Morgunblaðið - 16.05.2014, Síða 92
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 136. DAGUR ÁRSINS 2014
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 425 ÁSKRIFT 4680 HELGARÁSKRIFT 2900 PDF Á MBL.IS 4470 I-PAD ÁSKRIFT 4470
1. Fjarlægja risavaxinn fílapensil
2. Með 915.000 á mánuði
3. Eingöngu að klekkja á Hjördísi
4. Hurfu sporlaust frá Dalvík
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Hin kunna sópransöngkona Pat-
ricia Rozario verður heiðursgestur á
tónleikum Kammerkórs Suðurlands á
Listahátíð 24. maí næstkomandi.
Rozario hreifst af flutningi kórsins á
verkum tónskáldsins Sir John Tav-
ener í Lundúnum í nóvember og mál
þróuðust þannig að hún mun syngja
einsöng með kórnum í verkum eftir
Tavener á tónleikunum hér. Rozario
hefur frumflutt yfir 30 verk sem
hann samdi sérstaklega fyrir hana.
Rozario syngur með
Kammerkórnum
Tékkneska
hljómsveitin ILLE
heldur tónleika í
verslun 12 Tóna
við Skólavörðu-
stíg kl. 17.30 í
dag. Fyrsta breið-
skífa ILLE kom út
í fyrra og fékk af-
ar góða dóma. Í
kjölfarið var sveitin tilnefnd til tékk-
nesku Grammy-verðlaunanna sem
besta hljómsveitin og besti nýliðinn.
Tékknesk hljómsveit
við Skólavörðustíg
Þessa dagana ferðast hópur unn-
enda þýska tónskáldsins Richards
Wagners um landið, sækir tón-
leika og hlýðir á fyrirlestra.
Hópurinn kom við í Reyk-
holti og hlýddi á fjóra fyrir-
lestra sem Wagner-félagið
hafði undirbúið. Meðal
fyrirlesara voru
Arthúr Björgvin
Bollason og Árni
Björnsson.
Unnendur Richards
Wagners á landinu
Á laugardag Austlæg átt, 8-13 m/s og rigning, en úrkomulítið
fyrir norðan. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast vestanlands.
Á sunnudag Gengur í norðan 8-13 með rigningu eða slyddu fyrir
norðan og hita 0 til 5 stig, en bjartviðri syðra og hiti um 12 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Lægir og léttir heldur til austanlands í kvöld,
en snýst í suðaustan 5-10 með rigningu við suðvesturströndina.
VEÐUR
Júdókappinn Þormóður Árni Jónsson flaug beint upp í átjánda sætið á styrk-
leikalistanum í Evrópu með silfurverðlaununum á Opna breska meistara-
mótinu. Hann hafði verið frá keppni í heilt ár og var dottinn af listanum. „Mið-
að við það að ég hef verið meiddur og eytt mestu púðri í skólann þá var fínt
að gera alvöruhluti á mínu fyrsta alvörumóti eftir þetta allt saman,“ segir
Þormóður. »2-3
Þormóður flaug upp í
átjánda sæti eftir fyrsta mótið
Spjótkastarinn Sindri Hrafn
Guðmundsson er þriðji Ís-
lendingurinn sem tryggir
sér keppnisrétt á heims-
meistaramóti unglinga í
frjálsíþróttum í sumar, á
eftir Anítu Hinriksdóttur
og Hilmari Erni Jóns-
syni. „Hann setur
stefnuna hátt.
Það er ofsalega
góð tilfinning að
vera búinn að
bæta árangur
sinn í vorverk-
unum,“ segir
Einar Vil-
hjálmsson,
þjálfari hans.
»4
Sindri fylgir Anítu og
Hilmari á HM í sumar
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Mér finnst skemmtilegast að leika
í bíómyndum og mér finnst líka
rosalega gaman í sundi,“ segir Haf-
dís Eva Pálsdóttir, 10 ára, sem fer
með stórt hlutverk í kvikmyndinni
Vonarstræti, sem verður frumsýnd
í dag. Hún er líka í aðalhlutverki í
stuttmyndinni Handan hafsins sem
verður frumsýnd 21. maí, er af-
reksstúlka í sundi og afburðanem-
andi í skólanum.
Hafdís segir að sér finnist gaman
að vinna með atvinnuleikurum. Það
sé eins og að vera í Hollywood.
