Morgunblaðið - 16.05.2014, Side 46
46 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupsverslunum
(Smáralind og Spönginni) og Fjarðarkaupum.
Er á Facebook
Græðandi og
slakandi
Ég var með slæmt sár í fimm mánuði eftir skurðaðgerð og búin að reyna
allskonar krem og smyrsl. Sárasmyrslið hennar Önnu Rósu gerði kraftaverk
og sárið greri á einni viku. Svo er það líka gott á sprungur, útbrot og
þurrkbletti. Slakandi olían er góð fyrir húðina og himnesk í baðið!
– Lena Lenharðsdóttir
www.annarosa.is
Sáramyrslið græðir sár og
sprungur og hefur líka gefist
afar vel við kláða, frunsum,
sveppasýkingum og bleiuútbrotum.
Slakandi olían
hefur róandi áhrif
og er frábær nudd-
Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn@heyrn.isHEYRNARÞJÓNUSTA
Pantaðu tíma í
heyrnargreiningu og fáðu
heyrnartæki til reynslu
ReSound LiNXTM eru fyrstu heyrn-
artækin sem tengjast þráðlaust beint
við snjalltæki s.s. síma, spjaldtölvur
og spilara.
Auk þess að vera mjög fullkomin
heyrnartæki eru þau heyrnartól fyrir
snjalltæki. Með þeim opnast endalausir
möguleikar að streyma samtölum úr
síma og tónlist eða öðrum tegundum
hágæðahljóða beint í heyrnartækin úr
snjalltækjunum.
Ný hönnun gerir þér kleift að fela
ReSound LiNXTM ef þú vilt, eða
monta þig af þeim ef þú vilt það frekar.
Þau eru fíngerð, þunn og fást í
10 mismunandi litum og tveimur
gæðaflokkum.
Fyrstu snjallheyrnartækin
Tímapantanir 534-9600
Heimasíða www.heyrn.is
Stekkur fjárfest-
ingarfélag hefur
eignast meiri-
hluta í Securitas,
en fyrir átti félag-
ið þriðjungshlut.
Stekkur er í eigu
Kristins Að-
alsteinssonar, en
meðal annarra
fjárfestinga
Stekks er eign-
arhlutur í Límtré Vírneti. Fram-
takssjóðurinn Edda, sem er í rekstri
hjá Virðingu, hefur auk þess keypt
40% hlut í Securitas. Seljendur hlut-
anna eru fagfjárfestasjóðirnir Norð-
urljós og AUÐUR I. Lykilstjórn-
endur Securitas verða áfram í
hluthafahópi félagsins. „Það er mik-
ilvægt fyrir Securitas að nýir hlut-
hafar þekkja félagið vel og deila
framtíðarsýn með stjórnendum fé-
lagsins,“ segir Guðmundur Arason,
forstjóri Securitas, í tilkynningu.
Guðmundur
Arason
Breytingar í
hluthafahópi
Securitas
Helgi Vífill Júlíusson
helgivifill@mbl.is
Hlutabréfaeign í HB Granda hafði
langmest að segja um að fjárfesting-
artekjur TM hafa aukist mikið á milli
ára, segir Sigurður Viðarsson for-
stjóri. Þetta kom fram á afkomufundi
í gær. TM hefur lengi átt hlut í HB
Granda, en bókfært virði í bókum TM
hækkaði í kjölfar skráningar útgerð-
arinnar á Aðalmarkað Kauphallarinn-
ar fyrir skömmu.
Hagnaður TM var 700 milljónir
króna á fyrsta fjórðungi og jókst um
34% á milli ára. Aukningin skýrist
fyrst og fremst af fjárfestingarstarf-
semi. Fjárfestingartekjur námu 741
milljón króna á fjórðungnum, en voru
469 milljónir á sama tíma fyrir ári.
HB Grandi er stærsta fjárfestingar-
eign TM og var eignin metin á 2,7
milljarða í bókum félagsins. Matið er
byggt á skráningargengi útgerðar-
innar, auk þess sem tekið var tillit til
arðgreiðslu á öðrum fjórðungi.
