Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Qupperneq 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Qupperneq 22
Heilsa og hreyfing *Margir hyggja á maraþonhlaup nú í sumarog ýmsir byrjaðir nú þegar. Hlaupurum erráðlagt að kynna sér, þegar nær dregurhlaupi, hvað er ákjósanlegt að snæða dag-inn og morguninn fyrir hlaup. Morg-unmaturinn skiptir þar miklu máli ogmælt er með að hann sé léttur og einfald- ur. Til að mynda ristuð brauðsneið, disk- ur af Cheerios eða ávextir. Mataræðið fyrir maraþon Góðir vinir enda alltaf saman HÖSKULDUR ÞÓR JÓNSSON OG MARGRÉT HÖRN JÓHANNSDÓTTIR SEGJA DANSINN HAFA GEFIÐ ÞEIM SJÁLFSTRAUST, FÉLAGSLEGA FÆRNI OG HÆFILEIKA TIL AÐ TILEINKA SÉR NÝJA HLUTI. Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Höskuldur Þór Jónsson og Margrét Hörn Jóhannsdóttir á æfingu í vikunni. É g man eftir mér dansandi nokkurra ára gam- alli á Akureyri þar sem við bjuggum þar til ég var þriggja ára en pabbi var þá danskennari,“ segir samkvæmisdansarinn Margrét Hörn Jóhannsdóttir. Hún og Höskuldur Þór Jónsson hafa vakið mikla athygli í sjónvarpsþáttunum Ísland got talent en þau keppa í úr- slitaþættinum sem fram fer á sunnudag. Höskuldur byrjaði fimm ára gamall í samkvæmisdansi enda var stóri bróðir hans þá byrj- aður og vakti það áhugann. Það þykir sjaldgæft; að krakkar nái að halda saman svo langt fram eftir aldrei sem dansfélagar? Þau jánka því. „Það er eitt danspar á Íslandi sem hefur dansað svona lengi saman en þau eru komin vel yfir tvítugt og hafa dansað saman einu ári lengur en við,“ segir Margrét. „Það skiptir miklu máli í svona að foreldrar séu samstiga og í okkar tilfelli ná þau mjög vel saman og það hefur án efa skipt máli og hjálpað til við að við næðum að dansa alla tíð saman,“ segir Höskuldur. Þau viðurkenna þó að auðvitað geti þau alveg rifist og verið ósammála, enda saman 5-6 daga vikunnar, oft marga klukkutíma í senn. Þau séu þó fljót að finna út úr því. Um helgar eru þau í einkatímum en fyrir Ísland got talent hafa þau æft á hverjum degi – gjarnan 5-6 klukkustundir í senn. Það sama á við ef um mót er að ræða. Margrét og Höskuldur fóru út að keppa í sinni fyrstu keppni sex ára gömul. Er ekkert erfitt að samræma skól- ann og félagslífið dansinum? „Jú, en það er þess virði og það má segja að við séum bara enn skipulagðari fyrir vikið. Dansinum fylgir mikill agi og við njótum þess í náminu,“ segir Höskuldur. „Það er líka mjög gott félagslíf innan dansins,“ bætir hann við. „Dansinn hefur orðið lífið manns. Hann veitir okkur sjálfstraust og ég er líka á því að hann gefi manni fé- lagslega færni. Það eru til dæmis voðalega fáir í dansinum sem eru feimnir úti í hinu daglega lífi,“ segir Margrét. „Auk þess finnur maður hvað maður verður fljótur að læra og til- einka sér nýja hluti almennt í lífinu,“ bætir Höskuldur við. Höskuldur og Margrét eru miklir vinir og þekkja hvort annað vel. Faðir Margrétar, Jóhann Gunnar Arnarsson, segir að þau eigi vel saman. Hún sé fiðrildi og hann meira á jörðinni og vilji taka vel ígrundaðar ákvarðanir. Sá kokteill virki vel. Sjálf eru þau með firðing í maganum fyrir úrslitakvöldið í sjónvarpsþáttunum. Keppnina hafi verið afar ánægjurík reynsla, og þar spili ekki síst inn í hve elskulegt starfsfólk í kringum keppnina hafi verið. „Sem betur fer er maður allt- af með smá adrenalín í æðunum þrátt fyrir að hafa svona lengi komið fram. Það er alveg nauðsynlegt,“ segir Hösk- uldur að lokum. Margrét Hörn Jóhannsdóttir og Höskuldur Þór Jónsson eru 15 og 16 ára en hafa dansað saman í meira en 10 ár. Slíkt er afar sjaldgæft í dans- heiminum þar sem mun algengara er að fólk skipti um dansfélaga á nokk- urra ára fresti. Parið hefur náð eftirtektarverðum árangri á þessum árum, heima og er- lendis en þau eru margfaldir Íslands- meistarar. Í fyrra fóru þau á öll heims- meistaramót í sínum aldursflokki. Síðustu áramót fóru þau upp í Ung- mennaflokk; 16-18 ára og urðu þá þegar Íslandsmeistarar í suðuramer- ískum dönsum. Árið 2010 unnu þau til fernra silfurverðlauna í einni sterk- ustu danskeppni barna og unglinga í heiminum sem fram fer í heiminum í Blackpool í Bretlandi. Í fyrra kepptu þau á heimsmeistaramótinu í suður- amerískum dönsum á Ítalíu sem og á heimsmeistaramótinu í ballroom og 10 dönsum en þær keppnir fóru fram í Moskvu og Riga. Þau gerðu sér lítið fyrir og urðu bæði bikararmeistarar í ballroom og suðuramerískum döns- um. Þess má geta að Höskuldur hefur orðið Íslandsmeistari í breakdönsum. Margrét og Höskuldur eru í lands- liðinu í samkvæmisdönsum en þau æfa með Dansíþróttafélagi Kópavogs. Þau hafa dansað og sungið í Borg- arleikhúsinu, bæði í Skoppu og Skrítlu og Galdrakarlinum í Oz. Margrét komst þá í úrslit jólastjörnununar ár- ið 2012. Þau keppa nú um helgina í lokaþætti Ísland got talent. FERILLINN Í STUTTU MÁLI Afburðahæfileikar Morgunblaðið/Eva Björk
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.