Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 9
8.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9 F ar North er fyrst og fremst tengslanet. Okkar aðalmarkmið er að koma norrænum og ekki síst grænlenskum listamönn- um sem langar að þroskast í list sinni í kynni við reyndari listamenn frá Evrópu,“ segir Arnbjörg María Danielsen, einn aðstandenda félags- ins Far North. „Við vinnum á breiðu sviði og leggjum áherslu á opið flæði hugmynda og spennandi tengsla- myndun milli listamanna.“ Arnbjörg hefur margvíslega menntun á sviði lista og listrænnar stjórnunar en samstarfsmaður hennar í Far North er Þorleifur Örn Arnarsson leik- stjóri. Bæði hafa þau unnið mikið er- lendis. Auk þeirra koma að verkefn- inu Anna Þorvaldsdóttir, Mette Karlsvik, Makka Kleist, Anna Rún Tryggvadóttir, Lars Petter Hagen og Arnannguaq Gerstrøm. „Mig hafði langað að vinna með listamönnum í Grænlandi síðan ég fékk þá hugmynd að halda tónlist- arhátíð þar fyrir nokkrum árum. Þorleifur var síðan til í þetta líka.“ Óperur og tónlistarleikhús Hugmyndin að útfærslunni á Far North-verkefninu kviknaði í fyrra. Arnbjörg og Þorleifur voru þá ásamt fleirum í könnunarleiðangri í Oqaat- sut, litlu þorpi við Diskóflóa í Græn- landi. Leiðangurinn var hluti af und- irbúningi fyrir gerð nýrrar óperu eftir Önnu Þorvaldsdóttur tónskáld. Framleiðsla óperunnar var upphafið að starfsemi Far North og verður hún frumsýnd í Ósló á næsta ári en sýnd víðar. „Við leggjum mesta áherslu á óp- erur og tónlistarleikhús, þannig að flestir listamennirnir eru tónlistar- og leikhúsfólk. Hins vegar tengir leikhúsið saman margar listgreinar og því hafa skáld og myndlistar- menn einnig tekið þátt,“ segir Arn- björg. Einn listamannanna sem þeg- ar hafa tekið þátt er Arnannguaq Gerstrøm, flautuleikari og tónskáld, en hún er eini Grænlendingurinn með mastersgráðu í klassískri tón- list. „Arnannguaq langaði að öðlast meiri reynslu á sviði tónsmíða og í gegnum Far North hefur hún t.d. heimsótt Myrka músíkdaga hér- lendis og í haust mun hún sækja heim samtímatónlistarhátðina Ul- tima í Ósló. Diskotek við Diskóflóa Löndin sem koma að Far North auk Grænlands eru Norðurlönd og Þýskaland en áform eru uppi um þátttöku listamanna frá Eistlandi, Bandaríkjunum og Kína. „Stór hluti af starfsemi Far North verður síðan fólginn í reglulegum viðburðum sem við nefndum eftir Diskóflóa og köll- um Diskotek,“ segir Arnbjörg. „Diskotekin munu standa í allt að tvær vikur en fyrsta opinbera Disko- tekið verður haldið í Oqaatsut í sum- ar. Okkur fannst tilvalið að halda Diskotekin í þorpinu þar sem hug- myndin fór af stað í fyrra. Við heill- uðumst af einangrun þorpsins, auk þess sem umhverfið er ótrúlega fal- legt og fellur vel að listsköpun.