Morgunblaðið - 16.05.2014, Side 85
MENNING 85
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Mig hafði dreymt um að færa mynd-
listina inn í þennan litla ramma frí-
merkjanna og fyrir sjö árum lét ég
verða af því,“ segir danski gallerist-
inn og myndlistarmaðurinn Sam Je-
dig og dreifir úr frímerkjaörkum á
borðið. Frímerkin eru myndlistar-
verk fjölda listamanna, og þar á með-
al eftir hann sjálfan. Jedig er eigandi
gamalgróins gallerís í Danmörku,
Stalke gallerísins, og hefur meðal
annars sett þar upp sýningar með
verkum íslenskra listamanna á borð
við Gunnar Örn Gunnarsson, Helga
Þorgils Friðjónsson, Guðmund Ing-
ólfsson og Sigurgeir Sigurjónsson
En nú er Jedig á Íslandi og opnar í
dag klukkan 17 sýningu í Galleríi
Gangi, heimagalleríi Helga Þorgils
að Rekagranda 8, þar sem allir eru
velkomnir, á frímerkjum sem hann
framleiðir undir yfirskriftinni Art-
stamp.dk.
Gott samstarf við Íslendinga
Í tilefni opnunarinnar gefur Art-
stamp.dk út ný upplagsverk í dag,
með verkum eftir Gunnar Örn, sem
lést árið 2008 en Jedig starfaði lengi
með, og Helga Þorgils. Þá hefur Je-
dig gert nokkur frímerjaverk eftir
eldri íslenskum frímerkjum; eftir
bankahrunið 2008 breytti hann til að
mynda nokkrum á persónulegan
hátt. Jedig hannar merkin sjálfur,
prentar þau og sker til. Frímerkin
eru gefin út í litlum upplögum, 50 til
3000 af hverju, arkirnar eru tölusett-
ar og listamennirnir fá helming upp-
lagsins og geta annaðhvort sýnt þær
sem heilar arkir, eða bútað þau sund-
ur, sett á umslög og sent, eins og far-
andlistaverk út um heiminn.
„Þessi frímerki hafa vakið athygli
víða,“ segir hann. „Fyrst var ég að
hugsa um að skapa ímyndað land
sem gæfi út þessi myndlistarmerki,
því hin opinberu frímerki í Dan-
mörku eru frekar leiðinleg.“ Hann
tekur fram fyrsta frímerkið sem
hann bjó til, með myndverki eftir
listamanninn Albert Mertz.
„Hann var beðin um að gera mynd
fyrir opinbert danskt frímerki, skil-
aði þessu fína verki af sér, en þegar á
reyndi kunni einn í valnefndinni ekki
að meta það. Albert reiddist því og
tók frummyndina frá þeim. Eftir að
hann lést fékk ég teikninguna hjá
dóttur hans og gaf hana út, eins og til
stóð. Það vakti athygli.
Þessi listaverk fara út um heiminn
á umslögum en hér á sýningunni má
sjá arkirnar heilar, og auk þess um-
slög eins og þau sem ég geri alltaf
með frímerkjunum í samstarfi við
listamennina. Ég sendi þau svo til
mín hvar sem ég er staddur í hem-
inum og þegar þau hafa skilað sér
með póststimplunum eru þau tilbúin
sem listaverk.“
Hann tekur fram umslög sem hann
hefur unnið hér síðustu daga með frí-
merkjunum með verkum Gunnars
Arnar og Helga Þorgils, auk þess
sem hann hefur notað opinbert frí-
merki með myndum af glerhjúp
Ólafs Elíassonar á Hörpu. Jedig
finnst ánægjulegt að geta notað
myndir af verki þess gamla vinar síns
og samstarfsmanns.
Gegnum tíðina hefur Jedig átt í
margvíslegum samskiptum við ís-
lenska listarmenn. Hann var ungling-
ur þegar hann kynntist Gunnari Erni
fyrst og fyrstu myndverkin sem hann
eignaðist voru eftir Gunnar. Löngu
síðar, árið 1994, leiddi Ólafur Elías-
son, sem var þá starfsmaður í galleríi
Jedig, þá Gunnar aftur saman. Ólaf-
ur starfaði hjá Jedig í galleríinu í
nokkur ár, samhliða námi, og þar
voru fyrstu tvær einkasýningarnar á
verkum hans. „Gunnar Örn mælti
með fleiri íslenskum listamönnum til
sýninga og síðan hef ég haldið þeim
góðu tengslum við,“ segir Sam Jedig.
Minningar Fjögur ný frímerkjaverk
eru með verkum Gunnars Arnar.
Ný útgáfa Frímerkin með verkum
Helga Þorgils koma út í dag.
Endurgerð „Sorry -Declared Bank-
rupt, 2008“, er prentað á merkið.
Listaverkin fara út um
heiminn á umslögum
Sýnir frímerki
með verkum
Gunnars Arnar og
Helga Þorgils
Morgunblaðið/Einar Falur
Frímerkjalist „Þessi frímerki hafa vakið athygli víða,“ segir Sam Jedig.
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
leikhusid.is SVANIR SKILJA EKKI –„Bráðfyndin og skemmtileg sýning...“
Fréttablaðið
SPAMALOT (Stóra sviðið)
Lau 17/5 kl. 19:30 32.sýn Lau 24/5 kl. 19:30 34.sýn Fös 30/5 kl. 19:30 36.sýn
Sun 18/5 kl. 19:30 33.sýn Sun 25/5 kl. 19:30 35.sýn Lau 31/5 kl. 19:30 lokas.
Salurinn veltist um af hlátri. Fáránlega skemmtilegt! Sýningum lýkur í vor.
Eldraunin (Stóra sviðið)
Fös 16/5 kl. 19:30 8.sýn Mið 28/5 kl. 19:30 11.sýn Fös 6/6 kl. 19:30 aukas.
