Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Qupperneq 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Qupperneq 17
Þau börn sem sýna náttúrunni áhuga rannsaka náttúruna og skoða fugla. Bókin er skrifuð 1977 og má kannski segja að Barbapabbi hafi verið frumkvöðull í skólastarfi þar sem einstaklingurinn fær að njóta sín. Frumkvöðullinn Barbapabbi „Öll börn eru ólík,“ sagði Barbapabbi sem í bókinni Skólinn hans Barbapabba stofnar skóla þar sem hvert barn fær verkefni við sitt hæfi. Þau sem hafa færni á tæknisviði og hafa gaman af því að gera við fá að læra um tækni. Þau sem þurfa mikla hreyfingu fá að hreyfa sig mikið. 27.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 R eykjavíkurborg stendur fyrir Barnamenning- arhátíð í fjórða sinn dag- ana 29. apríl til 4. maí næstkomandi. Hátíðin hefur það að markmiði að efla menningarstarf barna og ungmenna í borginni. Viðburðir tengdir hátíðinni fara fram víðsvegar um borgina dagana sem hún stendur yfir. Á vef Barna- menningarhátíðar, www.barna- menningarhatid.is, er hægt að skoða dagskrá hátíðarinnar en einn- ig hefur bæklingi verið dreift í leik- skóla og skóla. Alls eru 125 viðburðir á hátíðinni og er frítt inn á þá alla. Hátíðin er einn stærsti viðburður sem haldinn er á vegum Reykjavíkurborgar á árinu. Gert er ráð fyrir að um átta þúsund börn taki þátt í hátíðinni. Sérstakt barnamenningarhús undir nafninu Ævintýrahöllin verð- ur starfrækt í Iðnó meðan á hátíð- inni stendur. ASSITEJ Ísland, samtök um leikhús fyrir unga áhorfendur, efna til leiklistarhátíðar í Ævintýrahöll- inni, Tjarnarbíó og dansverkstæð- inu Skúlagötu. Barnamenningarhátíðin verður formlega sett 29. apríl kl. 11.30 með opnunarhátíð í Hörpu þar sem allir fjórðubekkingar í Reykjavík, 1.400 talsins, munu flytja lagið 112 ásamt Friðriki Dór, Möggu Stínu og Dr. Gunna sem samdi lagið fyrir Neyð- arlínuna og Barnamenningarhátíð. Myndasögur, bækur og varð- skipið Óðinn Dagskrá Barnamenningarhátíðar inniheldur viðburði frá menningar- og listastofnunum, listhópum, lista- mönnum, félagasamtökum, lista- skólum, grunnskólum, leikskólum og frístundaheimilum. Meðal hinna fjölmörgu viðburða hátíðarinnar má nefna fjöl- skylduleiðsögn um varðskipið Óðin kl. 15.30-16 þriðjudag til föstudags, myndasögusýningu frá Finnlandi á Borgarbóksafni, Tryggvagötu, sýn- ingu nemenda 7. bekkjar Rimaskóla á Hans Klaufa á miðvikudag kl. 10- 10.30 auk þess sem alla hátíðardag- ana kl. 15-18 verður hægt að skoða myndbandasýningu á bókasöfnum borgarinnar þar sem grunn- skólabörn í 6. bekk tala um uppá- haldsbókina sína. BARNAMENNINGARHÁTÍÐ 29. APRÍL TIL 4. MAÍ Menning barna sett í forgrunn Þúsundir reykvískra barna taka jafnan þátt í Barnamenningarhátíð sem nú er haldin fjórða sinni. Morgunblaðið/Kristinn BARNAMENNINGU ER GERT HÁTT UNDIR HÖFÐI Á FJÓRÐU BARNAMENNING- ARHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK SEM HEFST Í NÆSTU VIKU. Frá Barnamenningarhátíð í Laug- ardalslaug í fyrra. Í bók Sigrúnar Daníelsdóttur sálfræðings, Kroppurinn er kraftaverk, er börnum kennt að tala um líkamann og bera virðingu fyrir sínum líkama – og annarra. Bókin er myndskreytt af Björk Bjarkadóttur. Sigrún hefur haldið námskeið og fyrirlestra um líkamsvirðingu og lík- amsvitund. Á vefnum www.likamsvirdingfyrirborn.is má finna þessa skilgreiningu á hug- takinu líkamsvirðing: „Líkamsvirðing er að bera virðingu fyrir líkama sínum og annarra. Það þýðir að við hugsum vel um líkamann okkar og hugsum fallega til hans. Við lærum að tengjast honum, hlusta á hann og bera virðingu fyrir því hvað hann er vitur, sterkur og duglegur. Við reynum ekki að breyta honum eða sigra hann. Líkaminn er ekki vandamál sem ber að laga eða óvinur sem þarf að sigra.