Morgunblaðið - 16.05.2014, Side 60
60 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
DÚKAR OG SERVÍETTUR
Mikið úrval af
fallegum dúkum og
servíettum í ýmsum
stærðum og gerðum
Lítið við ogskoðið úrvalið
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
Sími 588 5900 ▪ alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
Beis eða hvítur dúkur
Verð frá kr. 4.190
teg. Polyester
Stærðir: 150x220,
150x250, 150x300,
150x320
Hvítur dúkur
Verð frá kr. 4.690
teg. Polyester
Stærðir: 150x220,
150x250, 150x300
Hvítar servíettur
teg. Polyester
6 stk. í pakka
kr. 1.800
Blúnda ásamt
undirdúk,
2 saman í kassa.
Verð frá kr. 7.650
teg. Polyester
Stærðir: 160x220,
160x250, 160x300
Drapplitaður
hördúkur
með servíettum.
Verð frá kr. 9.200
Stærð 160x230,
160x280
Upp með orkuna!
FOCUS
Á góðu verði á næsta sölustað:
Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin og apótek um land allt
Svalandi, kraftmikill og bragðgóður drykkur
– frábær þegar þig vantar aukna orku og einbeitingu
15 freyðitöflur í stauk ...
skellt út í vatn þegar þér hentar !
4Inniheldur koffín, guarana og ginseng
4Enginn sykur - engin fita
450 mg Magnesium og aðeins 2 hitaeiningar
og 0.5g kolvetni í 100 ml.
Í nýju aðalskipulagi
vinstrimeirihluta Dags
B. Eggertssonar í
Reykjavík er gert ráð
fyrir blokkarbyggð þar
sem nú eru trjáreitir
norðan Suðurlands-
brautar, sjá meðfylgj-
andi mynd, en á sama
tíma eru uppi ráða-
gerðir um að Suður-
landsbraut verði
þrengd í eina akrein í
hvora átt. Hvað sem líður skoð-
unum fólks á „þéttingu byggðar“ er
afar varhugavert að skerða fram-
tíðar íþrótta- og útivistarsvæði
borgarbúa.
Allt frá því í borgarstjóratíð
Gunnars Thoroddsen hefur verið
unnið markvisst að því að efla
Laugardalinn sem íþrótta- og
útivistarsvæði. Um þetta var sátt
allra flokka þar til vinstrimeirihlut-
inn 1978-1982 setti fram hugmyndir
sínar um að þrengja
að dalnum. Og síðar
beit R-listinn sálugi
höfuðið af skömminni
og hugðist heimila
byggingu skrif-
stofublokkar og gríð-
arstórs spilasalar í
Laugardal. Borg-
arbúar hrundu þessum
atlögum að útivist-
arsvæði sínu og höfðu
til þess stuðnings sjálf-
stæðismanna. Hins
vegar hefur Sogamýrin
verið skert verulega,
en áður var gert ráð fyrir einu sam-
hangandi útivistarsvæði frá Laug-
ardal og inn að Elliðaám.
Útivistar- og íþróttasvæðin í
Laugardal eru aðgengileg öllum
borgarbúum og mikil lífsgæði í því
fólgin að búa við græn svæði. Nefna
má Berlín sem dæmi, þar sem
grænir garðar eru alltumlykjandi til
mikils yndis fyrir íbúa jafnt sem
gesti. Laugardalurinn er aðal-
íþróttasvæði borgarinnar og mun
verða um ókomin ár. Mikilvægt er
að skerða ekki mögulega uppbygg-
ingu íþróttamannvirkja til fram-
tíðar á þessu svæði. Að sama skapi
má telja líklegt að borgarbúar muni
brátt vilja stækka fjölskyldugarðinn
eða lystigarðinn og því brýnt að
ekki hafi áður verið gengið of nærri
dalnum.
Trjágróðurinn veitir okkur skjól
og er borgarbúum til yndis og
ánægju. Blokkarbyggð vinstrimeiri-
hlutans norðan megin Suðurlands-
brautar yrði sannkallað umhverfis-
slys.
Blokkirnar munu mynda vegg
sem lokar fyrir útsýni til norðurs,
ekki ósvipað því þegar ekið er Sæ-
braut meðfram Sundahöfn, þar sem
vöruskemmur byrgja sýn út á
Sundin.
Í stóru og strjálbýlu landi er
nægt rými fyrir ný hverfi og engin
ástæða til að skerða stórkostlega
lífsgæði borgarbúa með þröngri
blokkarbyggð á aðalútivistarsvæði
borgarinnar. Hugmyndir vinstri-
meirihluta Dags B. um múrvegg
norðan Suðurlandsbrautar munu
vonandi enda á öskuhaugum sög-
unnar.
