Morgunblaðið - 16.05.2014, Blaðsíða 44
SKOÐANAKÖNNUN
HAFNARFJÖRÐUR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
BAKSVIÐ
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Meirihluti Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna í Hafnarfirði er fall-
inn samkvæmt nýrri skoðanakönnun
sem Félagsvísindastofnun Háskóla
Íslands hefur gert fyrir Morgun-
blaðið á fylgi flokka í bænum. Sam-
fylkingin tapar tveimur af fimm
fulltrúum sínum í bæjarstjórninni.
Sjálfstæðisflokkurinn tapar einum
manni. Björt framtíð vinnur tvo og
Píratar einn. Vinstri græn halda sín-
um fulltrúa.
Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti
flokkurinn í Hafnarfirði, en fylgið er
á niðurleið. Það mælist 31,2% af
þeim sem afstöðu taka. Það er tals-
vert minna en í kosningunum fyrir
fjórum árum þegar flokkurinn fékk
37,2% atkvæða og fimm menn
kjörna. Þetta er einnig minna fylgi
en í könnun Félagsvísindastofnunar
í mars þegar flokkurinn mældist
með 37,2% fylgi.
Mikið tap Samfylkingarinnar
Fylgi Samfylkingarinnar í könn-
uninni er 24%. Hún fengi þrjá bæj-
arfulltrúa. Í kosningunum 2010 var
flokkurinn með 40,1% atkvæða og
fimm menn. Í könnuninni í mars var
Samfylkingin með 20,9% þannig að
fylgið hefur aukist.
Björt framtíð fylgir fast á hæla
Samfylkingarinnar. Hún er með
20,4% fylgi og fengi tvo bæjarfull-
trúa. Flokkurinn hefur ekki áður
boðið fram til sveitarstjórnar. Í síð-
ustu könnun var hann með 15,3%
fylgi í Hafnarfirði.
Vinstri græn rétta nægilega úr
kútnum til að ná áfram einum full-
trúa í bæjarstjórn. Fylgið er 8,2% en
var 14,6% í kosningunum 2010. Í síð-
ustu tveimur könnunum hefur
fulltrúi þeirra verið úti. Það er bæj-
arstjórinn í Hafnarfirði, Guðrún
Ágústa Guðmundsdóttir, sem er
oddviti listans.
Píratar njóta álíka fylgis í Hafnar-
firði og VG. Það er 8,1% sem gefur
einn fulltrúa í bæjarstjórn. Píratar
hafa ekki áður boðið fram til sveitar-
stjórnar.
Framsóknarflokkurinn hefur 7,1%
fylgi, svipað og í kosningunum 2010,
og það dugar ekki nú frekar en þá
fyrir manni.
Af heildinni kváðust 17,4% ekki
hafa gert upp hug sinn til framboðs-
listanna.
Könnunin var gerð dagana 5. til
11. maí. Spurt var: Ef sveitarstjórn-
arkosningar væru haldnar á morgun,
hvaða flokk eða lista myndir þú
kjósa? Tvær leiðir voru notaðar til að
ná til kjósenda. Annars vegar var
hringt í 220 manna tilviljunarúrtak
úr þjóðskrá meðal fólks á aldrinum
18 ára og eldri. Hins vegar var send
netkönnun til 380 manna úrtaks úr
netpanel Félagsvísindastofnunar.
Alls fékkst 421 svar frá svarendum á
aldrinum 18 til 90 ára og var svar-
hlutfall 72%. Vigtaður svarendafjöldi
var sömuleiðis 421.
Talsverður munur er á stuðningi
við suma flokkana eftir kynferði.
Samfylkinguna styðja 32% kvenna
en 17% karla. Þessu er öfugt farið
hjá sjálfstæðismönnum og Pírötum
þar sem karlar eru mun fleiri meðal
fylgismanna.
Fáir ungir styðja VG
Meðal aldurshópa er áberandi hve
lítið af ungu fólki styður Vinstri
græn. Meðal yngstu kjósendanna í
Samfylkingin tapar tveimur
Ný könnun á fylgi flokka í Hafnarfirði Meirihlutinn í bæjarstjórn fallinn Björt framtíð vinnur
tvo bæjarfulltrúa og Píratar einn Sjálfstæðisflokkurinn tapar manni VG heldur sínum fulltrúa
Píra
tar
Fylgi stjórnmálaflokka í Hafnarfirði
samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 5.-12. maí 2014
vegna sveitarstjórnarkosninga 31. maí
Bjö
rt f
ram
tíð
?
Ann
að
Sam
fylk
ing
Vin
stri
-græ
n
Fra
ms
ókn
arfl
.
