Morgunblaðið - 16.05.2014, Qupperneq 45
Ný könnun Félagsvísindastofnunar Há-
skóla Íslands fyrir Morgunblaðið á fylgi
flokka í Hafnarfirði sýnir að meirihluti Samfylkingarinnar og Vinstri grænna í bæjarstjórninni er fallinn. Sam-
fylkingin tapar tveimur fulltrúum. VG heldur sínum manni. Björt framtíð fær tvo menn kjörna og Píratar einn.
Hvorugur flokkanna hefur áður boðið fram til sveitarstjórnar. Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn í
Hafnarfirði en tapar einum bæjarfulltrúa frá síðustu kosningum.
SVEITARSTJÓRNARKOSNINGAR
Hafnarfirði, fólks á aldrinum 18 til 29
ára, nýtur flokkurinn aðeins stuðn-
ings 3% kjósenda. Aftur á móti er
fylgi flokksins meðal elstu kjósend-
anna, 60 ára og eldri, 14%. Píratar
njóta aftur á móti meiri stuðnings
meðal yngstu kjósendanna en með-
alfylgi þeirra er.
Lítil aðgreining er á milli flokka
eftir menntun kjósenda. Tekjur spil-
ar hins vegar inn í. Meðal þeirra sem
hæstu launin hafa, 600 þúsund krón-
ur eða meira á mánuði, er fylgi við
Sjálfstæðisflokkinn 44%.
Fjórðungur þeirra sem ætla að
kjósa Bjarta framtíð kaus Samfylk-
inguna árið 2010. Litlu fleiri, 27%,
kusu Vinstri græn og 10% Sjálfstæð-
isflokkinn. 12% þeirra sem kusu
Samfylkinguna síðast ætla núna að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
Jafnaðarmenn hafa lengi verið
sterkir í Hafnarfirði. Frá 2002 til
2010 var Samfylkingin með hreinan
meirihluta í bæjarstjórninni. Eftir
nokkurt tap í kosningunum vorið
2010 varð flokkurinn að láta bæj-
arstjórastólinn af hendi Vinstri
grænna til þess að skapa grundvöll
fyrir meirihlutasamstarfi. Nú virðist
flokkurinn vera að lenda í sögulegri
lægð í bænum sem helst er hægt að
líkja við erfiðleikaár Alþýðuflokksins
1962 til 1986 þegar hann var lengst
af með aðeins tvo bæjarfulltrúa.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
„Við í Samfylkingunni
finnum að landið er að
rísa og bæjarbúar kunna
að meta þá ábyrgð
reynslu og skýru fram-
tíðarsýn sem við stönd-
um fyrir. Við ætlum að
sækja fjórða manninn.
Það er okkar markmið,“
sagði Gunnar Axel Ax-
elsson, oddviti Samfylk-
ingarinnar, þegar Morg-
unblaðið leitaði álits
hans á niðurstöðum
könnunar Félagsvís-
indastofnunar á fylgi
flokka í Hafnarfirði.
„Þetta staðfestir að
Hafnfirðingar vilja
breytingar á stjórn bæjarins. Það er
ánægjulegt að Sjálfstæðisflokkurinn
er að mælast langstærsti flokk-
urinn. En fylgið er greinilega á mik-
illi hreyfingu. Við sjálfstæðismenn
munum gefa í núna,“ sagði Rósa
Guðbjartsdóttir, oddviti Sjálfstæð-
isflokksins.
Stutt barátta og snörp
„Þetta verður óskaplega spenn-
andi vor. Við sem erum í pólitík eig-
um engin atkvæði. Það eina sem við
getum gert er að vinna vel og leggja
verk okkar í dóm kjósenda og von-
ast til að verða metin að verðleikum.
Þetta er hinn nýi veruleiki í stjórn-
málunum,“ sagði Guðrún Ágústa
Guðmundsdóttir, bæjarstjóri og
oddviti Vinstri grænna. Guðrún
sagðist heyra það á fólki að því
fyndist kosningabaráttan ekki farin
af stað. Líklega yrði þetta stutt bar-
átta og snörp.
Samvinnu þvert á flokka
„Við höfum fundið það síðan
kosningamiðstöð okkar var opnuð
og við fórum að fara út meðal bæj-
arbúa að það er mjög góð stemning
fyrir okkar framboði í bænum. Við
mætum hvarvetna gleði og velvild,“
sagði Guðlaug Kristjánsdóttir, odd-
viti Bjartrar framtíðar.
Guðlaug sagði að í síðustu kosn-
ingum hefði þátttaka verið í sögu-
legu lágmarki og margir skilað
auðu. „Það hefur verið mikil löngum
eftir breytingum. Við erum í þeim
hópi sem vill sjá fleiri valkosti.“
Guðlaug sagði að Björt framtíð legði
áherslu á samvinnu þvert á flokka
og væri reiðubúin til samstarfs við
alla sem vildu koma upp úr skot-
gröfunum og vinna að langtíma-
stefnu fyrir bæinn.
Opna bókhaldið
„Það er jákvætt að vera með
mann inni,“ sagði Brynjar Guðna-
son, oddviti Pírata. Hann sagði að
Píratar hefðu ekki mótað stefnu um
það hvernig staðið yrði að myndun
meirihluta. „En við myndum setja
það á oddinn að opna bókhaldið og
öll gögn í kerfinu,“ sagði hann.
„Hafnfirðingar vilja breytingar“
„Við ætlum að sæka fjórða manninn“ „Óskaplega spennandi vor“
Gunnar Axel
Axelsson
Guðlaug
Kristjánsdóttir
Guðrún Ágústa
Guðmundsdóttir
Rósa
Guðbjartsdóttir
Brynjar
Guðnason
Mosfellsbær
Á morgun