Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Qupperneq 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 27.04.2014, Qupperneq 64
SUNNUDAGUR 27. APRÍL 2014 Vagna Sólveig Vagnsdóttir, alþýðulistakona á Þingeyri, skorar á nýráðinn dagskrárstjóra Rásar 2, Frank Þóri Hall, að endurvekja Næturvaktina en þátturinn var lagður niður um síðustu áramót vegna niðurskurðar eftir að hafa verið eitt af flaggskipum rásarinnar um langt árabil. Vagna Sólveig hvetur Frank Þóri einnig til að endurráða sömu stjórnendur, Guðna Má Henn- ingsson og Inga Þór Ingibergsson. „Ég hef verið í sambandi við þá báða og veit að Guðni er til í tuskið. Ingi Þór er kominn í aðra vinnu en er tilbúinn að leysa Guðna Má af gerist þess þörf,“ segir Vagna Sólveig sem óskað hefur bréfleiðis eftir stuðningi útvarpsstjóra, Magnúsar Geirs Þórðarsonar, við málið. Í samtali við Sunnudagsblað Morgunblaðsins í des- ember lýsti Vagna Sólveig yfir því að hún myndi slökkva á Rás 2 og Rás 1 um áramótin yrði sú ákvörð- un að leggja Næturvaktina niður ekki endurskoðuð. Spurð hvort hún hafi staðið við þau orð er hún fljót til svars. „Að sjálfsögðu. Ég mun hvorki hlusta á Rás 2 né Rás 1 fyrr en Næturvaktin kemur aftur á dagskrá. Núna hlusta ég bara á Bylgjuna,“ segir Vagna Sólveig. Næturvaktin naut mikilla vinsælda og Vagna Sólveig hefur fundið fyrir góðum stuðningi við baráttu sína undanfarna mánuði. „Fólk er alltaf að hringja, spyrja frétta og hvetja mig til að halda baráttunni áfram. Það mun ég gera þangað til menn gera það eina rétta í stöðunni. Byrja aftur með Næturvaktina.“ Guðni Már Henningsson útvarpsmaður. VAGNA SÓLVEIG VAGNSDÓTTIR, ALÞÝÐULISTAKONA Á ÞINGEYRI Skorar á Frank Þ. Hall að endurvekja Næturvaktina Frank Þórir Hall, dagskrárstjóri Rásar 2. Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri. Vagna Sólveig Vagnsdóttir alþýðulistakona. Íraninn Abdollah Hosseinzadeh var aðeins 18 ára þegar hann var myrtur fyrir sjö árum. Morðinginn Balal var dæmdur fyrir morðið og í vikunni átti að taka hann af lífi fyrir ódæðið. Foreldrar og bróðir Hosseinzadeh áttu að framfylgja dómnum. Þegar Balal var kominn upp í gálgan, með snöruna vafða um hálsinn gerðist nokkuð sem enginn gat séð fyrir. Á síðustu stundu, rétt áður en faðir hins látna ætlaði að taka Balal af lífi, stöðvaði móðir Hosseinzadeh af- tökuna, gekk hröðum skrefum upp gálgann og löðrungaði Balal. Síðan tók hún snöruna af hálsinum á honum, fyrirgaf honum og þyrmdi þar með lífi hans. Móðir Balal grét af gleði meðal áhorfenda og lofaði góðverkið. Abolghani Hosseinza- deh, faðir hins myrta, sagði að kona sín hefði séð drenginn sinn í draumi. „Hann sagði henni að hann væri á góðum stað og vildi ekki að meira blóði væri spillt í sínu nafni.“ Það sem af er ári hafa yfir 100 fangar verið teknir af lífi í Íran en áætlað er að rúmlega 500 hafi ver- ið teknir af lífi í fyrra. Aðeins í Kína eru fleiri fangar teknir af lífi. FURÐUR VERALDAR Bjargaði morðingja sonar síns Frú Hosseinzadeh gefur Balal vænan kinnhest. Skömmu síðar fjarlægði hún snöruna af hálsinum og fyrirgaf honum fyrir að myrða son sinn. AFP ÞRÍFARAR VIKUNNAR LemúrTim Burton Leikstjóri Hugleikur Dagsson Listamaður Ótakmarkað fyrir alla fjölskylduna með RED Family Með RED Family fá allir í fjölskyldunni ótak- mörkuð símtöl og SMS óháð kerfi í alla farsíma og heimasíma á Íslandi. Allir samnýta gagnamagnið og fjölskyldan fær einn símreikning. Skiptu yfir í Vodafone RED á vodafone.is Vodafone Góð samskipti bæta lífið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.