Morgunblaðið - 16.05.2014, Side 22
SVIÐSLJÓS
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Konur eru í auknum mæli farnar að
óska eftir fyrirbyggjandi aðgerðum
við brjóstakrabbameini, eða svoköll-
uðu brjóstnámi. Kristján Skúli Ás-
geirsson, brjóstaskurðlæknir á
Landspítalanum, segir að konur séu
orðnar miklu betur upplýstar en áð-
ur og þær sem eigi sér fjölskyldu-
sögu sækist oft eftir því að fá erfða-
ráðgjöf þar sem kemur í ljós hvort
þær eru með arfgenga stökkbreyt-
ingu í genum sem getur aukið lík-
urnar á brjóstakrabbameini. Þær
konur sæki oft eftir því að láta fjar-
lægja á sér bæði brjóstin en lang-
tímahorfur þeirra kunna að verða
betri ef þær fara í slíka aðgerð.
4 til 5 konur á ári í aðgerð
Erfðaráðgjöfin tók til starfa hér á
landi með skipulögðum hætti seinni-
part árs 2006. Frá ársbyrjun 2007 og
til dagsins í dag hafa 114 heilbrigðar
konur greinst með stökkbreytingu
og hafa 28 þeirra greinst á síðustu
tveimur árum. Í lok þessa árs verða
um 43% þeirra búin að fara í fyrir-
byggjandi brjóstnám. „Frá 2007 til
dagsins í dag hafa tíu konur farið í
fyrirbyggjandi aðgerðir en helm-
ingur þeirra fór á síðustu tveimur ár-
um. Fyrir lok þess árs verða tólf kon-
ur búnar að fara í fyrirbyggjandi
brjóstnám sem sýnir að þetta eru
mjög vaxandi aðgerðir. Núna eru sjö
konur á biðlista eftir brjóstnámi í
fyrirbyggjandi skyni,“ segir Krist-
ján.
„Inni í þessum tölum eru ekki þær
konur sem fengu brjóstakrabba-
mein án þess að vita af því að þær
væru með stökkbreytinguna. Í kjöl-
farið á krabbameininu fara þær í
erfðaráðgjöf, þar kemur í ljós að
þær eru með stökkbreytinguna og
þá biðja sumar þeirra um fyrir-
byggjandi aðgerð á hinu brjóstinu.
Þetta er viðbótarhópur. Ef maður
tekur bæði þessar tíu heilbrigðu
konur sem hafa farið í brjóstnám og
svo þær sem hafa látið taka af sér
brjóst því þær fengu krabbamein í
hitt eru þetta á síðustu sjö árum 27
konur. Það eru þannig fjórar til
fimm konur á ári sem hafa farið í
fyrirbyggjandi brjóstnámsaðgerð
hér á landi undanfarin sjö ár.“
Meðalaldur þeirra kvenna sem
hafa farið í fyrirbyggjandi brjóstnám
á síðustu árum hér á landi er 43 ár,
en þær eru frá 33 ára og upp í 55 ára.
80% áhætta á krabbameini
Talið er að um 1.200 íslenskar kon-
ur geti verið með stökkbreytta
krabbameinsgenið, samkvæmt gögn-
um Íslenskrar erfðagreiningar. Þær
konur eru í sex- til áttfaldri hættu
m.v. venjulega konu á að fá brjósta-
krabbamein. 11% kvenna fá brjósta-
krabbamein einhvern tímann á æv-
inni en áhætta þeirra sem eru með
stökkbreytinguna er 60% til 80%, að
sögn Kristjáns.
Konur fara ekki beint í brjóst-
námsaðgerð ef þær greinast með
stökkbreytinguna. Flestar byrja á
myndgreiningareftirliti en þeim er
gefinn kostur á að mæta í segulóm-
skoðun og röntgenmyndatöku á
brjóstum til skiptis á hálfs árs fresti.
Á sama tíma hefst umræða og
fræðsla um gildi fyrirbyggjandi
skurðaðgerða. „Ákveðið ferli fer
þannig snemma af stað en frá því
þær eru búnar að ákveða að fara í að-
gerð og þar til hún á sér stað geta lið-
ið eitt til tvö ár. Þessar aðgerðir eru
ekki gerðar nema eftir nokkuð lang-
an undirbúnings- og fræðslutíma,“
segir Kristján og bætir við að
ákvarðanataka kvennanna litist oft af
því að nákomnir fjölskyldumeðlimir
hafa fengið brjóstakrabbamein eða
jafnvel dáið úr sjúkdómnum.
Um síðustu helgi var haldin í
Hörpu alþjóðleg ráðstefna brjósta-
skurðlækna sem fjallaði um fyrir-
byggjandi meðferðir við ættgengu
brjóstakrabbameini. Um 120 ráð-
stefnugestir sóttu fundinn, og voru
framkvæmdar brjóstnámsaðgerðir í
beinni útsendingu og íslenskar kon-
ur, sem farið höfðu í fyrirbyggjandi
brjóstnám, sögðu frá reynslu sinni.