Eigin iðgjöld drógust saman um
4,5% á milli ára. Sigurður sagði að það
mætti m.a. rekja til þess að TM hefði
misst stóra viðskiptavini vegna þess
að keppinautar buðu betra verð,
vegna viðskiptaafsláttar og að félagið
tryggði margar útgerðir. Sökum
brælu hefðu skip verið mikið við
bryggju og greitt þar af leiðandi
minni tryggingar.
Hann sagði að sókn TM erlendis,
sem byggist á samstarfi við erlenda
vátryggingarmiðlara, hefði gengið
eftir áætlun. Samdrátturinn í tekjum
væri hér á landi. Sóknin erlendis
byggist á að því að félagið er með
styrkleikamatið BBB- frá matsfyrir-
tækinu Standard & Poor’s.
Aðspurður á fundinum um hindr-
anir í vegi fyrir vexti erlendis sagði
Sigurður að TM væri íslenskt og nær
óþekkt erlendis. Styrkleikamatið
BBB- gæfi TM færi á að keppa er-
lendis en það jafnaðist ekki á við það
besta. Hann sagði að TM hefði t.d.
misst viðskiptavin þegar hann var
endurfjármagnaður því nýi viðskipta-
bankinn vildi að fyrirtækið væri
tryggt hjá félagi með betra styrk-
leikamat.
Rekstur TM nýtur góðs af
skráningu HB Granda
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samdráttur Eigin iðgjöld TM drógust saman um 4,5% á milli ára.
Bræla og hörð
samkeppni dregur
úr tekjum TM
Af átta stórum bæjum á landsbyggð-
inni hefur fasteignaverð hækkað
langmest í Vestmannaeyjum á síð-
ustu fimm árum. Frá seinni hluta árs
2008 fram til fjórða ársfjórðungs
2013 hækkaði verðið um rúmlega
60% í Eyjum og þar á eftir á Ísafirði
um u.þ.b. 35%.
Á sama tíma hefur verð lækkað á
tveimur stöðum, í Árborg um 10,2%
og í Reykjanesbæ um 4,7%. Það er
því um 70% munur á breytingu fast-
eignaverðs í þessum bæjum á fimm
ára tímabili. Þetta kemur fram í
nýrri úttekt Hagfræðideildar
Landsbankans.
Akureyri eins og
höfuðborgarsvæðið
Á miðvikudaginn birti Hagfræði-
deildin aðra úttekt þar sem fram
kom að fasteignaverð á Akureyri
hefði hækkað með áþekkum hætti og
á höfuðborgarsvæðinu síðustu ár.
Hagfræðideild Landsbankans hef-
ur áður bent á það að svo virðist sem
fasteignaverð hafi hækkað meira en
ella í þeim bæjum sem tengjast sjáv-
arútvegi hvað mest. Kaupmáttur, at-
vinnu- og tekjustig hafi jafnan mikil
áhrif á fasteignaverð.
Framboð skipti líka máli. Árborg
og Reykjanesbær voru meðal þeirra
bæja þar sem mest hafi verið byggt
fyrir hrun. „Þessar niðurstöður
benda til þess að mikið framboð
íbúða hafi haldið aftur af hækkunum
fasteignaverðs. Þá má líka ætla að
báðir þessir þættir skipti máli í Vest-
mannaeyjum, en þar við kann að
bætast að byggingarland sé meira
takmarkað í Vestmannaeyjum. At-
vinnu- og tekjustig er gott og skort-
ur hefur verið á húsnæði. Niðurstað-
an er því miklar verðhækkanir,“
segir Hagfræðideild Landsbankans.
helgivifill@mbl.is
70% munur á
fasteignaverði
Landsbyggðin þróast með ólíkum hætti
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eyjar Fasteignaverð í Eyjum hefur
hækkað um 60% á fimm árum.