Morgunblaðið - 17.10.2013, Síða 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2013
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Sektarkennd er gagnlegt stjórnsem-
istæki í meðförum ástvinar. Skipuleggðu
mannfagnaði svo þú getir látið þig hlakka til.
20. apríl - 20. maí
Naut Stundum getur svo virst að breytingar
séu nauðsynlegar breytinganna vegna. Skoð-
aðu hvar þú ert núna og hvar þú vilt vera. Þú
vilt breyta.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Einstaklingar í tvíburamerkinu ættu
að vera tilbúnir að meðtaka breytingar og
stuðla að stakkaskiptum í ákveðnum málum.
Stundum er ánægja næg ástæða til að gera
eitthvað.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú getur átt innihaldsríkar samræður
við foreldra þína eða aðra í fjölskyldunni í
dag. Aðrir þarfnast þín og þú ert nógu sterk/
ur til að deila með þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Viðræður við einhvern um trúarbrögð,
stjórnmál eða útlönd fá alvarlegt yfirbragð.
Haltu þínu striki ótrauður, sinntu þínum mál-
um og hafðu ekki áhyggjur af því sem aðrir
hugsa eða gera.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú setur markið hátt á hverjum degi.
Settu það hærra en síðast og leyfðu hæfileik-
unum að njóta sín. Einblíndu á aðalatriðin og
þá mun lausnin fljótlega liggja í augum uppi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er í lagi að vilja ekki lána eitthvað
sem maður á. Gefðu þér nægan tíma til að
undirbúa hlutina. Vertu vakandi fyrir alls kyns
möguleikum.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Reyndu að gera þér sem mestan
mat úr þeim upplýsingum, sem þú ert kom-
inn með í hendurnar um það mál, sem allt
snýst um. Líttu á það sem tækifæri að sýna
umheiminum hvað í þér býr.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Farðu varlega í innkaupum í dag
og gættu þess að kaupa engan óþarfa. Segðu
hvað þér finnst en ekki reyna að þröngva
skoðunum þínum upp á aðra.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú nýtur meiri athygli nú en venju-
lega. Stundum getur verið erfitt að greina á
milli þess sem raunverulegt er og þess
óraunverulega.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Félagslífið ætti að blómstra við
það að þú hittir alla sem þú hefur ætlað þér
að hitta. Leyfðu trúnni að hafa áhrif á þig.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Vertu eins skýr og þér er framast unnt
í samskiptum við aðra. Taktu þér því góðan
tíma áður en þú heldur áfram.
Hermann Jóhannesson yrkir umnýja bók Bjarka Karlssonar
sem uppskar bókmenntaverðlaun
Tómasar Guðmundssonar:
Þessi bók er býsna góð,
bestseller án vafa,
hefðbundin og lipur ljóð
laus við rætni, flím og hnjóð
nema kannski þessi um hann afa.
Á kápu bókarinnar sem ber yfir-
skriftina Árleysi alda kemur fram að
hún hafi að geyma háttbundin ljóð.
Er það enn eitt dæmið um þá vakn-
ingu sem orðið hefur á þeim vett-
vangi. Kannski ekki að furða þegar
haft er í huga að fésbók, tíst og fleiri
samfélagsmiðlar virðast sniðnir að
þörfum skálda og hagyrðinga. Í bók-
inni kennir ýmissa grasa, þar á með-
al óborganlegur kveðskapur sem
byggður er á alkunnri vísu:
Afi minn fór á honum Rauð
eitthvað suðrá bæi,
sækja bæði sykur og brauð
sitt af hvoru tagi.
Á óðfræðivefnum Braga segir um
vísuna: „Þetta er sú vísa sem börn
munu hafa lært einna fyrst af öllum
vísum hér áður og flestir hafa kunn-
að.“ Bjarki leikur sér með vísuna,
fyrst með liprum ferskeytlum, til
dæmis þessum:
Amma skildi að skyldan bauð
að skúraði hún og þvægi
en afi minn fór á honum Rauð
eitthvað suðrá bæi.
Amma stóð og bjó til brauð
úr býsna vondu fræi
en afi minn fór á honum Rauð
eitthvað suðrá bæi.
Oní börnin amma sauð
oft var tómur magi
en afi minn fór á honum Rauð
eitthvað suðrá bæi.
Hugvitssemi og skopskyn ein-
kennir kveðskap Bjarka. Og hann
útfærir hugmyndina um afa með
ýmsum hætti í öðrum háttum, sum-
um af dýrari gerðinni. Þar á meðal
í dróttkvæði:
Hagla ótt ber hrygling
hártagls tvinnum stagla
myglu kaffis kögglum
keyrifogl við þvoglu.
