Morgunblaðið - 17.10.2013, Síða 44
44 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. OKTÓBER 2013
ingu. Leikurinn á öllum póstum er
agaður og vel samstilltur, þó radd-
beiting hafi á stöku stað orðið full-
skrækróma jafnt hjá fullorðnum
sem og börnum í leikhópnum. Af
börnunum mæddi hvað texta varðar
mest á Urði Heimisdóttur í hlut-
verki Pálínu, móður Guðmundar, og
skilaði hún sínu afar vel. Einnig
verður að nefna Matthías Davíð
Matthíasson sem fór á kostum í
hlutverki langafa Guðmundar í sein-
asta söngatriðinu fyrir hlé. Það var
sérlega ánægjulegt að sjá alla þessa
hæfileikaríku krakka sem þátt taka
í sýningunni og vita til þess að ann-
ar eins hópur leikur í helmingi sýn-
inganna.
Sviðshreyfingarnar undir stjórn
Katrínar Ingvadóttur voru vel út-
færðar og stílhreinar. Útlit sýning-
arinnar er skemmtilegt og ein-
staklega litríkt. Ilmur Stefánsdóttir
vísar í leikmynd sinni í kunnugleg
leikföng úr smiðju Fisher Price,
sem birtist m.a. í opnanlega dúkku-
húsinu, flugvélinni og styttunni af
Ingólfi Arnarsyni. Leikgervi og
búningar Þórunnar Maríu Jóns-
Grunnhugmynd Óvita eftirGuðrúnu Helgadóttur ersnjöll. Það að snúa heim-inum á hvolf og láta
manneskjur fæðast fullvaxta en
minnka með aldrinum veitir okkur
kærkomið tækifæri til að skoða
samfélagið ferskum augum. Í leik-
ritinu er kastljósinu beint að nei-
kvæðum áhrifum heimilisofbeldis og
áfengisdrykkju forráðamanna sem
og fjarveru foreldra vegna vinnuá-
lags. Börnin eru nánast afskipt á
milli þess sem fullorðna fólkið
skammast í þeim og ráðskast með
þau, en persónusköpun fullorðna
fólksins er fulleintóna af hendi höf-
undar og lítið um blæbrigði í sam-
skiptum þeirra við börnin. Það var
því býsna nöturleg mynd sem höf-
undur dró upp af samtíma sínum ár-
ið 1979 og vonandi að hlutir hafi
breyst til batnaðar á þeim tíma sem
liðinn er frá ritunartíma.
Í verkinu kynnumst við Guð-
mundi (Jóhannes Haukur Jóhann-
esson), átta ára strák sem ekki á
marga vini í skólanum sökum þess
hversu stór eftir aldri hann er auk
þess sem hann þykir skrýtinn vegna
áhuga síns á vísindum. Dag einn
kemur Finnur (Oddur Júlíusson),
skólafélagi Guðmundar, og biður
hann að fela sig, en Finnur hefur
flúið að heiman vegna drykkju föður
síns og ofbeldishneigðar. Stærstan
hluta verksins er Finnur í felum í
herbergi Guðmundar, sem þarf að
tileinka sér lygar um málið þó erfitt
sé. Allt kemst þó upp að lokum og
þá eru sögulokin afgreidd með
fullsnyrtilegum hætti.
Jóhannes Haukur er einstaklega
heillandi í hlutverki Guðmundar og
áhorfandanum getur hreinlega ekki
annað en þótt vænt um þennan ynd-
islega og góða, en um leið vand-
ræðalega strák. Oddur er kraftmik-
ill Finnur, ekki síst í söngatriðum.
Ágústa Eva Erlendsdóttir, sem leik-
ur systur Guðmundar, er sannfær-
andi sem pirruð og vonsvikin ung-
lingsstelpa sem saknar nærveru
foreldra sinna og gerir bróður sín-
um ljóst að lítið sem ekkert mun
breytast í samskiptum kynslóðanna
og því ekkert hægt að gera annað en
að sætta sig við stöðuna og bíða eftir
fullorðinsárunum. Erni Árnasyni
brá fyrir í hlutverki bleyjubarns við
mikla kátínu viðstaddra.
Gunnar Helgason leikstjóri á hrós
skilið fyrir kraftmikla og flotta sýn-
dóttur voru ekki síður litríkir og vel
útfærðir, þó áhugavert hefði verið
að sjá meiri útlitsmun á fullorðna
fólkinu og börnunum. Eini hópurinn
sem skar sig úr voru unglingarnir í
svörtum og allt of víðum fötum, sem
var vel til fundið.
