Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Qupperneq 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Qupperneq 8
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.4. 2014 Ferðaþjónustan hér á landi er áhugavertviðfangsefni frá ýmsum sjónarhornum.Erlendum ferðamönnum fjölgar stöðugt ár frá ári. Alls kyns afþreying er í boði og mörg veitingahús byggja afkomu sína nær ein- göngu á erlendum ferðamönnum. Gistirýmum hefur fjölgað mjög, einkum undanfarin ár og er ekkert lát á. Frá sjónarhóli leikmanns í þessum fræðum kemur þessi fjölgun hótelher- bergja spánskt fyrir sjónir í ljósi þess að nýt- ing fyrirliggjandi gistirýma hefur ekki verið góð stóran hluta ársins, þrátt fyrir fjölgun ferðamanna. Þá sýna nýlegar rannsóknir veru- legan skort á fagmennsku í bransanum. Sjálfsagt er hluti af fjölgun gistirýma vegna eftirspurnar eftir annars konar gistirýmum en þegar eru til staðar. Auk hefðbundinna hót- elherbergja hafa svo sprottið upp herbergi hér og þar um bæinn, með eða án tilskilinna leyfa, þar sem ferðamönnum stendur til boða að halla höfði sínu gegn gjaldi. Heldur hefur þótt skorta á gæði gistirýma og þess vegna eru einhver tækifæri fólgin í nýjum hótelbygg- ingum. En má rekja þessa fjölgun eingöngu til væntinga um áframhaldandi fjölgun ferða- manna? Af hverju fjárfesta menn í nýjum gistirýmum þegar fyrirliggjandi gistirými geta annað eftirspurninni? Getur verið að verslun með svefn ferðamanna lúti öðrum lögmálum en þeim um framboð og eftirspurn? Skattar og opinber gjöld ráða miklu í öllum rekstri. Mikil skattlagning kippir stoðum und- an flestum rekstri. Á markaði þar sem ríkir samkeppni um vinnuafl, lánsfé og fjárfesta er það grundvallaratriði að fyrirtækjum sé ekki mismunað af hálfu ríkisins með mismunandi skattlagningu. Hærri skattur á eina atvinnu- grein setur hana í verri stöðu gagnvart jafnvel alls óskyldum atvinnugreinum. Skattfríðindi hafa sömu áhrif í hina áttina en rugla líka fjár- festa í ríminu. Með því að leggja 7% virð- isaukaskatt á hótelgistingu á meðan aðrar greinar ferðaþjónustunnar og aðrar sam- keppnisgreinar bera allt að 25,5% skatt er mönnum att út í rekstur og fjárfestingar sem markaðurinn kallar ekki endilega eftir. Offjár- festing er líklegri við þessar aðstæður en þar sem ríkið mismunar ekki atvinnugreinum. Um leið og offjárfest er í einni grein verða menn af tækifærum annars staðar. Þegar ríkið lækkar skatta á eina atvinnu- grein er það að viðurkenna að almenn skilyrði til atvinnurekstrar séu ekki viðunandi. Þá er vonandi augljóst að skattalækkunin ætti að ná til allra greina. Röng skilaboð á hótelmarkaði * Þegar ríkið veitir einniatvinnugrein skattfríð-indi umfram aðrar er lög- málum markaðarins ýtt til hliðar. Það getur haft alvar- legar afleiðingar síðar meir. ÚR ÓLÍKUM ÁTTUM Sigríður Ásthildur Andersen sigga@sigridurandersen.is Stór hluti þjóðarinnar virðist varla sofa vegna komandi Liverpool-leikja og mest lesnu fréttir fréttamiðla snúast meira og minna um enska fótboltann þessa dagana. Rithöfund- urinn Óttar M. Norðfjörð skrifar í vikunni að Liver- pool-hjartað hans hafi ekki slegið svona hratt síðan í maí 2005 og bætir við: „Manns- hjartað er tvískipt, hægri helming- urinn er Liverpool, sá vinstri Barce- lona.