Fim 22/5 kl. 19:30 9.sýn Sun 1/6 kl. 19:30 12.sýn Fös 13/6 kl. 19:30 14.sýn
Fös 23/5 kl. 19:30 10.sýn Fim 5/6 kl. 19:30 13.sýn Lau 14/6 kl. 19:30 15.sýn
Fimm stjörnus ýning sem enginn ætti að missa af. Sýningum lýkur í vor.
Svanir skilja ekki (Kassinn)
Lau 17/5 kl. 19:30 25.sýn Sun 18/5 kl. 19:30 26.sýn Sun 25/5 kl. 19:30 Lokas.
Síðustu sýningar - Nýtt verk eftir Auði Övu Ólafsdóttur.
Litli prinsinn (Kúlan)
Lau 17/5 kl. 14:00 Sun 25/5 kl. 14:00 Lau 7/6 kl. 14:00
Lau 17/5 kl. 16:00 Sun 25/5 kl. 16:00 Lau 7/6 kl. 16:00
Sun 18/5 kl. 14:00 Lau 31/5 kl. 14:00 Sun 8/6 kl. 14:00
Sun 18/5 kl. 16:00 Lau 31/5 kl. 16:00 Sun 8/6 kl. 16:00
Lau 24/5 kl. 14:00 Sun 1/6 kl. 14:00
Lau 24/5 kl. 16:00 Sun 1/6 kl. 16:00
Fimm stjörnu sýning fyrir áhorfendur á aldrinum 6 til 12 ára.
Stund milli stríða (Stóra sviðið)
Lau 7/6 kl. 19:30
Sýningin var valin áhugaverðasta áhugaleiksýningin leikárið 2013 - 2014.
Miðasala | 568 8000 | midasala@borgarleikhus.is
Furðulegt háttalag –★★★★★- HA, DV
Furðulegt háttalag hunds um nótt (Stóra sviðið)
Fim 22/5 kl. 20:00 Lau 31/5 kl. 20:00 Lau 7/6 kl. 20:00 lokas
Fös 23/5 kl. 20:00 Sun 1/6 kl. 20:00
Lau 24/5 kl. 20:00 Fös 6/6 kl. 20:00
Síðustu sýningar
BLAM (Stóra sviðið)
Fös 16/5 kl. 20:00 4.k Sun 18/5 kl. 20:00 7.k Lau 21/6 kl. 20:00 aukas
Lau 17/5 kl. 14:00 Fim 19/6 kl. 20:00 aukas Sun 22/6 kl. 20:00 lokas
Sun 18/5 kl. 14:00 6.k Fös 20/6 kl. 20:00 aukas
Sýning ársins í Danmörku 2012, 6 Grímutilnefningar 2013. Aðeins þessar sýningar!
Dagbók Jazzsöngvarans (Nýja sviðið)
Lau 17/5 kl. 20:00 Lau 24/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Nýtt verk frá CommonNonsense sem færðu okkur Tengdó, Grímusýningu ársins 2012
Ferjan (Litla sviðið)
Fös 16/5 kl. 20:00 22.k Sun 25/5 kl. 20:00 28.k Mið 4/6 kl. 20:00 35.k
Lau 17/5 kl. 20:00 23.k Þri 27/5 kl. 20:00 29.k Fim 5/6 kl. 20:00 aukas
Sun 18/5 kl. 20:00 24.k Mið 28/5 kl. 20:00 30.k Fös 6/6 kl. 20:00 36.k
Þri 20/5 kl. 20:00 25.k Fim 29/5 kl. 20:00 31.k Lau 7/6 kl. 20:00 37.k
Mið 21/5 kl. 20:00 aukas Fös 30/5 kl. 20:00 aukas Mið 11/6 kl. 20:00 38.k
Fim 22/5 kl. 20:00 26.k Lau 31/5 kl. 20:00 32.k Fim 12/6 kl. 20:00
Fös 23/5 kl. 20:00 27.k Sun 1/6 kl. 20:00 33.k Fös 13/6 kl. 20:00
Lau 24/5 kl. 20:00 aukas Þri 3/6 kl. 20:00 34.k
Fyrsta leikrit Kristínar Marju eins ástsælasta rithöfundar þjóðarinnar
Hamlet litli (Litla sviðið)
Fös 16/5 kl. 10:00 * Sun 18/5 kl. 13:00
Shakespeare fyrir byrjendur. * Skólasýningar. **Táknmálstúlkuð sýning
Der Klang der Offenbarung des Göttlichen (Stóra svið)
Mið 28/5 kl. 20:00 1.k Fim 29/5 kl. 20:00 2.k Fös 30/5 kl. 20:00 3.k
Myndlistarverk fyrir svið eftir Ragnar Kjartanson. Tónlist Kjartan Sveinsson
★★★★ – SGV, Mblamlet
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Wide Slumber (Aðalsalur)
Lau 24/5 kl. 20:00 Sun 25/5 kl. 20:00 Mán 26/5 kl. 20:00
Miða má nálgast hjá Listahátíð í Reykjavík
Danssýningin Death (Aðalsalur)
Fim 29/5 kl. 20:00 Fös 30/5 kl. 20:00
Arty Hour (Kaffihús)
Þri 27/5 kl. 20:00
AÐGANGUR ÓKEYPIS
ÓPERUARÍUR EFTIR
CATALANI, VERDI OG PUCCINI
HÁDEGISTÓNLEIKAR
Í NORÐURLJÓSUM, HÖRPU
ÞRIÐJUDAGINN
20. MAÍ KL.12:15
ELÍN ÓSK
ÓSKARSDÓTTIR
SÓPRAN
ANTONÍA HEVESI
PÍANÓ