Sjá
lfst
æð
isfl.
Fjöldi bæjarfulltrúa,
eftir síðustu kosningar.
Fjöldi bæjarfulltrúa, væri
gengið til kosninga nú.
Niðurstöður kosninga 2010 Fylgi skv. könnun 18.-23. feb. Fylgi skv. könnun 5.-12. maíFylgi skv. könnun 6.-25 nóv 2013
Svör alls: 421 Svarhlutfall: 72%
Nefndu einhvern flokk: 307
Veit ekki: 73 Skila auðu/ógildu: 18
Ætla ekki að kjósa: 14 Vilja ekki svara: 9
37
,2
%
33
,6
% 37
,7
% 40
,9
%
24
,2
%
20
,9
%
19
,2
%
15
,3
%
7,3
%
7,9
% 9,
7%
6,
4% 9
,5
%
14
,6
%
6,
0% 6,
3%
2,
6%
0,
6%
31,6%
24,0%
20,4%
8,2% 8,1% 7,1%
0,6%
5 4 14 3 2 1 1
Fylgi flokka eftir því hvað var kosið síðast (2010)
Fra
ms
ókn
arfl
.
Kýs nú:
Kaus þá:
Vin
stri
-græ
n
Sam
fylk
ing
Sjá
lfst
æð
isfl.
Ann
an
flok
k
eða
fram
b.
?
Björt framtíð Framsóknarflokkur Sjálfstæðisflokkur Samfylking Vinstri-græn Píratar
Flokkur ef kosið yrði á morgun til Alþingis
Myndi
kjósa í
sveitar-
stjórn:
Samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið 5.-12. maí 2014.
Fra
ms
ókn
arfl
.
Myndi
kjósa á
Alþingi:
Sjá
lfst
æð
isfl.
Bjö
rt f
ram
tíð
Sam
fylk
ing
Vin
stri
-græ
n
11% 10%
24% 27%
4%
8%
62%
3%
3% 3%
12%
54%
1%
5%
1% 1%
81%
8%
81%
70% 70%
3% 7% 12%
28%
18%
11%
43%
4%
3%
4%
2%
4%
4%
77%
84%93%
18%
4%
7%
4% 2%
21%
3% 5%
Morgunblaðið/Kristinn
Hafnarfjörður Rósa Guðbjartsdóttir, oddviti sjálfstæðismanna (í miðið) þungt hugsi á bæjarstjórnarfundi.
Hafnarfjörður er stundum
kallaður „kratabærinn.“. Þar
lifir bærinn á fornri frægð. Al-
þýðuflokkurinn sálugi varð
snemma sterkur í Hafnarfirði
og um árabil á öldinni sem leið
var hann með hreinan meiri-
hluta í bæjarstjórn. Nafnið fékk
Hafnarfjörður líka af því að þar
var fyrr en víðast hvar annars
staðar gripið til ýmissa félags-
legra úrræða í málaflokkum
bæjarfélagsins. Þannig stofn-
uðu Hafnfirðingar fyrstu bæjar-
útgerðina á Íslandi í upphafi
heimskreppunnar til að vinna
gegn atvinnuleysi.
En þótt jafnaðarmenn hafi
oft fengið góða kosningu í
Hafnarfirði hafa aðrir flokkar
einnig risið til mikilla áhrifa
þar, einkum Sjálfstæðisflokk-
urinn og á tíma framboðslisti
óháðra borgara. Alþýðuflokk-
urinn missti hreinan meirihluta
í bæjarstjórninni þegar árið
1954 og endurheimti hann ekki
aftur fyrr en 1990. Tapaði hon-
um aftur í lok þess kjörtíma-
bils, en síðan var arftaki hans,
Samfylkingin, ein við völd í
bænum á árunum 2002 til
2010. Síðustu fjögur árin hefur
Samfylkingin verið í meirihluta-
samstarfi með Vinstri grænum.
Sjálfstæðismenn hafa einnig
lengi verið sterkir í Hafnarfirði.
Á viðreisnarárunum, þegar
mörgum þótti skilin á milli Al-
þýðuflokksins og Sjálfstæð-
isflokksins orðin óglögg, urðu
sjálfstæðismenn stærsti flokk-
urinn í bænum. Þeir fengu fjóra
af sjö bæjarfulltrúum árið 1962
og tóku upp meirihluta-
samstarf við framsóknarmenn.
Þeir hafa þó aldrei náð hrein-
um meirihluta í bæjarstjórn-
inni.
Hafnarfjörð-
ur lifir á
fornri frægð
sem „krata-
bærinn“