
13.900 kr
Vatnajökull
7.900 kr