Hún hefur ákveðnar skoðanir á
Vonarstræti. „Myndin er mjög
sorgleg, en samt rosalega skemmti-
leg,“ segir hún. Bætir við að það
hafi verið undarlegt að sjá sjálfa
sig á hvíta tjaldinu. „Mér fannst
röddin í mér rosalega skrýtin og
það var skrýtin tilfinning að sjá
mig á stórum skjá.“
Nóg að gera
Hafdís Eva æfir sund hjá
Íþróttabandalagi Reykjanesbæjar,
ÍBR, sex daga í viku og er þar af-
rekskona eins og annars staðar.
Hún tók síðast þátt í sundmóti um
liðna helgi og stóð sig með prýði.
„Ég var sprettsundsdrottning, of-
urhugi og fékk afreksverðlaun og
fór þrisvar á pall, fékk tvenn gull-
verðlaun og eitt brons.“ Hún býr á
Ásbrú en æfir í Keflavík. „Ég er
rosalega sjálfstæð og tek bara
strætó,“ segir hún.
Þó að mikið sé að gera í
frístundum bitnar það ekki á
náminu. „Ég fékk 10 í stærð-
fræði í samræmdu prófunum
og mér gekk mjög vel og
fékk verðlaun frá bæjar-
stjóranum í Keflavík.“
Þrátt fyrir gott gengi
á hinum ýmsu sviðum
hefur Hafdís nægan
tíma til að rækta
vinskapinn og fjölskylduna. „Mér
finnst rosalega skemmtilegt að
leika við vinkonur mínar og þegar
ég fer til pabba í Reykjavík um
pabbahelgar gerum við margt
skemmtilegt saman. Svo fer ég oft
með Óskari pabba á hreystivöllinn,
en hann er Íslandsmeistari í bekk-
pressu.“
Hafdís segir að stundum sé erfitt
að sinna öllu í einu. „Þegar ég var
að leika í bíómyndunum fékk ég al-
veg fjóra daga í frí, því ég var í
bíómyndunum frá klukkan átta til
átta alla dagana. Í Vonarstræti lék
ég bara á nóttunni, var gjör-
samlega uppgefin og svaf næstum
því í heilan dag á eftir.“
Hæfileikarnir eru á mörgum
sviðum en markmiðin eru skýr.
„Mig langar helst að vera í öllu en
markmiðin mín eru að komast til
Hollywood og reyna að komast á
Ólympíuleikana,“ segir Hafdís Eva
Pálsdóttir.
Hollywood og Ólympíuleikar
Markmiðin skýr
hjá leikkonunni og
sundkappanum
Ljósmynd/Heiður María Rúnarsdóttir
Ung leikkona Hafdís Eva Pálsdóttir leikur í tveimur myndum sem verða frumsýndar með nokkurra daga millibili.
Hafdís Eva Pálsdóttir er dóttir
Maríu Hauksdóttur og Páls Krist-
inssonar en fósturfaðir hennar er
Óskar Ingi Víglundsson. María
segir að fyrstu fimm ár ævinnar
hafi Hafdís verið langveik. Þá hafi
hún gjarnan verið með geislaspil-
ara, spilað barnaleikrit, verið
með búninga og spegil og verið
heilu dagana í hlutverki. „Hún
hefur stöðugt verið að setja
upp leikrit og verið með leik-
sýningar og danssýningar,“
segir María. Hafdís byrjaði
í leiklistarskóla sex ára.
„Þar lék ég tré og var
sögumaður,“ segir hún.
„Pabbi er rosalega duglegur að
sýna mér bíómyndir og hann er
líka í kvikmyndabransanum eins
og ég.“ Nýlega fór hún í áheyrn-
arprufur fyrir söngleikinn Billy
Elliot. „Ég vona bara að ég kom-
ist áfram.“
María leggur áherslu á að Haf-
dís, sem hafi fengið 10 á sam-
ræmdu prófunum, hafi ekkert
þurft að hafa fyrir náminu og
þess vegna hafi hún fengið að
vera eins mikið í leiklistinni og
sundinu og raun beri vitni. „Hún
hefur þurft að fá frí í skólanum
vegna kvikmyndanna, en það hef-
ur gengið.“
Hefur sett upp leikrit í mörg ár
HAFDÍS EVA PÁLSDÓTTIR AFREKSSTÚLKA
Hafdís Eva
Pálsdóttir