Bætir horfur kvennanna
Kristján segir að það hafi komið
fram á ráðstefnunni að niðurstöður
nýrra rannsókna með löngum eftir-
fylgnitíma sýni fram á að fyrirbyggj-
andi brjóstnám minnki ekki bara
hættuna á að fá sjúkdóminn heldur
geti líka bætt horfur kvennanna. „Til
þessa hefur verið um það deilt hvort
þessar aðgerðir bæti horfurnar, en
þessar rannsóknir virðast einmitt
sýna fram á það. Þetta er það sem er
að koma í ljós núna á síðustu árum og
m.a. ástæðan fyrir því að eftirspurn-
in eftir aðgerðum er að vaxa og við í
vaxandi mæli að bjóða upp á þær,“
segir Kristján að lokum og bætir við
að hann búist við því að brjóstnáms-
aðgerðum muni fjölga nokkuð á
næstu árum.
Fleiri konur biðja um brjóstnám
Tíu konur hafa farið í brjóstnám hér á landi frá 2007 og nú eru sjö konur á biðlista Bætir lífsgæði
þeirra sem eru í meiri áhættu á að fá brjóstakrabbamein vegna arfgengrar stökkbreytingar í genum
Morgunblaðið/Golli
Læknir Kristján Skúli Ásgeirsson brjóstaskurðlæknir segir fleiri konur
óska orðið eftir því að komast í fyrirbyggjandi brjóstnámsaðgerð.
Brjóstnám
» Um 1.200 íslenskar konur
gætu verið með stökkbreytta
krabbameinsgenið, samkvæmt
gögnum Íslenskrar erfðagrein-
ingar.
» Þær konur eru í sex- til átt-
faldri hættu m.v. venjulega
konu á að fá brjóstakrabba-
mein.
» „Það er klárt að fyrirbyggj-
andi aðgerðir minnka áhætt-
una á að fá sjúkdóminn.“
www.utkall.is
ÚTKALL
Í ÞÁGU VÍSINDA
ÞESSA DAGANA ERU
BJÖRGUNARSVEITIRNAR
AÐ GANGA Í HÚS
Þær sækja tilbúin skilaumslög til
þeirra sem ákveða að taka þátt.
Umslögin má einnig setja
ófrímerkt í póst.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Langflestar þeirra kvenna sem greinast með brjóstakrabbamein
læknast af sjúkdómnum. „Með vaxandi tíðni fyrirbyggjandi brjóstnáma
verða fleiri konur sem fá ekki brjóstakrabbamein í framtíðinni. Þeir
brjóstaskurðlæknar, sem eru að bjóða upp á og framkvæma þessar að-
gerðir, eru að fást við margar siðferðislegar spurningar. t.d. hvert er
gildi þess að fyrirbyggja sjúkdóm sem er langoftast læknanlegur? Hvað
þýðingu hefur það að gera stórar aðgerðir á konum sem eru algjörlega
heilbrigðar og hugsanlega að gera aðgerðir á konum sem myndu aldrei
fá sjúkdóminn? Það er alveg ljóst að takmarkið með þessum aðgerðum
er að minnka líkur þessara kvenna á því að fá brjóstakrabbamein og
væntanlega bæta horfur sumra en ekki síst snýst þetta um það að bæta
lífsgæði þeirra þannig að þær geti haldið áfram með sitt líf án þess að
þurfa stöðugt að hafa áhyggjur af því að fá sjúkdóminn. Þannig er þetta
starf ákaflega vandasamt og sérhæft og mikilvægt að sérhæft teymi
vinni að þessu svo útkoman verði góð. Á undanförnum árum hefur slíkt
sérhæft teymi myndast utan um þessa starfsemi á Landspítalanum,
enda líklegt að þessum aðgerðum muni fjölga á næstu árum,“ segir
Kristján.
Langoftast læknanlegt
BRJÓSTAKRABBAMEIN
Tilboðsverð
23.896,-
Tilboðsverð
12.792,- Ti
lboðsverð
31.992,-
Tilboðsverð
29.592,-
Samstarfsaðilar um land allt. Kaupfélag Borgfirðinga, Veiðiflugan á Reyðarfirði, SR Byggingavörur á Siglufirði.
Tilboðsverð
18.392,-
Tilboðsverð
23.920,-
VOR
SPREN
GJA
Tilboðsverð
14.320,-
Tilboðsverð
39.192,-
Tilboðsverð
47.992,-
Við fögnum sumrinu og bjóðum allar
vörur með 20% afslætti
Nú geta allir fengið
iPad-áskrift
Skráðu þig í iPad-áskrift á
www.mbl.is/mogginn/ipad/