Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Blaðsíða 25
J
óhann Helgi Hannesson er lærður húsasmiður frá
Verkmenntaskólanum á Akureyri og hefur unnið
sem smiður síðastliðin þrjú ár auk þess að spila
með meistaraflokki Þórs í knattspyrnu. Hann fékk
snemma áhuga á fótbolta en hann var einungis fjög-
urra ára þegar hann fór að mæta á æfingar með bróð-
ur sínum og hefur æft og spilað alla tíð síðan. Hann
spilaði sinn fyrsta meistaraflokksleik árið 2007, þá að-
eins 17 ára gamall. Í sumar starfar Jóhann í íþrótta-
miðstöðinni á Þelamörk sem sundlaugarvörður og því
aldrei langt frá íþrótta- og tómstundastarfi. Í vetur
stefnir hann svo að því að vera í smíðinni. Jóhann
Helgi er harður í horn að taka eins og flest heljar-
menni að norðan en í síðasta leik Þórs í Pepsídeildinni
gegn ÍBV fékk hann takkana á skóm markmanns ÍBV
í síðuna svo sá á. Hann lét það ekkert á sig fá og
tryggði ásamt liðsfélögum sínum stig úr leiknum.
Gælunafn: Jói.
Íþróttagrein: Knattspyrna.
Hversu oft æfir þú á viku? Það er í rauninni misjafnt;
sex til níu sinnum í viku, fer svolítið eftir leikjaálagi á
sumrin.
Hver er lykillinn að góðum árangri? Setja sér raun-
hæf markmið og hafa gaman af því sem maður er að
gera auk þess að skipuleggja sig vel.
Hvernig er best að koma sér af stað? Vera harður
við sjálfan sig og koma æfingunum inn í daglega rút-
ínu.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill hreyfa sig meira?
Finna sér eitthvað sem það hefur gaman af, hvort sem
það er ræktin, sund, hlaup o.s.frv.
Hvernig heldurðu þér í formi þegar þú ferð í frí?
Þegar æfingarnar í boltanum minnka fer ég í ræktina
að lyfta.
Ertu almennt meðvitaður um mataræðið? Ég get í
raun borðað hvað sem er en ég kannski borðaði heldur
lítið þangað til ég kynntist kærustunni minni sem tók
mataræðið mitt alveg í gegn og hjálpar mér mikið.
Hvað borðarðu til að halda þér í formi? Ég borða
mikið kjöt og fisk, ég leyfi mér í rauninni að borða
allt, vel af próteini og ég passa að borða nógu margar
hitaeiningar til að líkaminn fari ekki að ganga á vöðv-
ana.
Hvaða óhollusta freistar þín? Í raun ekkert því ég er
ótrúlega heppinn með það að ég get borðað það sem
mig langar í en ég breytist ekkert.
Hvað ráðleggurðu fólki sem vill bæta mataræðið?
Skrifa matardagbók og sjá svart á hvítu hvað er hægt
að bæta. Það er samt mikilvægt að leyfa sér allavega
einu sinni í viku að detta í smáóhollustu því annars
gefst maður upp.
Hvaða gildi hefur hreyfing fyrir þig? Ég hef hreyft
KEMPA VIKUNNAR JÓHANN HELGI HANNESSON
Norðlendingurinn sem
ekkert stöðvar
mig mikið alla daga frá því
ég man eftir mér, hvort
sem það var úti að leika
mér eða æfingar nú til
dags, ég gæti ekki
ímyndað mér að hætta
allt í einu að hreyfa
mig daglega.
Hvað eru algeng
mistök hjá fólki
við æfingar? Að
halda að þetta verði
auðvelt, það tekur tíma
að byggja upp þol og fólk á
það til að setja sér óraunhæf
markmið sem verður til þess að
það gefst upp í stað þess að gefa
þessu tíma.
Hverjar eru fyrirmyndir þínar? Ég
elska að horfa á Wayne Rooney spila,
ástríðan skín í gegn og hann gefst aldrei
upp. Á Íslandi var það Hlynur Birgisson
eða Kóngurinn eins og hann er kallaður í
Þorpinu. Maðurinn spilaði til fertugs og
varð bara betri eftir því sem hárið þynnt-
ist.
Skapti Hallgrímsson
8.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25
Hjartasérfræðingar við The Institute of Cardiology í háskólanum í
Nis í Serbíu segja rannsóknir sínar gefa til kynna að fólk geti aukið
heilbrigði hjartans einfaldlega með því að hlusta á góða tónlist. Tón-
listin hjálpar okkur líka að ná bata fyrr.
Hlustaðu á tónlist sem þér líkar*Ég get sætt mig við mistök,öll gerum við mistök, en égget ekki sætt mig við uppgjöf.
Michael Jordan