Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Page 49

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Page 49
8.6. 2014 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 49 hafi verið ástæðan; við vorum ekki að flýja neitt,“ segir Guðjón. „Aðalatriðið var þetta: Þetta var tækifæri. Ég hafði átt draum um að flytja út og Jó- hanna líka og þarna sáum við tækifæri. En ég get lofað því að tímabil hafa komið þar sem ég hef velt því fyrir mér hvort þetta hafi verið rétt ákvörðun af því að þetta hefur oft verið erfitt. En heilt yfir erum við ánægð með að hafa tekið þessa ákvörðun.“ Það getur enginn hermt þetta eftir Guðjón sór eið sem bandarískur ríkisborgari í október á síðasta ári eftir að hafa þreytt ýmis próf. „Að kvöldi þess dags settist ég niður með Jóhönnu og við fórum yfir allt það sem hafði gerst þessi ár okkar í Bandaríkj- unum. Ég sá að það var svo margt sem var eins og lygasaga og svo ótrúlegt að ég hugs- aði með mér að ég yrði að skrifa þetta niður til að skilja þetta, bæði fyrir börnin mín og fjölskyldu og svo ef einhver hefði gaman af því að lesa þetta þá væri það bara plús. Þetta er alls ekki „how to“-bók um hvernig á að verða ríkisborgari. Það getur enginn hermt þetta eftir.“ Bókin kemur út á bandarískum markaði og raunar var það tilviljun ein sem réð því að undirrituð komst að því að Guðjón stæði í bókaútgáfu ytra. Á internetinu rakst blaða- maður á umfjöllun í fjölmiðlum vestanhafs um nýju bókina. Titill hennar er „You Cańt Have the Green Card“ og vísar í símtal sem Jóhanna átti við starfsmann bandaríska sendiráðsins hér á landi fyrir nokkrum árum. Jóhanna tekur við: „Mamma mín heitir Jo Ann Hearn en mamma hennar, amma mín, giftist bandarísk- um hermanni, flutti með honum út og bjó í Texas í 14 ár. Þar fæddist mamma en sex ára gömul fluttu þær mæðgur aftur til Ís- lands og það flosnaði upp úr öllum tengslum við Bandaríkin og mamma hitti föður sinn aldrei aftur,“ segir Jóhanna. Guðjón rekur þessa sögu í bókinni en í hjónabandi ömmu Jóhönnu: Jóhönnu Bóelar Sigurðardóttur, og afa, Samuels Emmett Hearn, fór fljótlega að bera á drykkjuvandamáli Samuels og fór svo að amma hennar yfirgaf Bandaríkin. Þau skildu hins vegar aldrei að lögum. „Mamma var þá mjög náin frændsystk- inum sínum en átti ekki eftir að heyra í þeim næstu fimmtíu árin. Það var lítið talað um þetta en ég man eftir ýmsu sem tengdi við Bandaríkin, til dæmis að amma gerði æðis- legan kjúklingarétt upp á Suðurríkja vísu.“ Jóhanna man eftir því eins og það hafi gerst í gær, árið 1981, þegar í Morgun- blaðinu birtist smáauglýsing þar sem auglýst var eftir mömmu hennar og ömmu og nöfn þeirra gefin upp. Símhringingum linnti ekki allan daginn þar sem allur bærinn hafði séð auglýsinguna. Það endaði með því að Jo Ann keyrði út á Keflavíkurflugvöll og hitti þar mann sem vann sem tannlæknir á herstöð- inni í tvær vikur á Íslandi og hafði verið falið að reyna að finna hana og koma skilaboðum áleiðis til hennar – faðir hennar Samuel hafði látist árinu áður. Einnig fékk hún fregnir af því að einn nánasti leikfélagi hennar og systkinabarn við hana hafi líka látist fyrir aldur fram. Eftir þessa örlagaríku keyrslu til Keflavíkur liðu næstum þrír áratugir í viðbót þegar, fyrir margar tilviljanir, Jóhanna kynntist fjölskyldu móður sinnar og ömmu vestanhafs. „Fram að þessu hafði mömmu langað mik- ið til að komast í samband við bæði pabba sinn og frænda svo að þetta olli töluverðu uppnámi.“ Jóhanna ferðast sjálf í fyrsta skipti til Bandaríkjanna tvítug en það var ekkert tengt fjölskyldu hennar ytra enda vissi hún ekki hvar þau var að finna. „Ég hafði fengið þá ferð í verðlaun fyrir að vera sú söluhæsta í því sem ég starfaði við þá: að selja snyrti- vörur og dvaldi í Phoenix, Arizona. Þá man ég að ég hugsaði: „Vá, hér vil ég vera.