Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Síða 43

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Síða 43
27.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43 „Ég bjó til ímynd sem er mafíósi en viðskiptakona á yf- irborðinu og felur sig á bak við það. Hún byggir kirkjur og heimili fyrir munaðarlausa en undir niðri er mikil illska,“ segir Svava Magdalena sem sýndi sérlega sterka línu. Línan einkenndist meðal ann- ars af fallega reimuðum flíkum sem Svava segir vísa í krufningar á fólki. „Fallegar rykkingar annarsvegar endurspegla ímyndina sjálfa sem karakter, kynþokkafull og elegant en hinsvegar hinn ógnvekjandi und- irheim, þó á fallegan hátt. Peysurnar eru á röngunni og allt í flækju því ímyndin er flókinn karakter.“ Svava notaði silki í kjólana og ull- ar- og kasmírblöndu í kápurnar. Gulllitað leður naut sín í samfellum og buxum og silki krep notaði Svava í samfesting og kjól. SVAVA MAGDALENA ARNARSDÓTTIR Reimarnar sóttu innblástur í krufn- ingar og kynþokka. Svava Magdalena Arnarsdóttir Kynþokki og krufningar Falleg, skósíð ullarpeysa á röngunni. „Hardcore sci-fi og back to earth er innblástur línunnar,“ segir Drífa Thoroddsen sem hannaði skemmtilega línu sem einkenndist af and- stæðum. Mjúkt, flæðandi silki á móti harkalegum vínil sem erfitt er að ráða við voru að- alefni línunnar ásamt ull og silkiflaueli. Drífa hannaði munstur út frá teikningum af loðfílum sem hún setti saman við myndir af háhýsum. „Viss form í línunni minntu að hluta til á loðfíla og það var gaman að sjá hvernig útkom- an varð heildstæð óvænt.“ DRÍFA THORODDSEN Form og efni einkenndust af and- stæðum. Andstæður og sci-fi Drífa Thoroddsen Fallegur sam- festingur með sérhönnuðu munstri. „Ég hannaði fatn- aðinn á ákveðinn karakter sem ég bjó til. Ég sá fyrir mér konu um sex- tugt, listmálara sem býr í stórborg og hefur áreynslu- lausan og töff- aralegan stíl,“ segir Rakel Jóns- dóttir. Rakel blandaði saman ólíkum andstæðum í efnisvali, þungt leður á móti þunnu og léttu silki. „Ég fann mynd af silki sem lá ofan í olíubrák en sú mynd varð einnig innblástur munstursins sem ég hannaði.“ Rakel segir mótorhjólajakka hinn stóra innblástur línunnar þar sem stórir rennilásar og kragar ein- kenndu línuna og urðu svolítið ólíkar útfærslur af hinum klassíska mótorhjólajakka. RAKEL JÓNSDÓTTIR Mótorhjólajakkar veittu innblástur Rakel Jónsdóttir Rakel hannaði þetta fallega munstur í silkikjólnum. Stórir, gróf- ir og svartir rennilásar sköpuðu fallegar andstæður við hvíta efnið. „Ég ætlaði upp- runalega að hanna „sportý“ línu og fór að kynna mér allskyns íþrótta- efni, vatnsheld og kafarabúninga,“ segir Áslaug Sig- urðardóttir sem fann skemmtileg form úr gömlum gúmmíbúningum sem hún ýkti og byggði línuna á. Áslaug skoðaði einnig mikið af afrískum munstrum, prjóni og hekli útfrá ónefndum listamanni sem hún kynnti sér. „Ég vildi hafa línuna svolítið litríka og villi- mannslega.“ Áslaug sótti í að gera nútíma- legt, óhefðbundið prjón. „Neon- bleikt við skærblátt og limegræna ull. Ég er að blanda saman mýkt- inni í bómullinni við harða hrá- leikann sem er í ullinni og þar sameinast þessar andstæður sem ég var að leitast eftir. Þyngdin í bómullinni lætur þær einnig falla öðruvísi en ullin er mun léttari.“ Áslaug notaði Neoprene-efni í yfirhafnr og fannst skemmtilegt að vinna með efnið þar sem það beyglast ekki heldur koma straumlínulaga línur þegar það fellur. „Beinar línur og skrýtin form ýkja undarleikann sem ég vildi ná fram.“ ÁSLAUG SIGURÐARDÓTTIR Ýkir undar- leikann Áslaug Sigurðardóttir Óhefðbundið prjón og fal- legir litir. Beinar línur og ýkt form einkenndu þessa skemmtilegu línu. SVO ÞÆGILEGIR AÐ ÞÚ GETUR GENGIÐ ENDALAUST. HVER ÆTLI SÉ SÁTTUR VIÐ ÞAÐ. Þú færð GO walk skó í Skór.is, Kringlunni og Smáralind | Steinar Waage, Kringlunni og Smáralind | Intersport, Reykjavík | Dion, Glæsibæ | Skóhöllinni Firði, Hafnarfirði | Versl. Nína, Akranesi | Blómsturvellir, Hellisandi | Heimahornið, Stykkishólmi | Hafnarbúðin, Ísafirði | Skóhúsið, Akureyri | Skóbúð Húsavíkur, Húsavík | Sentrum, Egilstöðum | Lónið, Höfn í Hornafirði | Skóbúð Selfoss, Selfossi | Axel Ó, Vestmanneyjum | Palóma, Grindavík | Skóbúðin, Keflavík

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.