Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Side 58

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Side 58
58 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27.4. 2014 BÓK VIKUNNAR Njála var í efsta sæti í vali Kiljunnar á íslenskum öndvegisritum. Sú viðurkenning kallar á að bókin sé lesin að nýju, enda stórkostleg gersemi. Bækur KOLBRÚN BERGÞÓRSDÓTTIR kolbrun@mbl.is Ég man eftir þeirri gleði sem ríktimeðal bókmenntaunnenda hér álandi þegar kólumbíski rithöfund- urinn Gabriel Garcia Marquez hlaut Nóbelsverðlaunin. Árið var 1982 og þýð- ing Guðbergs Bergssonar á Hundrað ára einsemd hafði heillað íslenskt bókmenntafólk og ekki síst ungt fólk sem umfaðmaði þetta töfraraunsæisverk og þótti verulega vænt um höfund þess. Þegar Marquez hlaut svo Nóbelinn var þetta sama fólk stolt, rétt eins og fjar- skyldur frændi í útlöndum hefði öðlast verðskuldaða upphefð. Marquez var ekki bara virtur höf- undur, hann var elskaður. Lesendur náðu sérstöku tilfinningasambandi við bækur hans og vildu lesa meira og fengu það því allnokkrar bækur hans hafa verið þýddar á íslensku. Hundrað ára einsemd er frægasta verk hans, og jafngóð og bókin er þá á sú sem þetta ritar aðra uppá- haldsbók eftir hann. Árið 1975 kom út eftir hann skáldsag- an Haust patríark- ans þar sem að- alpersónan er einræðisherra sem virðist vera eilífur og ber ábyrgð á voðaverkum og kúgun og er læstur inni í einsemdinni sem fylgir valdinu. Verkið einkennist af löngum máls- greinum sem teygja sig yfir síðurnar og þeir sem leita að punktum finna þá sjaldnast. Jafn þreytandi og slíkt getur verið virkar það í þessari stórkostlega mögnuðu bók sem varð vinsælasta bók ársins 1975 á Spáni. Bókin hefur ekki verið þýdd á íslensku en þýðing hennar væri verðugt verkefni fyrir metn- aðarfullan þýðanda sem myndi fyrir vikið öðlast þakkir fjölmargra lesenda. Nú hefur Marquez kvatt þennan heim og gistir annan heim sem örugglega er fullur af alls kyns töfrum. Aðdáendur rit- höfundarins um allan heim þakka honum góða og farsæla samfylgd og þroskandi leiðsögn sem ekki er lokið, þótt skáldið sjálft sé fallið frá. Það eru gömul sannindi að góðar bækur eru eilífar og bækur Marquez munu alltaf eiga erindi. Menn sem skila af sér slíku lífsstarfi eru sann- arlega lánsamir og við hin erum lánsöm að hafa kynnst þeim í gegnum ódauðleg verk sem halda áfram að gleðja og þroska. Orðanna hljóðan MEISTARI MARQUEZ Marquez er látinn, 87 ára gamall. Kólumbískur dreng- ur hangir á syllu undir mynd af Nóbelsskáldinu. T autar og raular er ný ljóðabók eftir Þórarin Eldjárn og er þetta tíunda ljóðabók hans fyrir full- orðna. Þess má svo geta að Þór- arinn á 40 ára rithöfundarafmæli í ár. „Í þessari bók eru rétt tæplega 70 ljóð og þar af er rúmur þriðjungur háttbundinn,“ segir Þórarinn. „Ljóðin hafa langflest orðið til frá því ég gaf síðast út fullorðinsbók árið 2010, sumar þýðingarnar eru eldri en hafa fæstar birst nema í tímaritum og á plötu- umslögum. Ég er oft beðinn um að skaffa þær og fannst því praktískt að leyfa þeim að fljóta með í þýðingasyrpunni. Bókin skiptist í fjóra kafla. Sá fyrsti geymir almenn ljóð og heitir Renningar. Síð- an kemur kafli með styttri kviðlingum sem heitir Skeytlur og sver sig nokkuð í ætt við kverið Vísnafýsn frá 2010. Þriðji kaflinn er með prósaljóðum og kallast Barnaafmæli og svo eru þýðingarnar. Ljóðin eru sem sagt blönduð í forminu eins og hefur verið í síð- ustu bókunum. Sum vildu vera háttbundin og önnur báðu sérstaklega um að vera það ekki, en þó bregður mjög oft fyrir stuðlum og lausbeisluðu rími inni í háttleysu.