“ Það flögraði ekki að mér að ég ætti eftir að búa hér mörgum árum síðar.“ Grænn lottóvinningur Þau Guðjón kynntust árið 2000 og gengu í hjónaband ári síðar. Guðjón vissi ekki af und- irliggjandi áhuga eiginkonu sinnar á Banda- ríkjunum. Hins vegar fór þessi umræða að koma upp á yfirborðið árið 2005. „Okkur langaði til að prófa að fara til Bandaríkjanna og dvelja í lengri tíma, ef ekki til að búa og starfa, þá að minnsta kosti að fara þangað í nám, segir Guðjón. „Sjálfur ferðaðist ég mikið með mömmu og pabba til Bandaríkjanna þegar ég var barn og einn besti vinur pabba míns, Guðlaugs Berg- manns, var bandarískur en hann heitir Bill James. Ég á góðar minningar þaðan, um bandarískan morgunverð og bandaríska af- þreyingarmenningu og þessa upplifun að vera þar.“ Jóhanna ákvað að fara með móður sinni í bandaríska sendiráðið og athuga hvort það gæti hjálpað að fá græna kortið að mamma hennar er með bandarískt ríkisfang. Þá var Jóhanna á öðru ári í viðskiptafræði í Háskól- anum í Reykjavík. Þeim var tilkynnt að til að fá ríkisfang hefði Jóhanna þurft að sækja um fyrir 18 ára aldur en eins og stæði gæti það tekið mörg ár að fá græna kortið og ekki tryggt að umsóknin yrði samþykkt. Það var á þessari stundu sem Guðjón ákvað að eina leiðin væri að prófa að spila í Græna korts-lottóinu. Og tvö ár liðu. „Ég var staddur í hádegisverðarboði með bræðrum mínum þegar ég fékk ótrúlegt sím- tal um að ég hafi unnið í lottóinu. Við urðum auðvitað himinlifandi en það er samt tvennt ólíkt að vinna í þessu lottói og fá svo græna kortið. Við fengum einfaldlega rétt til þess að vinna umsókn og pappírana og sjá svo hvort það gengi. En þarna gerist eitt sem breytti öllu og við skiljum ekki hvernig það atvik- aðist. Ég skráði mig í lottóið en pappírarnir sem komu svo voru ekki stílaðir á mig heldur Jóhönnu og það varð til þess að óvæntir hlut- ir komu í ljós.“ Á þessum tímapunkti, árið 2008, er Jó- hanna ólétt, í meistaranámi í Háskólanum í Reykjavík en í því námi bauðst nemendum að dvelja eina önn í skiptinámi erlendis. Um haustið var stefnan því sett á San Marcos í Bandaríkjunum í eina önn. Þau hjónin voru vongóð um að græna korts-umsóknin færi í gegn og sóttu því ekki um námsmannavísa fyrir dvölina. Í júní fékk Jóhanna örlagaríku símhringinguna sem breytti öllu. „Þú getur ekki fengið græna kortið,“ var sagt á hinum enda línunnar. Og titill bókarinnar er einmitt fenginn úr þessu símtali. Í ljós kemur að Jóhanna getur ekki fengið græna kortið af þeirri einföldu ástæðu að þess gerist ekki þörf; hún er bandarískur rík- isborgari og hefur verið alla ævi án þess að vita af því. „Móðir mín og faðir giftu sig ekki fyrr en ég var fjögurra mánaða. Og lög þess tíma voru á þann veg að ef einstæð móðir sem er bandarískur ríkisborgari, sem mamma er, eignast barn utan Bandaríkjanna – fær barn- ið sjálfkrafa bandarískan ríkisborgararétt. Þetta var því frekar ótrúlegt.“ Þannig að þið hefðuð í raun aldrei þurft að lotta? „Jú, í raun þurftum við að taka þátt og vinna til að þessi vinna ætti sér stað. Sendi- ráðið fann út úr þessu vegna þess. Ef við hefðum svo ekki tekið þátt í því hefði öll þessi vinna aldrei átt sér stað og við ekki fundið út úr því að ég væri í raun með tvö- „Ég ákvað kvöldið sem ég varð bandarískur ríkisborg- ari að skrifa bók um þessa lífsreynslu,“ segir Guðjón Bergmann. Ljósmynd/Gilbert Sauceda Á ob.is geturðu valið uppáhaldsliðið þitt á HM í fótbolta sem fram fer í Brasilíu í júní og júlí. Daginn eftir alla leiki hjá liðinu færðu afslátt af bensíni og dísel með lyklinum, sem nemur 5 krónum á hvert mark sem liðið þitt skoraði. Ef þú átt ekki lykil, sendum við þér hann. Afslátturinn gildir hjá ÓB og Olís. KR. FYRIR HVERT 5 MARK

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.