Morgunblaðið - 16.05.2014, Side 88
88 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 2014
Vonarstræti er hörkuspenn-andi og átakanleg sam-tímasaga um óvægna for-tíðardrauga, sársaukafull
leyndarmál og mögulega syndaaf-
lausn. Myndin segir af samtvinn-
uðum örlögum þriggja ólíkra per-
sóna sem reyna að halda sér á floti
í fremur vályndum og gruggugum
íslenskum veruleika rétt fyrir hrun.
Móri (Þorsteinn Bachmann) er
skáld og bóhem sem drekkur frá
sér ráð og rænu til að flýja sorgir
sínar og óbærilegan missi. Eik
(Hera Hilmarsdóttir) er ung, ein-
stæð móðir sem neyðist til að grípa
til örþrifaráða til að framfleyta sér
og dóttur sinni og fyrrverandi fót-
boltastjarnan Sölvi (Þorvaldur Dav-
íð) er upprennandi stórlax í vafa-
sömum banka. Öll eru þau, hvert á
sinn hátt, fangar aðstæðna sem
endurspegla ágætlega þverskurð
íslensks samfélags.
Birgir Örn Steinarsson (betur
þekktur sem Biggi í Maus) og
Baldvin Z skrifuðu marglaga hand-
rit myndarinnar en Baldvin er
einnig leikstjóri hennar. Hann
stimplaði sig eftirminnilega inn í ís-
lensku kvikmyndasenuna þegar
hann leikstýrði vel heppnuðu
myndinni Óróa fyrir nokkrum ár-
um. Vonarstræti er enginn eftir-
bátur fyrri afreka Baldvins og
Birgis og kemur til með að hreyfa
vel við áhorfendum. Myndin fer
fremur hægt af stað en er á líður
herðir hún tökin og rígheldur svo
allt til enda. Söguþráðurinn er
hlaðinn merkingaraukum og vís-
unum. Reykjavíkurtjörn, forarpytt-
urinn við Vonarstræti, er miðja
sögusviðsins og ágætis myndlíking
fyrir Ísland samtímans. Hún er
fiskabúr með ránfiskum, seiðum og
blæðandi steinum. Slík túlkun rím-
ar ágætlega við enskan titil mynd-
arinnar, Life in a Fishbowl, sem
aftur gæti vísað í frægan lagatexta
Pink Floyd um glataðar sálir sem
eilíflega svamla um í fiskabúri.
Nöfn persóna, Móri, Eik og
Sölvi, virðast kannski frekar til-
gerðarleg við fyrstu sýn, en þegar
betur er að gáð má sjá þau tákn-
rænt og auk þess er kostur að þau
eru án augljósra vísana í lifandi
fólk, þótt kannski hefði þá einnig
mátt sleppa því að skrýða persónur
þekktum ættarnöfnum. Í íslenskri
þjóðtrú er móri karlkyns aftur-
ganga og þar með er persóna Móra
eiginlega draugur fortíðar. Hann er
lifandi dauður og líkir sjálfum sér
einnig við blæðandi stein í mögn-
uðum og átakanlegum skáldskap
sínum. Gullkálfurinn Sölvi er vá
samtímans. Hann er upprennandi
stórlax sem getur auðveldlega orðið
spillingu og valdagræðgi að bráð og
þar með sölnað. Eik er eiginlegt
seiði myndarinnar. Hún er undir-
málsfiskur sem berst við mikið
mótstreymi en eins og máltækið
segir: „Ekki fellur eik við fyrsta
högg.“ Eik er því von framtíðar og
tákngervingur styrks og þraut-
seigju.
Ótrúlega tilþrifamikill leikur lyft-
ir myndinni upp á æðra plan. Þor-
steinn Bachmann er magnaður og
Hera og Þorvaldur eru einnig
feiknasterk. Raunar má segja að
leikurinn í myndinni sé lastalaus á
línuna, jafnt börn sem hinir reynd-
ari gefa allt í hlutverk sín. Minnis-
stæðasti aukaleikarinn er þó líklega
Valur Freyr Einarsson í hlutverki
gjörsamlega siðblinds bankamanns.
Fyrri hlutverk og opinber ímynd
allra leikara gleymist þegar þeir
verða eitt með persónum myndar-
innar. Það er einstakt afrek í ljósi
þess að leikaraflóra litla íslenska
fiskabúrsins er frekar takmörkuð.
Persónum er gefinn góður tími og
nægt svigrúm til að þroskast og
finna sér sinn farveg. Þær eru
vissulega misgeðþekkar og margur
gæti efast um trúverðugleika at-
hafna þeirra á köflum en örvænting
og neyð eru harðstjórar sem oft
ræna menn skynsemi og knýja þá
út á hálar og viðsjárverðar brautir.
Samtöl myndarinnar eru með ólík-
indum lipur og laus við alla tilgerð
og gervi persóna, sérstaklega
Móra, eru afar vel heppnuð.
Myndin er beinskeytt og einlæg,
tónlist hennar seiðandi og mynd-
ræn framsetning framúrskarandi.
Einstök nærgætni í efnistökum og
djúpur skilningur á mannlegu eðli
skilar sér í margbrotnum og
áhugaverðum persónum. Fram-
vindan er átakanleg án þess þó að
áhorfendum sé misboðið með of-
forsi eða óþarfa grafískum ógeðs-
legheitum. Myndin miðlar þarfri
samfélagsrýni sem þó er án áfellis-
dóma og hún vekur áhorfendur til
umhugsunar. Íslensk kvikmynda-
gerð er þrautseig eins og eikin.
Hún er seinfelld og rís stöðugt
hærra, hvað sem núverandi kreppu
með sínu gallsúra menningarlega
fjármagnssvelti áhrærir. Það getur
enginn hæðst að hæfileikum, þori
og dug þeirra sem að Vonarstræti
standa. Þessi nýja íslenska kvik-
myndavon vísar bjartan veg til
framtíðar.
Vonir seiða, ránfiska og
blæðandi steina í gruggugri tjörn
Þor „Það getur enginn hæðst að hæfileikum, þori og dug þeirra sem að Vonarstræti standa. Þessi nýja íslenska kvikmyndavon vísar bjartan veg til framtíðar.“
Háskólabíó, Laugarásbíó og
Smárabíó.
Vonarstræti bbbbm
Leikstjórn: Baldvin Z. Handrit: Birgir
Örn Steinarsson og Baldvin Z. Aðal-
hlutverk: Þorsteinn Bachmann, Hera
Hilmarsdóttr, Þorvaldur Davíð Krist-
jánsson, Valur Freyr Einarsson, Kristín
Lea Sigríðardóttir, Theodór Júlíusson,
Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Sveinn
Ólafur Gunnarsson og Elma Lísa Gunn-
arsdóttir. 125 mín. Ísland, 2014.
HJÖRDÍS
STEFÁNSDÓTTIR
KVIKMYNDIR
–– Meira fyrir lesendur
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA:
fyrir kl. 16 mánudaginn 19.maí.
GARÐAR OG GRILL
Blaðið verður með góðum upplýsingum um garðinn,
pallinn, heita potta, sumarblómin, sumarhúsgögn
og grill ásamt girnilegum uppskriftum.
SÉRBLAÐ
Morgunblaðið
gefur út
glæsilegt
sérblað um
garða og grill
föstudaginn
23. maí
SKARTAÐU ÞÍNU
FEGURSTA
Bankastræti 4 I sími: 551 2770
Skartgripalínan Salka er falleg
og eiguleg útskriftargjöf.
Frí heimsending af www.aurum.is