Þegar Óvitar voru frumsýndir á
sínum tíma voru engin söngnúmer í
sýningunni og sama átti við í upp-
setningu verksins áratug síðar. Árið
2007 var sú leið farin að bæta við
nýrri tónlist eftir Jón Ólafsson og að
þessu sinni er notast við nýja frum-
samda tónlist eftir Moses High-
tower. Eðli málsins samkvæmt er
þar með búið að breyta leikritinu í
söngleik og von að maður spyrji sig
hvort ekki sé lengur hægt að setja
upp stórar barnasýningar án þess
að hafa í þeim fjölmenn tónlistar-
atriði. Hins vegar verður ekki annað
sagt en að nýju lögin smellpössuðu
inn í verkið. Söngtextar Steingríms
Karls Teague og Andra Ólafssonar
eru einstaklega vel samdir og lögin
þjónuðu þeim tilgangi að varpa
skýrara ljósi á bæði persónur og
framvindu.
Ljósmynd/Eddi
Kraftmikið „Gunnar Helgason leikstjóri á hrós skilið fyrir kraftmikla og flotta sýningu,“ segir m.a. í leikdómi.
Þjóðleikhúsið
Óvitar bbbnn
Eftir Guðrúnu Helgadóttur. Leikstjórn:
Gunnar Helgason. Sviðshreyfingar:
Katrín Ingvadóttir. Leikmynd: Ilmur
Stefánsdóttir. Búningar og leikgervi:
Þórunn María Jónsdóttir. Lýsing: Hall-
dór Örn Óskarsson. Hljóðmynd: Andri
Ólafsson, Kristinn Gauti Einarsson og
Kristján Sigmundur Einarsson. Tónlist:
Moses Hightower. Söngtextar: Stein-
grímur Karl Teague og Andri Ólafsson.
Tónlistarstjórn: Andri Ólafsson. Aðal-
hlutverk: Jóhannes Haukur Jóhann-
esson, Oddur Júlíusson, Ágústa Eva Er-
lendsdóttir, Örn Árnason, Urður
Heimisdóttir, Ágúst Örn B. Wigum, Diljá
Pétursdóttir og Ágúst Beinteinn Árna-
son. Frumsýning á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins 13. október 2013.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Þegar heiminum er snúið á hvolf
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Hljómsveitin Vök, sigurvegari
Músíktilrauna 2013, heldur tón-
leika í kvöld kl. 21 á Kex hosteli í
tilefni af því að fyrsta stuttskífa
hennar, Tension, er komin út á ví-
nyl. Um upphitun sér tónlistarmað-
urinn Ceasetone, réttu nafni Haf-
steinn Þráinsson. Vök skipa þrír
ungir tónlistarmenn, Margrét Rán
Magnúsdóttir, Andri Már Enoksson
og Ólafur Alexander Ólafsson og
var hljómsveitin stofnuð í desem-
ber í fyrra en samstarf meðlima
nær þó lengra aftur í tímann. Mar-
grét hefur komið víða við í tónlist
þrátt fyrir að vera aðeins 21 árs,
tók m.a. þátt í Músíktilraunum árið
2006 með Ólafi í dúettinum Wipeo-
ut.
„Ég byrjaði að læra sjálf á gítar
þegar ég var tíu ára og svo fórum
við Óli að fikta saman í Wipeout.
Ég hef mikið verið að fikta við að
tromma og spila á píanó,“ segir
Margrét, spurð að því hvenær hún
hafi farið að skapa tónlist. Margrét
hefur daðrað við ólíkar tegundir
tónlistar, m.a. rokk og rapp en Vök
flytur draumkennda raftónlist.
„Svo koma indípopp-partar inn á
milli,“ bætir Margrét við lýsinguna.
Margrét er söngkona hljómsveit-
arinnar og leikur einnig á gítar og
hljómborð, Andri spilar á saxófón,
stýrir tölvu og syngur bakraddir
og Ólafur leikur á bassa og gítar.
Unnið að breiðskífu
-Nú hafa margar farsælar hljóm-
sveitir farið með sigur af hólmi í
Músíktilraunum. Funduð þið fyrir
pressu þegar þið voruð að vinna í
fyrstu plötunni ykkar?
