Morgunblaðið - 17.10.2013, Blaðsíða 42
42 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2013
Tímar án ráða er þrælfínpoppskífa, lögin vel saminog útsetningar vel leyst-ar. Þetta má til að mynda
heyra strax í fyrsta lagi plötunnar,
„Gleymdu öllu liðnu“, létt rokk-
skotið popp af bestu gerð.
Svo vindur skífunni fram, lögin
góð, söngurinn þekkilegur og
hljóðfæraleikur framúrskarandi, en
samt er eins og það vanti meira líf
í verkið, eða réttara sagt lífsháska.
Galli við plötuna er nefnilega sá
hugmyndafræðilegi árekstur sem
verður þegar maður rekst á til-
vistarlega angist í léttu grípandi
popplagi, sem að auki er sungið
settlega
áreynslu-
laust: „Já, ég
reyndi að
öskra og
æpa, en orð-
in urðu að
engu,“ syng-
ur Einar í
laginu „Tímar án ráða“ þegar mað-
ur hefði frekar átt von á hug-
ljúfum mansöng, sumri og sól og
tralalala.
Ekki má skilja þetta svo að ég
amist við textunum, þeir eru
þrusugóðir, og ekki kvarta ég yfir
músíkinni heldur, þetta er með
bestu poppskífum sem ég hef
heyrt á árinu og útsetningarnar
eru hreint hnossgæti, nefni sem
dæmi áðurnefnt upphafslag skíf-
unnar og lagið „Undirölduna“, sem
er framúrskarandi smíð og frábær-
lega útsett. Kannski er Einar bara
fullalvarlegur, gleymir að þó lífið
sé sannkallaður táradalur, þá er sá
dalur líka fullur af fjöri og ham-
ingju. Þó honum liggi mikið á
hjarta skiptir máli hvernig það er
framsett – sannast kannski best á
laginu „Farvel“ þar sem depurðin
er krydduð með kímni.
Morgunblaðið/Eggert
Gæðapopp Tímar án ráða, fyrsta breiðskífa Einars Lövdahl, er þrælfín
poppskífa, lögin vel samin og útsetningar vel leystar.
Hugmyndafræði-
legur árekstur
Rokkkryddað popp
Einar Lövdal - Tímar án ráða
bbbmn
Sólóskífa Einars Lövdahls. Lög og textar
eftir hann, en Halldór Eldjárn og Egill
Jónsson annast upptökustjórn, útsetn-
ingar og hljóðfæraleik.
ÁRNI
MATTHÍASSON
TÓNLIST
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hljómsveitin Skepna sendi í ágúst sl.
frá sér sína fyrstu plötu, samnefnda
hljómsveitinni, og hefur hún að
geyma einfalt og kraftmikið rokk við
glúrna texta söngvara og gítar-
leikara sveitarinnar, Halls Ingólfs-
sonar. Auk Halls skipa Skepnu
trommuleikarinn Birgir Jónsson og
bassaleikarinn Hörður Ingi Stef-
ánsson. Skepna var stofnuð fyrir einu
og hálfu ári eða þar um bil og plokk-
aði þá bassann Össur Hafþórsson.
„Við tókum okkur tíma í að semja
þessi lög saman. Það er bannað að
semja lög heima hjá sér í þessari
hljómsveit, við sömdum þetta á æf-
ingum, tókum góðar syrpur og þegar
við vorum komnir með átta lög þá
fórum við í stúdíó í júní í fyrra og tók-
um þetta upp,“ segir Hallur um plöt-
una. Spurður að því hvert markmiðið
hafi verið með stofnun Skepnu segir
Hallur að þeir félagarnir hafi viljað
segja sínar sögur, þeim hafi þótt full-
mikið af fantasíum í rokkinu og viljað
fjalla um daglegt líf. „Við pössuðum
upp á að þetta yrði allt saman eðli-
legt, það eru engin „over-dub“ á plöt-
unni. Við spiluðum þetta bara inn all-
ir í einu og það var látið standa. Það
er ekkert verið að hlaða þetta meira,
við treystum bara á að okkar sögur í
okkar flutningi væri nóg,“ segir Hall-
ur. „Að þetta væri ekki rokk á ster-
um eins og manni finnst þetta vera
svolítið í dag. Að þetta hljómaði bara
eins og hljómsveit hljómar.“
-Sækið þið innblástur í einhverjar
hljómsveitir eða tónlistarmenn?
„Nei, það held ég ekki. Ég vinn við
tónlist þannig að ég má eiginlega
aldrei vera að því að hlusta á tónlist
annarra,“ segir Hallur og hlær.
Engar predikanir
-Þú ert höfundur allra lagatexta á
plötunni og þér virðist liggja mikið á
hjarta, ef rýnt er í þá. Er einhver
rauður þráður í textunum?
„Maður bíður bara eftir að fá hug-
mynd sem manni finnst eitthvað
varið í. En ég get ekki sagt að þetta
sé allt persónulegt eða þess háttar.
Maður fær líka innblástur frá lög-
unum sjálfum, við erum með ein-
hvern grunn og hann vekur hugs-
anir og tilfinningar. Þaðan spretta
oft textarnir.“
-Lögin koma á undan textunum?
