Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Page 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Page 42
„Innblástur lín- unnar kemur frá tímalausum mynd- um eftir ljósmynd- arann Helmut Newton. Mig lang- aði að hanna flíkur á þessa sterku öruggu konu,“ segir Berglind Óskarsdóttir sem lagði áherslu á klassískan klæðskurð á móti jap- anskri sniðagerð í hönnun sinni. „Lúxus, fágun og kynþokki eru þau orð sem koma upp í hugann ef ég ætti að lýsa línunni í þremur orðum.“ Berglind lagði mikla áherslu á vönduð og endingargóð efni í lín- unni. „Efnin skipta mig miklu máli og mig langaði að leggja áherslu á endingargildi. Ég valdi vönduð efni, ull og silkikrep, en efnin koma öll frá New York og London.“ Berglind segir fylgihlutahönnun alltaf hafa heillað en hún sýndi einn- ig skemmtileg armbönd úr kopar sem unnu vel með heildarsvip lín- unnar. BERGLIND ÓSKARSDÓTTIR Vandaður og fág- aður fatnaður frá Berglindi. Berglind Óskarsdóttir Klassískur klæðskurður og japönsk sniðagerð Fallega sniðin kápa við flott kopararmbönd. 42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.4. 2014 Föt og fylgihlutir M ikil stemning ríkti í Hafnarhúsinu sum- ardaginn fyrsta þegar sex nemendur fata- hönnunardeildar Listaháskólans sýndu lín- ur sem hafa verið í undirbúningi frá því í lok síðasta árs. Hver nemandi sýndi 5-10 alklæðnaði en línurnar voru hannaðar út frá ákveðinni ímynd sem nemend- urnir sköpuðu og unnu ákveðinn heim í kringum með myndum og textum og tónlist og því sem veitti þeim innblástur í ferlinu. Fríða María Harðardóttir sá um förðun fyrirsætanna sem var ákaflega náttúrulega og falleg. Augun voru förðuð með appelsínugulum augn- skugga og hvítum blýanti. Förðunin tónaði vel við hverja fatalínu án þess að taka athuglina frá fatn- aðinum. Fyrirsæturnar voru síðan með lág tögl, ýmist fléttuð eða ekki. Mikil stemning var í húsinu og sá DJ Yamaho um tónlistina við hverja línu. Framsetningin var flott og umgjörð sýningarinnar sérstaklega vönduð. Morgunblaðið/Eggert TÍSKUSÝNING ÚTSKRIFTARNEMA LHÍ Fágaðar fatalínur TÍSKUSÝNING FATAHÖNNUNARNEMA LISTAHÁSKÓLA ÍSLANDS VAR HALDIN Í LISTASAFNI REYKJAVÍKUR SÍÐASTLIÐINN FIMMTUDAG. SEX NEMENDUR SÝNDU ÓLÍKAR EN JAFNFRAMT GLÆSILEGAR FATALÍNUR. Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Margt var um manninn á út- skriftarsýningu fatahönn- unarnema Listaháskóla Ís- lands í Hafnarhúsinu. „Línur, hreinleiki, form. Stafræn rigning. Framtíðarsýn á tísku. Ég byrjaði á hugmyndinni um konu sem býr í geimnum og er nokk- urnskonar geimvera,“ segir Ragna Sigríður sem sótti innblástur til framtíðarinnar. Sterk form, áferðir og tæknileg efni eins og silfrað leð- ur undirstrikuðu áhugaverða og sterka framtíðarsýn. Ragna notaði íslenskt leður í lín- una frá Loðskinni á Sauðarkróki sem hún lét filma og lita fyrir sig. „Bleiki liturinn í línunni kom á óvart. Það gerðist óvænt. Ég er ekki mikið fyrir bleikan lit en er mjög ánægð með út- komuna þar sem liturinn vann vel með heildinni án þess að vera væminn.“ RAGNA SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR Áhugaverð framtíðarsýn Ragna Sigríður Bjarnadóttir Bleiki liturinn vann vel með heildinni. Víð, silfruð leðurkápa og áhuga- verð smáat- riði. www.gilbert.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.