“ Ekki eru þó allir að hugsa um fót- bolta og umhverfismál áttu hug Margrétar Gísladóttur, að- stoðarmanns Gunnars Braga Sveinssonar utan- ríkisráðherra, í vik- unni. Hún velti plastmengun fyrir sér á Twitter-síðu sinni. „Hvað ætli @DPISL (Dominos Pizza) sendi frá sér marga plastpoka, sem eru bara undir gos, á dag? Óþarfa plastmeng- un sem hægt er að draga úr?“ Þess má geta að svarað var fyrir hönd fyrirtækisins um hæl þar sem því var lofað að þessi mál væru til skoðunar. Bergur Ebbi Benediktsson, lögfræðingur og grínisti, skrifaði á sama samfélagsmiðli í byrjun vik- unnar: „Dánarbætur vegna sjerpa sem deyr við að koma vestrænu fólki upp á Everest eru kr. 44.000 ÍSK, nýir gönguskór kosta 60 þús. kall.“ Margir endurvörpuðu þeirri færslu á Twitter. Margir fögnuðu sumri með fal- legum kveðjum á samfélagsmiðl- unum. Kristrún Heiða Hauks- dóttir, kynningarstýra Forlagsins, velti tilheyrandi sumariðju; ísáti, fyr- ir sér: „Ok, finnið mér þann ein- stakling sem hefur borðað ísblóm á „réttan hátt“, þ.e. ekki upp úr dós- inni heldur hvolft því á disk eftir að hafa sýnt nægilega stillingu og leyft því að bráðna og losna úr blómlaga plastinu. Fordómur dagsins. Þessi einstaklingur er ekki til. AF NETINU „Þetta er á því stigi núna að í grófum dráttum erum við búin að velja leikarahópinn og þetta er ótrúlega flottur hópur, fólk sem hefur mikla reynslu af dansi, leiklist og söng,“ segir Karl Pétur Jónsson, framleiðandi Revolution Inside the Elbow of Ragnar Agnarsson the Furniture Painter, íslensks söngleiks eftir Ívar Pál Jóns- son sem sýndur verður í New York-borg í sum- ar. Forsýningar hefjast 28. júlí næstkomandi en sjálf frumsýningin er 13. ágúst í leikhúsinu Minetta Lane í Greenwich Village sem tekur um 360 manns í sæti. Bergur Þór Ingólfsson leikstýrir verkinu en leikmyndahönnuðurinn Petr Hlousek og danshöfundurinn Lee Proud koma einnig að sýningunni en Íslendingar þekkja meðal annars vinnu þeirra úr söng- leiknum Mary Poppins vel. Páskafríið hefur verið notað í áheyrn- arprufur en yfir 500 manns reyndu sig í pruf- unum og bæta þurfti við aukadegi fyrir for- prufurnar. Karl Pétur segir mikla ánægju vera með það hæfileikafólk sem valdist úr. Tónlistin úr verkinu verður frumflutt í Greenwich Village í kvöld. „Þá frumflytjum við efni plötunnar en þangað mæta tónlistar- blaðamenn og annað lykilfólk úr tónlist- arbransanum til að hlýða á plötuna,“ segir Karl Pétur. Stefán Örn Gunnlaugsson stjórnaði upptökum en tónlistin er einnig eftir Ívar Pál. Er þetta fyrsti söngleikur höfundar en Ívar Páll hefur þó fengist við tónlist í meira en tvo áratugi. Uppfærslan hefur verið fullfjármögnuð hér heima og er á vegum Mostly Human Enterta- inment og Theater Mogul. Þess má geta að nú þegar er hægt að hlusta á lag úr sýningunni á facebooksíðu hennar; facebook.com/elbowville en það er Soffía Björg Óðinsdóttir sem syngur. Yfir 500 manns sóttu prufur Þeir félagar Bergur Þór Ingólfsson leikstjóri verksins og höfundurinn Ívar Páll Jónsson á götum New York borgar. Vettvangur
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.