Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Qupperneq 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Qupperneq 49
27.4. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 A ldís Hilmarsdóttir er að taka upp úr köss- unum þegar fundum okkar ber saman á skrifstofu hennar. Hún er nýr aðstoðaryfirlög- regluþjónn hjá Lögreglunni á höfuðborg- arsvæðinu og yfirmaður R-2, deildar sem rannsakar fíkniefnamál og skipulagða glæpastarfsemi. Leys- ir af hólmi Karl Steinar Valsson sem ráðinn hefur verið tengifulltrúi Íslands hjá Evrópulögreglunni, Europol. „Ég er svona að koma mér fyrir,“ segir hún brosandi. „Fyrsta verkefnið er að hitta fólkið sem hér vinnur og kynna mér starfsemi deildarinnar. Eðli málsins samkvæmt er margt hér sem ekki fer hátt utan deildarinnar. Nýjum stjórnendum fylgja alltaf einhverjar áherslubreytingar en ég er ekki hingað komin til að snúa öllu á hvolf. Þvert á móti legg ég ríka áherslu á að hafa starfsmenn deild- arinnar með í stefnumótun. Hér vinnur reynslumikið og hæfileikaríkt fólk og í þann brunn mun ég hiklaust leita.“ Aldís hefur starfað í lögreglunni í meira en áratug, fyrst sem lögreglumaður hjá lögreglunni í Reykjavík og Keflavík á árunum 2002-2003 og síðan sem lögreglufulltrúi í efna- hagsbrotadeild hjá embætti ríkislögreglustjóra frá síðla árs 2003 til snemma árs 2008. Þá réðst hún til starfa hjá Delo- itte og vann þar megnið af árinu 2008. Aldís kom aftur til starfa hjá lögreglunni í árslok 2008 og var lögreglufulltrúi í fjármunabrotadeild LRH til vors 2011. Þá var hún ráðin til embættis sérstaks saksóknara og gegndi þar stöðu lögreglufulltrúa þar til nú. Vildi starfa áfram hjá lögreglunni Hún segir skamman aðdraganda hafa verið að vistaskipt- unum. „Ég var mjög ánægð hjá sérstökum saksóknara, þar sem verkefnin eru verðug. Það embætti er hins vegar byrj- að að draga úr starfsemi sinni enda aðeins um tímabundna ráðstöfun að ræða. Ég var búin að gera það upp við mig að ég vildi starfa áfram innan lögreglunnar og þegar starf yfirmanns R-2 var auglýst laust til umsóknar fannst mér það spennandi kostur og sótti um. Og hér er ég.“ Aldís segir marga eiga erfitt með að hætta í lögreglunni og hefur raunar reynt það á eigin skinni. „Ég hef prófað að hætta, þegar ég fór til Deloitte. Þar var ég um margt að sinna svipuðum verkefnum, það er innri endurskoðun og eftirliti, sem átti ágætlega við mig. Samt saknaði ég lög- reglunnar og greip fyrsta tækifærið til að snúa aftur. Raunar flýtti hrunið fyrir, skyldan kallaði. Eftir hrun veitti ekki af fólki með reynslu af rannsókn efnahagsbrota. Ástæðan fyrir því að ég tók þessi störf hjá fjármunabrota- deild LRH og hjá embætti sérstaks saksóknara að mér var í grunninn sú sama og ástæðan fyrir því að ég sótti um hjá lögreglunni til að byrja með – mig langar að gera gagn og vinna fyrir þjóðfélagið.“ Aldís kveðst hafa lært gríðarlega margt í störfum sínum við rannsóknir fjármuna- og efnahagsbrota sem komi án efa til með að nýtast henni í nýja starfinu. „Þegar ég hóf störf í efnahagsbrotadeildinni tiltölulega nýútskrifuð úr Lögregluskólanum var mér hent út í djúpu laugina og mun búa að þeirri reynslu alla tíð. Reynslan sem ég aflaði mér hjá embætti sérstaks saksóknara er ekki síst stjórn- unarleg.“ Fámennt en góðmennt Það liggur í hlutarins eðli að fíkniefnabrot og skipulögð glæpastarfsemi eru partur af hörðum heimi sem mörg okk- ar vilja sem minnst vita af. Aldís gerir sér fulla grein fyrir því. „Ég hef komið að rannsókn brota af þessu tagi, auk þess sem efnahagsbrot eru í sumum tilvikum líka skipulögð glæpastarfsemi. Það er mjög áhugavert að skoða fjár- málahliðina á skipulagðri glæpastarfsemi.“ Aldís stendur klár á því hvar styrkur og veikleiki sinnar nýju deildar liggja. „Styrkurinn er í því fólginn að deildin er ótrúlega vel mönnuð. Veikleikinn er sá að í henni eru færri en eiga að vera.“ Starfsmenn deildarinnar eru um tuttugu talsins. Í fréttaskýringu í þessu blaði í september síðastliðnum ræddi Karl Steinar Valsson, forveri Aldísar, um skort á fjárveitingum til lögreglu. Vel sé gert en með meira fjár- magni megi gera ennþá betur. Aldís tekur undir þetta. „Eins lengi og ég hef verið í lögreglunni hefur verið nið- urskurður. Líka í góðærinu. Hér er unnið frábært starf en því er sniðinn býsna þröngur stakkur. Við höfum enga tekjumöguleika og verðum því að stóla á fjárveitingar. Við þessar aðstæður er mikilvægt að forgangsraða og þessum málaflokki er betur sinnt en mörgum öðrum innan lögregl- unnar.“ Spurð hvort það sé ásættanlegt að lögregla þurfi að for- gangsraða vegna fjárskorts horfir Aldís í augun á mér. „Nei, auðvitað er það ekki ásættanlegt. Það er sorglegt ef Langar að vinna fyrir þjóðfélagið „ÉG HEF ALDREI FUNDIÐ FYRIR ÞVÍ Í MÍNUM STÖRFUM AÐ ÞAÐ HÁI MÉR AÐ VERA KONA. HEF ALLTAF VERIÐ DÆMD AF VERKUM MÍNUM,“ SEGIR ALDÍS HILMARSDÓTTIR, NÝR AÐSTOÐARYFIRLÖGREGLUÞJÓNN HJÁ LÖGREGLUNNI Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU OG YFIRMAÐUR R-2, DEILDAR SEM RANNSAKAR FÍKNIEFNAMÁL OG SKIPULAGÐA GLÆPASTARFSEMI. STARFINU GEGNIR HÚN FYRST KVENNA. UNG VAR ALDÍS GEFIN LÖGREGLUNNI. HÚN BYRJAÐI Á GÖTUNNI EN UNDANFARINN ÁRATUG HEFUR HÚN AÐ MESTU FENGIST VIÐ AÐ RANNSAKA EFNAHAGS- OG FJÁRMUNABROT, NÚ SÍÐAST HJÁ EMBÆTTI SÉRSTAKS SAKSÓKNARA. Texti: Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is „Ég var búin að gera það upp við mig að ég vildi starfa áfram innan lögreglunnar og þegar starf yfirmanns R-2 var auglýst laust til umsóknar fannst mér það spennandi kostur og sótti um. Og hér er ég,“ segir Aldís Hilmarsdóttir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.