“ HVAÐ ER LÍKAMSVIRÐING? Börnum kennt að tala um líkamann Foreldrar geta fundið margs konar ráð um hvernig þeir geta stuðlað að því að börn upplifi líkama sinn á jákvæðan hátt. Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is „Ákaflega kraftmikil og sterk sýning” JBG - Fbl „Leikhús í sinni bestu mynd” BL - Pressan „Glimrandi míní Hamlet” HA - DV Borgarleikhúsið Sun 27/4 kl. 13:00 UPPSELT Sun 27/4 kl. 14:30 UPPSELT Mið 30/4 kl. 10:00 UPPSELT Fös 2/5 kl. 10:00 UPPSELT Sun 4/5 kl. 13:00 örfá sæti Sun 4/5 kl. 14:30 örfá sæti Þri 6/5 kl. 10:00 UPPSELT Mið 7/5 kl. 10:00 UPPSELT Fim 8/5 kl. 10:00 UPPSELT Fös 9/5 kl. 10:00 UPPSELT Þri 13/5 kl. 10:00 UPPSELT Mið 14/5 kl. 10:00 UPPSELT Fim 15/5 kl. 10:00 UPPSELT Frægasta leikrit allra tíma ...fyrir byrjendur Á vef Barnamenningarhátíðar má skoða viðburði hátíðarinnar eftir hverfum. Athygli vekur að langflestir viðburðir eru í miðbæ og vesturborginni. Mun færri viðburðir eru hins vegar austan Elliðaáa, í Breiðholti, Árbæ, Grafarvogi og Grafarholti, eða aðeins lítið brot af heildarviðburðafjölda. Nefna má þó athyglisvert framtak á vegum Fellaskóla þar sem afhjúpað verð- ur myndlistarverk á lóð skólans þar sem hver og einn nemandi og starfsmaður hefur málað einn staf í grindverki í „sínum lit“. Hver stafur er táknrænn geisli í litrófi okkar, mismunandi bylgjulengd af sama ljósi. Hver stafur stendur vörð um skólann og sterkir standa þeir saman, að því er segir á vefnum um verkið. Benda má þó á að á bókasöfnum í öllum hverfum borgarinnar verður dag- skrá tengd hátíðinni. FELLASKÓLI MEÐ MYNDLISTARVERK Krakkar í Fellaskóla afhjúpa lit- ríkt myndlistarverk á lóð skól- ans hinn 30. apríl kl. 9. Fáir viðburðir austan Elliðaáa Í verslunum má víðast hvar finna skemmtilegt sumardót, krítar, sippubönd, skóflur, fötur og bolta. Til að nota sippuböndin og boltana er hægt að fara í ótal skemmtilega leiki og þótt margir foreldrar hafi ef- laust gleymt þónokkrum þeirra er auðvelt að rifja þá upp með hjálp netsins. Á google er einfaldlega hægt að setja inn leitarorðið „úti- leikir“ og fá þá upp fjöldann allan af niðurstöðum en á heimasíðum skóla og einstaklinga er að finna góða gamla og nýrri leiki og má þar meðal annars nefna vef Háteigsskóla. Á heimasíðu skólans er umfjöllun um fjölda leikja, meðal annars svokall- aðan lækniseltingaleik. Einn er hann og ef hann nær einhverjum, með því að koma við hann, til dæmis öxlina, þarf viðkomandi að halda um öxlina með annarri hendi meðan hann reynir að ná öðrum. Hægt er að lesa um fleiri leiki á hateigsskoli.is ELTINGA- OG BOLTALEIKIR Útileikir á netinu Eltingaleikir eru góð skemmtun og skólalóðir eru góðar undir slíka leiki. Morgunblaðið/Eggert Jóhannesson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.