Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Kvöldverður með
frambjóðendum
Dagana 21.–23. maí hefur þú tækifæri til að láta frambjóðendurna
Áslaugu Friðriksdóttur, Hildi Sverrisdóttur og Mörtu Guðjónsdóttur
bjóða þér í kvöldverð og spjall um framtíð Reykjavíkur.
Þátttakendafjöldi er takmarkaður, svo ef þú hefur áhuga, sendu
okkur nafn og símanúmer á netfangið hvotxd@gmail.com
HVÖT – félag sjálfstæðiskvenna í Reykjavík
Áslaug María Friðriksdóttir borgarfulltrúi
hefur verið talsmaður breytinga í
málefnum aldraðra og fatlaðra. Fólk
þarf að hafa meira val og biðlistar þurfa
að hverfa. Áslaug hefur einnig áhuga á
að nýta betur tækifærin í menningar- og
ferðamálum.
Hildur Sverrisdóttir borgarfulltrúi hefur
á kjörtímabilinu aðallega unnið að
umhverfis- og skipulagsmálum og meðal
annars beitt sér fyrir breytingum í búsetu-
og samgöngumálum.
Marta Guðjónsdóttir varborgarfulltrúi
hefur setið í skóla- og frístundaráði og
íþrótta- og tómstundaráði á kjörtímabilinu.
Áherslur hennar snúameðal annars að því
að byggja upp fyrsta flokks grunnskóla með
áherslu á val, fjölbreytni og árangur.
Kynntu þér málefnin á xdreykjavik.is
Gönguferðin þín er á utivist.is
Skoðaðu ferðir
á utivist.is
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Alls seldust 2.543 nýir bílar á fyrstu
fjórum mánuðum ársins og er það
ríflega 22% aukning frá fyrra ári.
Bílaumboðið BL seldi flesta bíla,
eða 567, og jók sölu sína um ríflega
54% frá því í fyrra. Er salan ein-
stakra umboða sýnd hér til hliðar.
Toyota er söluhæsta bílategundin
á þessu tímabili og tekur við keflinu
af Volkswagen frá sömu mánuðum
árið 2013. Athygli vekur að sala á
Nissban-bílum margfaldast, fer úr
48 bílum 2013 í 199 bíla í ár.
Það vekur einnig athygli að sala á
Mercedes-Benz eykst talsvert, fer úr
64 bílum í 99 bíla. Sala á BMW eykst
líka, fer úr 23 bílum í 30 bíla.
Sala á Audi dregst hins vegar
saman, fer úr 36 bílum í 32 bíla. Þá
minnkar sala á Jaguar Land Rover
limited, fer úr 17 bílum í 12 bíla.
Lúxusbílar í sókn
Má flokka þessar fjórar tegundir
sem lúxusbílategundir. Salan á þeim
eykst úr 140 bílum í 173 bíla og eykst
því um tæp 24%, eða svipað og sala
nýrra bíla almennt. Er hér ekki tekið
tillit til sölu á dýrari bílum af gerð-
inni Toyota, þar með talið Land
Cruiser, né er hér horft til sölu á
Lexus-bílum, sem eru lúxusmerki.
Til marks um verðlagningu lúxus-
bifreiða kosta nýir Mercedes-Benz
E-Class bílar frá 7,4 og upp í 26,6
milljónir, samkvæmt vef Öskju.
Bílaleigur keyptu 621 nýja bifreið
á fyrstu fjórum mánuðum síðasta árs
en 786 þessa mánuði í ár. Fer hlutur
þeirra úr 29,9% í 30,9% af heildar-
sölu nýrra bifreiða.
Sveiflur í sölu einstakra tegunda
milli ára geta verið miklar. Má þar
nefna að í ár seldust 54 nýir Peugeot-
bílar en 15 sömu mánuði í fyrra. Er
það hlutfallslega mesta aukningin, ef
frá er talin söluaukning á Nissan.
Sala á Dacia dregst mest saman,
fer úr 36 nýjum bílum 2013 í 21 nýjan
bíl í ár og er það tæplega 42% sam-
dráttur. Þá minnkar sala á Honda
talsvert, fer úr 114 nýjum bílum nið-
ur í 74 nýja bíla og minnkar um 35%.
Loks eykst salan í flokknum aðrar
tegundir úr 59 nýjum bílum í 108 bíla
og er það ríflega 83% aukning.
Hlutdeild bifreiða í þessum flokki
af heildarsölunni eykst líka, fer úr
2,8% árið 2013 í 4,2% árið 2014.