„Já, alltaf.“
-Textinn við lagið „Hungur“ er í
sérstöku uppáhaldi hjá mér. Í því
syngur þú m.a. um að það vanti allt-
af eitthvað, að meira en nóg sé ekki
nóg og að óhamingjan sé svört og
svöng.
„Þetta eru bara sporin sem við er-
um í. Það er alltaf verið að ráðleggja
okkur eitthvað, segja manni hvað sé
hollt, hvernig maður eigi að vera,
hvað maður eigi að gera o.s.frv. og
maður verður svolítið ráðalaus. Ef
ég er ekki með í þessu, er ég þá líka
að gera eitthvað vitlaust?“ svarar
Hallur en ítrekar að hann sé ekki
predika neitt á diskinum, frekar að
leita sannleikans og spyrja spurn-
inga í stað þess að veita svör.
Hamingjuhlaup
-Í „Hungri“ er bráðsmellin lýsing á
manni sem hættir að hlaupa í miðju
Íslandsbankamaraþoni og fer að
velta því fyrir sér fyrir hvern hann sé
að hlaupa. Hættir þú í miðju mara-
þoni?
„Ég gæti aldrei hlaupið þetta
hlaup. Þetta er ekki saga af mér,
þetta er skáldskapur,“ segir Hallur
og hlær.
-En þetta gæti hafa gerst ef þú
hefðir tekið þátt í hlaupinu?
„Þá er mjög hætt við því að þetta
hefði átt sér stað. Það spanast upp
stemning fyrir þessu hamingju-
hlaupi, hvað við eigum að vera ánægð
með þetta allt saman en maður getur
auðveldlega misst sjónar á tilgang-
inum. Maður hleypur eitthvað án
þess að vita hvert maður er að fara.“
-Myndin sem prýðir umslagið er
falleg, samsett mynd af nauti sem
stendur í síldartorfu í Kolgrafafirði.
Hvað táknar þessi mynd?
„Hlutirnir koma oft í öfugri röð.
Ég fékk þá hugmynd að það yrði að
vera naut framan á plötunni. Mér
barst þessi fallega mynd úr Kol-
grafafirði, af síld sem gekk þar á land
og einhvern veginn small þetta sam-
an. Eins og ég les þetta þá er þetta
einstaklingurinn á móti hjörðinni eða
fíllinn í herberginu,“ segir Hallur.
Þeir sem vilja sjá Skepnu í allri
sinni dýrð geta gert það á tónlist-
arhátíðinni Iceland Airwaves.
Skepna leikur á Gamla Gauknum,
laugardaginn 2. nóvember, kl. 20.
Hljómsveitin heldur einnig tónleika í
Edrúhöllinni, 29. október.
Einstaklingurinn
á móti hjörðinni
Skepna gefur út sína fyrstu plötu Fantasíurokki gefið
langt nef Sungið um daglegt líf og margar gátur þess
Skepna Hallur Ingólfsson, Birgir Jónsson og Hörður Ingi Stefánsson.
Naut Umslag plötunnar Skepnu.
Aðalfundur fulltrúaráðs Listahátíð-
ar í Reykjavík var haldinn á föstu-
daginn var og kom fram á honum
að hátíðin myndi skila hagnaði í
árslok og leiðrétta rekstrarhalla
síðasta árs. Um 35% tekna hátíð-
arinnar eru sjálfsaflafé sem aflað
er með miðasölu og samstarfi við
bakhjarla og fyrirtæki. Hátíðin í ár
var sú fyrsta sem Hanna Styrm-
isdóttir stýrir og kynnti hún verk-
efni vorsins 2014. Fundinn sátu auk
hennar Jón Gnarr, borgarstjóri og
formaður fulltrúaráðs, og Illugi
Gunnarsson, mennta- og menning-
armálaráðherra og varaformaður
fulltrúaráðsins, auk fulltrúa þeirra
menningarstofnana og -samtaka
sem mynda bakland hátíðarinnar.
Hátíðin verður haldin í 28. sinn, 22.
maí til 5. júní á næsta ári og hafa
tvö verkefni hátíðarinnar verið
kynnt, unnin í samstarfi við Borg-
arleikhúsið og Þjóðleikhúsið. Ann-
ars vegar er það Der Klang der Of-
fenbarung des Göttlichen, nýtt
myndlistarverk fyrir svið eftir
Ragnar Kjartansson með tónlist
eftir Kjartan Sveinsson og verður
það sýnt á stóra sviði Borgarleik-
hússins, og hins vegar SAGA,
brúðusýning fyrir fullorðna frá
leikhópnum Wakka Wakka.
Stjórnandinn Hanna Styrmisdóttir,
listrænn stjórnandi Listahátíðar.
Listahátíð skilar
hagnaði í ár
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
kynning verður 17.,
18. og 19. október
Sigrún Inga kynnir Voilette De
madame, nýju haustlitina frá Guerlain.
Sem nærir, styrkir, lyftir og mótar húðina svo um munar.
ABEILLE ROYALE THE YOUTH TREATMENT:
Sem er eins mánaðar kúr, formúlan inniheldur Pure Royal Jelly.
Fullkomin húðmeðferð fyrir þær sem þurfa að byggja húðina upp
og vernda vel fyrir veturinn.
Glæsilegur kaupauki fylgir þegar verslaðar
eru tvær vörur frá Guerlain, þar af eitt krem.
afsláttur af öllum
snyrtivörum í verslun
okkar í október20%