„Þetta var alveg hellings stress
af því fólk býst við miklu af manni
eftir að maður vinnur Músíktil-
raunir. Við vorum nýbúin að stofna
þessa hljómsveit og hún hafði aldr-
ei komið fram á tónleikum, áttum
þrjú lög þegar við tókum þátt í
keppninni. Þannig að við þurftum
að semja ný lög strax eftir keppn-
ina til að geta spilað,“ segir Mar-
grét. Vök er að vinna að sinni
fyrstu breiðskífu og segir Margrét
að stefnt sé að því að gefa hana út í
byrjun næsta árs. „Við eigum níu
lög núna og það eru fleiri í bígerð.“
Hvað tónleikahald erlendis varð-
ar segir Margrét að hljómsveitinni
hafi borist margar fyrirspurnir að
utan um tónleikahald, m.a. hvort
hún hefði áhuga á því að leika í
Marokkó um áramótin. „Ég held að
það verði ekki af því en á næsta ári
ætlum við að reyna að fara út fyrir
landsteinana,“ segir Margrét.
Vök heldur úti Facebook-síðu,
slóðin er facebook.com/Vokband.
Spenna Tension, fyrsta platan frá hljómsveitinni Vök. Vök var upphaflega
dúett en er nú tríó. Ljósmynd af Andra og Margréti prýðir umslagið.
„Fólk býst við miklu af manni“
Vök fagnar vínylútgáfu Tension
með tónleikum á Kex hosteli í kvöld
Nokkrar þeirra kvikmynda sem
sýndar voru á nýafstaðinni Al-
þjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykja-
vík, RIFF, verða sýndar á Austur-
landi á morgun og um helgina og í
nóvember. Fyrsti sýningarstaður
er Sláturhúsið á Egilsstöðum og í
nóvember verða sömu myndir sýnd-
ar í Skaftfelli á Seyðisfirði og Hótel
Framtíð á Djúpavogi. Sýningar
hefjast í kvöld í Sláturhúsinu. Kl.
19.30 verður heimildarmyndin
GMO OMG sýnd en í henni er fylgst
með baráttu leikstjórans Jeremy
Seifert og fjölskyldu hans fyrir því
að lifa og borða án þess að taka þátt
í óheilbrigðu, ósanngjörnu og eyði-
leggjandi fæðukerfi, eins og segir á
vef RIFF. Kl. 20 verður sýnd kvik-
myndin Indian Summer og á laug-
ardaginn heimildarmyndirnar TPB
AFK: The Pirate Bay Away From
Keyboard, GMO OMG og Valentine
Road. Sýningar verða einnig á
sunnudag og mánudag og má nálg-
ast dagskrá á slaturhusid.is.
Hætta? Úr heimildarmyndinni GMO
OMG sem sýnd var á RIFF.
RIFF-myndir í Slát-
urhúsinu, Skaft-
felli og á Djúpavogi
Bandaríska hljómsveitin Bleached
og hin íslenska Muck halda tónleika
á Harlem Bar í Reykjavík í kvöld og
hefjast þeir kl. 22. Muck sér um
upphitun. Bleached leikur hrátt og
kraftmikið rokk og mun vera ein
vinsælasta jaðarsveit Los Angeles
nú um stundir, skipuð systrunum
Jennifer og Jessie Clavin. Bleached
gaf fyrir skömmu út fyrstu breið-
skífu sína, Ride Your Heart sem
hefur hlotið jákvæðar viðtökur
gagnrýnenda, m.a. einkunnina 4/5 í
tónlistarritinu Mojo.
Rokksystur Jennifer og Jessie
Clavin eru í hljómsveitinni Bleached.
Bleached og Muck
á Harlem Bar
Rokkspurningakeppnin Rock Quiz,
keppni í anda sk. „pub quiz“, eða
barsvars, verður haldin á Bar 11 í
Reykjavík í kvöld kl. 21. Rock Quiz-
kvöldin hafa notið mikilla vinsælda
á Bar 11 og er þátttaka ókeypis.
Annað kvöld verður boðið upp á
tónleika pönkrokkhljómsveitar-
innar Slugs sem gaf nýverið út plöt-
una Þorgeirsbola og hljómsveitin
Skelkur í bringu mun einnig leika.
Morgunblaðið/Friðrik
Svalir Hljómsveitin Slugs árið 2008.
Barsvar, Slugs og
Skelkur í bringu