Umhverfisslys Dags B.
Eftir Björn Jón
Bragason » Blokkirnar munumynda vegg sem
lokar fyrir útsýni til
norðurs.
Björn Jón
Bragason
Höfundur er íbúi við Laugardal og
skipar 11. sæti á D-lista fyrir komandi
borgarstjórnarkosningar.
Aðalskipulag Fyrirhuguð blokkarbyggð norðan Suðurlandsbrautar.
Síðastu daga hefur
Morgunblaðið upplýst
okkur mjög vandlega í
nokkrum greinum um
væntanlegt atvinnu-
vandamál í byggingar-
iðnaði og blómstrandi
viðskipti í tungumála-
kennslu í Dósaverk-
smiðjunni. Nema
hvað, fólk sem er
kannski ekki að falla á
því að lesa allar grein-
arnar mun kannski ekki vera vel
upplýst um málefnin, þar sem fyr-
irsagnir eru: „Margir innflytjendur
eru án vinnu“ (bls. 6, 30. apríl) og
„Straumur innflytjenda til Íslands“
(bls. 14, 29. apríl).
Skoðum þetta aðeins betur. Það
eru 11 málsgreinar í fyrrnefndu
greininni, fyrir utan lítinn kassa
með upplýsingum um hvernig at-
vinnuþátttaka erlendra ríkisborgara
er flokkuð og töflu um atvinnulausa
eftir ríkisfangi. Þrjár fyrstu máls-
greinarnar greina í stuttu máli frá
atvinnuleysi meðal erlendra ríkis-
borgara á Íslandi. Hinar átta máls-
greinarnar fjalla um fyrirhuguð
aukin umsvif í byggingariðnaði og
þá áhættu að fluttir verði inn rétt-
indalausir iðnaðarmenn og mögu-
leiki að brotið verði á réttindum
þeirra. Það er í raun mjög mikil-
vægt að varpa ljósi á
það að erlent vinnuafl
getur lent í vondri
stöðu í byggingargeir-
anum og er maður
þakklátur fyrir það ef
Morgunblaðið langar
að skoða þetta betur.
En lesendur eiga mjög
erfitt með að sjá hvern-
ig þetta mál tengist at-
vinnuleysi meðal inn-
flytjenda almennt, eins
og fyrirsögnin gefur í
skyn.
Á sömu nótum var það afar
skemmtilegt að lesa um algjöra
sprengingu í íslenskukennslunni í
tungumálaskólanum hennar Sigrún-
ar Gígju Svavarsdóttur, Dósaverk-
smiðjunni. Tíu af sextán máls-
greinum í fréttinni fjalla um
starfsemi þessa eina skóla. En ég
óttast að mjög margir lesendur
nenni ekki að lesa lengra en fyrir-
sögnin: „Straumur innflytjenda til
Íslands“. Þar missti Morgunblaðið
nú af glæsilegu tækifæri til að
greina frá vaxandi áhrifum innflytj-
enda á íslensku og íslenskunám. Því
miður valdi Morgunblaðið þá leið,
sem er þekkt í frekar lélegri blaða-
mennsku, að setja tilkomumikla
fyrirsögn fyrir ofan eitthvert allt
annað lesefni.
Það má færa rök fyrir því að
blaðamennska í þessum tveimur til-
fellum bjóði upp á svipaða upplifun
og það sem karakter Stephens Reas
upplifði í kvikmyndinni The Crying
Game – hann hélt að hann væri ást-
fanginn af konu þangað til hann af-
klæddi hana og hennar karl-
mennsku. Semsagt, fyrirsagnir í
þessari grein eru allt annað „kyn“
en greinarnar sjálfar. Það má
kannski líka færa rök fyrir því, sam-
kvæmt vali á fyrirsögn miðað við
efni greinarinnar, að Morgunblaðið
sé andvígt erlendum íbúum á Ís-
landi. En ég ætla ekki að leyfa mér
að draga slíkar ályktanir, alveg eins
og mér finnst að Morgunblaðið eigi
að fara varlega í að draga illa
ígrundaðar ályktanir og nota mis-
vísandi fyrirsagnir sem geta að
óþörfu kynt undir vantrausti á milli
innfæddra og aðfluttra íbúa á Ís-
landi.
Má færa rök fyrir því?
Eftir Johönnu E.
Van Schalkwyk
Johanna E.
Van Schalkwyk
»Mér finnst að Morg-
unblaðið eigi að fara
varlega í að draga illa
ígrundaðar ályktanir og
nota misvísandi fyrir-
sagnir.
Höfundur er kennari.