Frekt þar frák að sækti
fornhlut brauðs er kauði
súrs ok sætrar mæru
suðrá bæjum puðask.
Nánari skýringu á kvæðinu má
finna í bókinni, sem enginn lesandi
Vísnahornsins ætti að láta framhjá
sér fara. Guðmundur Arnfinnsson
sendir Vísnahorninu kveðju í morg-
unsárið:
Uppi á fjallinu fjandinn var,
fráleitt á loforðin var þá spar,
en árangur samt það engan bar
öfugt við gylliboð Framsóknar.
Pétur Blöndal
pebl@gmail.com
Vísnahorn
Af verðlaunabók, kaffis
kögglum og afa á honum Rauð
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„HÉR KEMUR ÓVINURINN!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það sem losar þig
undan fjötrum fortíðar.
STRAXNES
0,5 KM
SEINNAMAÐUR
30 KM
STUNDUM GENGUR EKKERT
UPP HJÁ MÉR.
ÞAÐ ER TIL ORÐ
YFIR ÞAÐ ...
„LÍFIГ
VIÐ HVERN GET ÉG
KVARTAÐ UNDAN ÞESSUM
HRÆÐILEGA MAT?!
VILTU TALA
VIÐ KOKKINN,
KANNSKI?
JÁ!
HANN SKAUST YFIR Í
VEITINGAHÚSIÐ HINUM
MEGIN VIÐ GÖTUNA, AÐ FÁ
SÉR AÐ BORÐA.
Það var sem enn einn naglinn í lík-kistuna um æsku Víkverja þegar
hann gerði sér grein fyrir því að um
þessar mundir eru fimmtíu ár liðin
frá því að Bítlarnir tóku upp plötuna
With the Beatles, öðru nafni plötuna
með svörtu rúllukragabolunum. Á
plötunni mátti finna lög eins og It
Won’t Be Long, All My Loving, Hold
Me Tight og Roll over Beethoven,
sem reyndar er nú upphaflega með
Chuck Berry.
x x x
Víkverji er nefnilega nokkuð gömulsál í tónlistarlegum skilningi, þó
að hann hafi einungis nýlega hafið
fjórða áratuginn, og fyrir honum eru
lögin á þessari plötu, og þeim sem á
eftir fylgdu, nánast eins og gamlir
heimilisvinir. Það hversu gamlir þeir
vinir væru renndi Víkverja þó ekki
nákvæmlega grun í enda þykir hon-
um sem lagasmíðar Bítlanna hafi í
raun og veru lítið sem ekkert elst.
Allavegana er fátt við lög eins og
Hard Day’s Night, Help, og Let It Be
sem Víkverja finnst gefa til kynna að
þau fari brátt að verða löggild gam-
almenni í tónlistarlegum skilningi.
En svona er víst lífið.
x x x
Ellimerkin eru reyndar að verðafleiri. Það fjölgar til dæmis skipt-
unum sem Víkverji fer inn í herbergi
og man ekkert hvað hann vildi þang-
að, sem og skiptunum þar sem hann
man ekkert hvað hann ætlaði að segja
næst. Þess vegna líður Víkverja alltaf
jafneinkennilega þegar hann sér
krumpudýrið Keith Richards, gít-
arleikara Rolling Stones. Sá ber líf-
erni rokkarans aldeilis utan á sér.
Samt efast Víkverji einhvern veginn
um það að venjuleg lögmál öldrunar
eigi við um kappann, alltaf virðist
hann vera jafnhress.
x x x
Spurt er í helstu vinakreðsum Vík-verja hvort Ríkisútvarpið eigi að
láta útsendingar frá knattspyrnu eiga
sig héðan í frá. Það voru allavegana
ekki margir sem voru ánægðir með
það að fá auglýsingu frá Bak-
arameistaranum í staðinn fyrir að sjá
okkar menn fagna besta árangri
landsliðsins í knattspyrnu.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Því svo elskaði Guð heiminn að hann
gaf einkason sinn til þess að hver sem
á hann trúir glatist ekki heldur hafi ei-
líft líf. (Jóhannesarguðspjall 3:16)
0 kr. útborgun
Langtímaleiga
Vetrarleiga frá46.900 kr.á mánuði!
Langtímaleiga AVIS er þægilegur, sveigjanlegur og umfram
allt skynsamlegur kostur þegar kemur að rekstri bifreiða.
Í langtímaleigu fæst nýr eða nýlegur bíll, engin útborgun,
tryggingar innifaldar, engin endursöluáhætta og ekkert
vesen við dekkjaskipti, olíuskipti eða smáviðhald.
Losnaðu við vesenið með langtímaleigu
Kynntu þér málið í síma 591-4000