Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Page 26
Pappírsrör
hafa verið
vinsæl
undanfarið.
V
ið erum aldar upp í heildsölu- og verslunarum-
hverfi frá því við vorum litlar. Foreldrar okkar
eru í þessum bransa. Byggðu upp Cintamani á
sínum tíma og eiga Sportís-íþróttavöruverslunina í
dag. Svo höfum við verið að byggja upp Cintamani-merkið
undanfarin ár þannig að við höfum mikla reynslu í mark-
aðssetningu vörumerkja. Við teljum okkur vita hvað við er-
um að gera,“ segja Elva Rósa og Sigrún Kristín Skúladæt-
ur sem stofnuðu saman vefverslunina esjadecor.is.
„Við erum heppnar að við erum góðar vinkonur og mjög
samrýndar.“
Þær segjast báðar hafa áhuga á verslunarrekstri enda
lifað og hrærst í þessum heimi með foreldrum sínum,
Skúla Björnssyni og Önnu Garðarsdóttur.
„Við vorum búnar að tala um þetta lengi að stofna svona
verslun og svo hófumst við handa í haust að gera áætlanir,
finna vörumerki og annað slíkt. Ætlunin er að vera með
merki sem enginn annar er með og koma með eitthvað
nýtt, ferskt og spennandi á markað. Ef eitthvað íslenskt
passar í okkar módel þá skoðum við það bara,“ segir Sig-
rún sem vonast til þess að bæta við íslenskri hönnun á
vesíðuna en flestar vörurnar eru
frá Danmörku, Hollandi,
Bandaríkjunum, Ástralíu og
Frakklandi.
„Við ætlum að byrja með öðruvísi
vörur sem hafa ekki sést áður hér á landi. Við fórum
á vörusýningu í París í janúar og fundum ný merki þar og
svo höfum við verið að skoða okkur um á netinu og
tímaritum.
Þetta er aðallega stofustáss og barnavörur, leikföng
og annað inn í barnaherbergi. Fylgihlutir frekar en
fatnaður. Aðallega húsmunir fyrir heimilið og fylgi-
hlutir fyrir íbúa þess,“ segir Elva og segir að það sé
auðvitað draumur að opna verslun með tímanum en
það sé hins vegar gott að byrja smátt og þar er
vefverslun svarið.
„Fólk er í minna mæli að kaupa sér stærri
hús en meira að nostra við heimili sín og
skreyta þau.
Sérstaða okkar er að fókusera á hönnun og unga
efnilega hönnuði.“
Fyrsti viðskiptavinur SNURK Astronaut rúmfatanna
er Gísli Gíslason tilvonandi geimfari. Gísli verður
meðal fyrstu geimfaranna sem fara út í geiminn á vegum
flugfélags Richard Branson, Virgin Galactic.
Púði frá
merkinu
HOFF Interior
fæst hjá Esju.
Skemmtileg mynd af lunda.
Litríkir kubbar fyrir börnin.
Morgunblaðið/Þórður
ALDAR UPP Í VERSLUNARREKSTRI
Elva Rós vann í hönnunardeild Cintamani í sjö ár þar sem hún sá um hönnun og framleiðslu og var yfirhönnuður um tíma. Hún
er einnig lærður innanhússhönnuður. Sigrún er verslunarstjóri Sportís og Cintamani og útskrifaðist frá Bifröst í haust.
VEFVERSLUNIN ESJA DECOR, SEM ÞÆR ELVA RÓSA OG
SIGRÚN KRISTÍN STOFNUÐU FYRIR SKÖMMU,
EINBEITIR SÉR AÐ STOFUSTÁSSI OG BARNAVÖRUM.
Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is
Lítil verslun
í risastórum vef
Heimili
og hönnun *Verk útskriftanema listaháskóla Íslands á BA-stigi íhönnunar- og arkitektúrdeild og arkitektúrdeildverður opnuð laugardaginn 26. mars kl. 14:00 í Lista-safni Reykjavíkur, Hafnarhúsi. Þar munu um 65 nem-endur sýna verk sín. Sýningin stendur til 11. maí oger opin daglega frá 10:00-17:00 og á fimmtudögumfrá 10:00-20:00. Sýningarstjórar eru þær Ingibjörg
Sigurjónsdóttir og Anna Hrund Másdóttir. Sýning-
arstjóraspjall verður fimmtudaginn 1. maí kl. 15:00.
Útskriftarsýning Listaháskóla Íslands