“ Hvort finnst þér erfiðara, að yrkja bundið eða óbundið? „Nú orðið finnst mér enginn munur þar á. Ég gaf út ljóðbókina Ydd fyrir nákvæmlega 30 árum og þar reyndi ég fyrst fyrir mér á hálu svelli óbundna formsins og fannst ég ná þokkalegri viðspyrnu. Fram að því hafði mér þótt miklu öruggara að yrkja háttbundið. En ég lít svo á að ljóð sé bara ljóð og fyrst og fremst útfærsluatriði hvort það er hátt- bundið eða ekki.“ Ljóðin eru mjög fjölbreytileg, þarna er til dæmis ljóð um rödd Þorsteins frá Hamri og eitt ljóð fjallar um turn á Höfðatorgi. „Þetta er ekki ljóðabók sem hverfist um eitt þema eða meginstef heldur eru ljóðin úr ýmsum áttum, diktsamling í þess orðs fyllstu merkingu. Öll fjalla þau samt meira og minna um daglegt líf okkar og vafstur, um- hverfi og endurminningar, einkalegar og sameiginlegar.“ Þú hefur einstakt næmi fyrir orðum og margvíslegri merkingu þeirra. Hefurðu mjög gaman af orðum? „Ég velti orðum og orðalagi mikið fyrir mér. Velti mér jafnvel upp úr þeim og leik mér. Að sjálfsögðu eru orð þó fánýt til lengdar ef þau tengjast ekki einhverri hugs- un. Í þessum ljóðum slær vonandi oft og ein- att saman orðum og hugsun á heillavænlegan hátt.“ Hvað viltu segja um fyndnina í ljóðum þín- um, hún er áberandi. Heldurðu að það sé hægt að vera of fyndinn? „Það er hægt að vera of fyndinn en um leið og maður fer yfir þau takmörk er maður hættur að vera fyndinn, kominn í hring og aftan að sjálfum sér.“ Eru fleiri bækur eftir þig væntanlegar á næstunni? „Ný barnaljóðabók, sú sjöunda, með myndum eftir Sigrúnu systur mína er á leið í prentun. Hún heitir Fuglaþrugl og nafla- krafl og kemur út í haust að viðhöfðu nafla- krafli.“ Barnaljóðabækur þínar hafa sannarlega ratað til barna, það hlýtur að gleðja þig. „Já, það hefur glatt mitt gamla hjarta ein- staklega mikið. Ég leyfi mér að trúa því að bækurnar hafi áhrif í þá átt að búa til ljóð- elska einstaklinga. Ljóð hafa mikla þörf fyrir ást og endurgjalda hana ríkulega.“ RÖDD ÞORSTEINS FRÁ HAMRI OG TURN Í HÖFÐATORGI KOMA VIÐ SÖGU Í NÝJU LJÓÐABÓKINNI Ljóð hafa þörf fyrir ást „Í þessum ljóðum slær vonandi oft og einatt saman orðum og hugsun á heillavænlegan hátt,“ segir Þórarinn Eldjárn sem á 40 ára rithöfundarafmæli í ár. Morgunblaðið/Kristinn ÞÓRARINN ELDJÁRN Á 40 ÁRA RITHÖFUNDARAFMÆLI OG SENDIR FRÁ SÉR NÝJA LJÓÐABÓK. LJÓÐABARNABÓK ER Á LEIÐINNI. Bækur voru stór þáttur í minni æsku því ég var svo lánsöm að alast upp á Ísafirði og þar var bókasafn og sundlaug í sama húsi svo ég byrjaði snemma að sækja mér bækur í heimlán. Fyrstu bækurnar sem höfðu áhrif á mig voru Palli var einn í heiminum og Lísa í Undralandi. Núna eru á náttborðinu bækur um blandað efni því mér finnst gott að grípa til smá- lestrar á hverju kvöldi. Hér er brot úr bunkanum: Saga Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík er ákaflega heillandi efni en bókin skannar sögu Iðnaðarmannafélagsins frá 1867 til 1967 Gunnarsæfingar um qi-gong sem er lífsmáti en Aflinn gaf bókina út fyrir jól. Þetta er bók sem allir ættu að eiga. Diana Vreeland, fædd í París 1903, sjálfsævisaga sem segir skemmtilega frá lífi háklassadömu í 50 ár og sviðið er London, París, New York og Mílanó. Transformed of Spectacular Living er nýjasta bók Judith og Bobs Wright sem eru góðir vinir frá Chicago. Heilsubók Jóhönnu – ákaflega áhugaverð bók með upplýsingum um hvernig bæta má líf sitt með réttu mataræði Siðfræði Níkomakkosar eftir Aristóteles, útgefið af hinu íslenska bókmenntafélagi. Tek þetta rit oft fram og undrast alltaf hvað tíminn hefur lítið breyst. Að lokum, þegar ég fer í ferðalög tek ég aðeins með mér spennusögur því ég á erfitt með að hætta þegar ég er byrjuð. Í UPPÁHALDI ELSA HARALDSDÓTTIR HÁRGREIÐSLUMEISTARI Elsa Haraldsdóttir er allt- af með bókabunka á nátt- borðinu og þar kennir sannarlega ýmissa grasa. Morgunblaðið/Árni Sæberg Aristóteles

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.