Sala nýrra bíla eykst
um fjórðung milli ára
Hlutur bílaleiga
óbreyttur Sala á
Benz tekur kipp
Sala nýrra bíla á fyrstu fjórum mánuðum ársins
Samanburður milli 2013 og 2014, nýir fólksbílar og sendibílar
Sala eftir bílaumboðum (heildarmarkaður með bílaleigubílum)
jan.-apr. 2014 borið saman við 2013
Sala eftir bíltegundum (heildarmarkaður með bílaleigubílum)
jan.-apr. 2014 borið saman við 2013
Sölusæti Bílaumboð Sala ‘14 Sala ‘13 Breyting Hlutdeild Hlutdeild
jan.-apr. jan.-apr. 2014 2013
1 BL 567 368 54,1% 22,3% 17,7%
2 Hekla 476 546 -12,8% 18,7% 26,3%
3 Brimborg 385 269 43,1% 15,1% 12,9%
4 Toyota / Lexus 379 250 51,6% 14,9% 12,0%
5 Askja 277 205 35,1% 10,9% 9,9%
6 Bílabúð Benna 203 199 2,0% 8,0% 9,6%
7 Bernhard 128 129 -0,8% 5,0% 6,2%
8 Suzuki 91 91 0,0% 3,6% 4,4%
9 Aðrir 37 22 68,2% 1,5% 1,1%
Alls 2.543 2.079 22,3% 100,0% 100,0%
Sölusæti Tegund Sala ‘14 Sala ‘13 Breyting Hlutdeild Hlutdeild
jan.-apr. jan.-apr. 2014 2013
1 Toyota 369 243 51,9% 14,5% 11,7%
2 Volkswagen 293 289 1,4% 11,5% 13,9%
3 Ford 231 125 84,8% 9,1% 6,0%
4 Nissan 199 48 314,6% 7,8% 2,3%
5 Chevrolet 195 197 -1,0% 7,7% 9,5%
6 Kia 178 141 26,2% 7,0% 6,8%
7 Skoda 145 211 -31,3% 5,7% 10,1%
8 Renault 120 78 53,8% 4,7% 3,8%
9 Mercedes-Benz 99 64 54,7% 3,9% 3,1%
10 Suzuki 91 91 0,0% 3,6% 4,4%
(Tegundir í 11.-22. sæti ekki sýndar)
Samtals 2.543 2.079 22,3% 100,0% 100,0%
Þar af bílaleigubílar 786 621
Hlutfall af heildarsölu 30,9% 29,9%
Heimild: Brimborg
Kristinn Ingi Jónsson
kij@mbl.is
Þegar FL Group hafði tryggt sér
yfirráð yfir Glitni í lok aprílmánaðar
árið 2007 tæplega tvöfölduðust útlán
bankans til Baugshópsins, en sem
dæmi fóru útlánin til Baugs og FL
Group yfir 40% af eiginfjárgrunni
bankans. Þetta sagði Ólafur Þór
Hauksson, sérstakur saksóknari, við
aðalmeðferð í Aurum-málinu svo-
nefnda í Héraðsdómi Reykjavíkur í
gær. Vísaði hann þar til skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis um fall
bankanna haustið 2008. Hann sagði
málið eiga sér fá fordæmi hér á landi
þegar kæmi að efnahagsbrotum.
Málflutningi lýkur í dag. Málið snýst
um sex milljarða króna lánveitingu
Glitnis banka til félagsins FS38 ehf. í
júlímánuði árið 2008. Lánið var veitt
til að fjármagna að fullu kaup FS38
á 25,7% hlut í Fons, eignarhalds-
félagi Pálma Haraldssonar, í Aurum
Holdings Limited og eru þeim Lár-
usi Welding, fyrrverandi banka-
stjóra Glitnis, Jóni Ásgeiri Jóhann-
essyni, einum aðaleiganda bankans,
Magnúsi Arnari Arngrímssyni, fyrr-
verandi framkvæmdastjóra fyrir-
tækjasviðs, og Bjarna Jóhannessyni,
fyrrverandi viðskiptastjóra Glitnis,
gefin að sök umboðssvik eða hlut-
deild í umboðssvikum vegna lánveit-
ingarinnar. Saksóknari sagði einnig
að útlán bankans til eignarhalds-
félagsins Fons, sem Pálmi Haralds-
son fór fyrir, hefðu aukist verulega
eftir að skipt var um forstjóra í
Glitni. Reyndar hefðu útlán bankans
til Baugshópsins svokallaða tvö-
faldast.
Inn á persónulegan reikning
Í munnlegum málflutningi sér-
staks saksóknara kom fram að Jón
Ásgeir hefði, í gegnum félög sem
hann, fjölskylda hans og viðskipta-
félagar áttu meirihluta í og stjórn-
uðu, ráðið yfir 40% af hlutafé Glitnis.
Honum hefði ekki getað dulist að
með sex milljarða fjárveitingunni
væru þeir Lárus og Magnús Arnar
að misnota stöðu sína og valda bank-
anum verulegri fjártjónshættu.
Einn milljarður af upphæðinni
hefði farið inn á persónulegan reikn-
ing Jóns Ásgeirs sem hann hefði
nýtt í eigin þágu, meðal annars til að
greiða um 705 milljóna króna yfir-
dráttarskuld sína hjá Glitni.
Farið er fram á sex ára fangelsi
yfir Lárusi og fjögurra ára fangelsi
yfir Jóni Ásgeiri, Magnúsi Arnari og
Bjarna.
Morgunblaðið/Golli
Aurum-málið Lögmenn ræða saman í héraðsdómi í gær. Sérstakur saksókn-
ari fer fram á sex ára og fjögurra ára fangelsi yfir sakborningum.
Útlán tvöfölduðust
við forstjóraskipti
Málflutningi í Aurum-málinu lýkur í dag
Undanfarin ár hefur Veiðimálastofnun rannsakað göngur laxaseiða til
sjávar í nokkrum ám hér á landi, m.a. í Kálfá sem er þverá Þjórsár. Göngu-
seiðagildra til veiða á seiðum var að þessu sinni sett niður þann 7. maí sl.
Laxagönguseiði komu strax fyrsta sólarhringinn, sem er óvenjusnemmt.
Hlýindi í vor eru líklega skýringin, en í fyrra var vorið mun kaldara og
hófst gangan þá ekki fyrr en 18. maí.
Rannsóknirnar eru liður í mati á stofnstærð laxa á vatnasvæði Þjórsár
sem unnin er í tengslum við fyrirhugaðar virkjanir í Neðri-Þjórsá og kost-
aðar eru af Landsvirkjun. Þær hófust árið 2012 og fyrstu merktu seiðin
skiluðu sér í fyrra. Þá komu 7,9% seiðanna til baka úr sjó, að því að greint
er frá á veidimal.is.
Hlýindi flýta för laxaseiða í Kálfá