“ Listamenn frá nokkrum löndum munu koma til Grænlands á Disko- tekið og kynnast list grænleskra listamanna en meðal þátttakenda verður fyrsti útskriftarárgangur grænlenska leiklistarskólans. Dag- arnir verða þéttskipaðir af tón- leikum, fyrirlestrum og ýmiss konar vinnusmiðjum. Anna Þorvaldsdóttir mun auk þess nýta tækifærið og safna efni í tónheim óperu sinnar. „Þetta verður hins vegar alls ekki einhliða, gestirnir eru ekki kennarar Grænlendinganna, heldur vonumst við til þess að samtal geti orðið á milli listamanna, þar sem allir kynn- ast einhverju nýju. Grænlending- arnir ætla t.d. að kynna fyrir gest- um sínum grænlenska trommutónlist og inúítadansa. Samtalið er lista- mönnum mikilvægt,“ segir Arnbjörg. Sem dæmi um listamenn sem sækja munu Diskotekið má nefna International Contemporary En- semble. ICE-hópurinn er í fremstu röð á sínu sviði, hefur mikla reynslu af miðlun samtímatónlistar og hefur m.a. heimsótt skóla í Brooklyn í New York. Þau munu nýta þessa reynslu sína á Diskotekinu og hefur öllum börnum í Oqaatsut verið boðið til vinnusmiðju í umsjón ICE. Áhersla verður lögð á frjálsan og skapandi heim samtímatónlistar. „Söngkonan og tónskáldið Sofia Jernberg verður með okkur líka. Hún er fædd í Eþíópíu en búsett í Ósló. Hún blandar saman djassi og samtímatónlist, hefur mikið raddsvið og einstaka raddtækni. Það verður gaman að sjá hvað kemur út úr því þegar hennar tónlist mætir græn- lensku tónlistinni,“ segir Arnbjörg og er greinilega orðin spennt. Fyrirmyndir mikilvægar Far North lætur þó ekki staðar numið við Diskotekin, því félagið stendur einnig fyrir komu László Kuti til Grænlands. Hann er einleik- ari á klarinett í Fílharmóníuhljóm- sveitinni í München og leikur með grænlenskum tónlistarmönnum á Orkestertreff-tónleikunum í júní. „Ungum og upprennandi tónlist- armönnum í Grænlandi er ómet- anlegur fengur að fyrirmynd í þeim gæðaflokki sem László Kuti er,“ segir Arnbjörg að lokum. TENGSLANETI KOMIÐ Á MILLI GRÆNLENSKRA LISTAMANNA OG UMHEIMSINS Samtalið er listamönnum mikilvægt ARNBJÖRG MARÍA DANIELSEN SÖNGKONA VANN VERK- EFNI UM TÓNLISTARHÁTÍÐ Á GRÆNLANDI ÞEGAR HÚN VAR VIÐ NÁM Í SVISS. Í FYRRA LEIT FÉLAGIÐ FAR NORTH DAGSINS LJÓS OG ER BYGGT Á HUGMYND ARNBJARGAR. Guðrún Ingibjörg Þorgeirsdóttir gith@mbl.is Arnbjörg María Danielsen, einn aðstandenda félagsins Far North. Fræðast má um félagið og listamennina á www.farnorth.is og á Facebook. Morgunblaðið/Ómar Nokkrir hlutaðeigendur, f.v.: Mette Karlsvik, Arnannguaq Gerstrøm, Þor- leifur Örn Arnarsson, Arnbjörg María Danielsen, Anna Þorvaldsdóttir, Lars Petter Hagen. Heimild launafólks til frádráttar iðgjalda frá tekjuskattsstofni vegna viðbótarlífeyrissparnaðar hækkar úr 2% af launum í 4% 1. júlí 2014. Launagreiðendum ber að greiða 4% iðgjald í viðbótarlífeyrissparnað frá og með launatímabilinu sem hefst 1. júlí næstkomandi hjá launafólki sem hefur samið um viðbótarlífeyrissparnað og óskar eftir að leggja fyrir 4% af launum. Orðsending til launagreiðenda vegna nýrra lagaákvæða um viðbótarlífeyrissparnað Landssamtök lífeyrissjóða Sætúni 1 • 105 Reykjavík • Sími: 563 6450 • www.ll.is Launamenn eru hvattir til að kynna sér kosti viðbótarlífeyrissparnaðar og nýta sér þetta hagstæða sparnaðarform ef þeir hafa tök á. Lífeyrissjóðir veita nánari upplýsingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.