Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Side 56
56 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.6. 2014
Ragnar Hólm Ragnarsson opnar í dag, laug-
ardag klukkan 14, sýningu í Populus tremula
á Akureyri og kallar hana „Loftið & landið“.
Ragnar hefur á undanförnum árum haldið
nokkrar sýningar á vatnslitamyndum en að
þessu sinni sýnir hann ný olíumálverk. Sýn-
ingin er einnig opin á hvítasunnudag og annan
í hvítasunnu kl. 14 til 17 en aðeins verður
opið þessa einu helgi.
Um sýninguna segir Ragnar: „Ég hef aðeins
verið að færa mig út undir bert loft með
olíulitina en það er örlítið þyngra í vöfum að
þvælast með þá um landið en vatnslitina þótt
hvort tveggja sé gríðarlega skemmtilegt. Á
sýningunni verða mestmegnis flunkuný olíu-
málverk, bæði stílfært landslag og minni ab-
straktmyndir.“
RAGNAR HÓLM SÝNIR
LOFT OG LAND
Ragnar Hólm Ragnarsson opnar sýningu í
Populus tremula á Akureyri og sýnir málverk.
Myndverk tengt sýningu Margrétar H. Blöndal á
Siglufirði. Hún hefur sett þar upp innsetningu.
Margrét H. Blöndal myndlistarkona opnar
sýningu í Kompunni í Alþýðuhúsinu á Siglu-
firði á þriðjudaginn kemur klukan 17. Mar-
grét hefur síðustu viku dvalið á staðnum og
unnið innsetningu sem hún kallar „Út“ beint í
Kompuna.
Margrét er einn þekkktasti íslenski mynd-
listarmaður sinnar kynslóðar. Hún er fædd
árið 1970 og nam við MHÍ og við Mason
Gross School of Arts í Rutgers-háskólanum í
New Jersey í Bandaríkjunum. Á undan-
förnum árum hefur hún sýnt víða um lönd,
meðal annars í Berlín, Listasafni Reykjavíkur,
Texas, Dublin og í Basel í Sviss. Kompan er
opin daglega kl. 14-17 og þegar skilti er úti.
MARGRÉT SÝNIR Á SIGLUFIRÐI
ÚT Í KOMPUNNI
Ung ítölsk nunna, sem
vakti mikla athygli þegar
hún tók þátt í vinsælli
hæfileikakeppni í ítölsku
sjónvarpi, sigraði í úrslit-
um keppninnar.
Systir Cristina Scuccia
flutti lag Aliciu Keys „No
One“ í forkeppninni og sló
það í gegn í netheimum;
horft hefur verið á það
meira en 50 milljón sinnum. Í úrslitunum
kom hún fram í nunnubúningi með kross um
hálsinn, söng það aftur og þakkaði Guði fyrir
sigurinn. Scuccia sagði lagið tjá „fegurð
Guðs“ og sagði frammistöðu sína í keppninni
ekki sér að þakka „heldur manninum þarna
uppi!“ Hún sagðist ekki vera að hefja söng-
feril heldur væri hún sendiboði trúarinnar og
fór að því loknu með faðirvorið.
SÖNGVAKEPPNI Á ÍTALÍU
NUNNA SIGRAÐI
Systir Cristina
Scuccia
Þessi tónleikaröð er sannkölluð kjölfesta í menningarlífi mið-borgarinnar,“ segir Sigurður Flosason, saxófónleikari og um-sjónarmaður hinnar árvissu jazzsumartónleikaraðar veitinga-
hússins Jómfrúarinnar við Lækjargötu. Fyrstu tónleikar sumarsins
hefjast þar klukkan 15 á laugardag og þá kemur fram Fley tríó, sem
er tríó píanóleikarans Egils B. Hreinssonar. Með konum koma fram
Gunnar Hrafnsson á kontrabassa og Kjartan Guðnason á trommur.
Tríóið er vel samstillt enda hefur það leikið vikum saman á skemmti-
ferðaskipi sem siglt hefur um Eystrasalt, Norðursjó og Miðjarðarhaf.
Á efnisskránni er úrval þekktra standarda.
Góðir gestir koma fram með tríóinu á tónleikunum, Högni Eg-
ilsson, söngvari hljómsveitarinnar Hjaltalín, en hann er sonur hljóm-
sveitarstjórans, og Jóel Pálsson saxófónleikari.
„Úthald þessarar tónlistarhátaíðar hefur verið mikið og gott. Hún
nýtur engra styrkja og er kostuð af Jakob Jakobssyni, veiting-
armanni á Jómfrúnni,“ segir Sigurður en aðgangur er ókeypis á alla
tónleikana.
Torgið á bak við Jómfrúna hefur minnkað nokkuð vegna fram-
kvæmda sem standa yfir við Hótel Borg en Sigurður segir að fram-
kvæmdir muni liggja niðri meðan á leik tríósins stendur.
SUMARJAZZINN HEFST AFTUR Á JÓMFRÚNNI
Högni djassar
með Fley tríói
Fley tríó skipa þeir Gunnar Hrafnsson, Kjartan Guðnason og Egill B.
Hreinsson. Þeir leika þekkta og vinsæla djassstandarda fyrir gesti.
SUMARJAZZINN HLJÓMAR NÍTJÁNDA SUMARIÐ Í RÖÐ.
GÓÐIR GESTIR KOMA FRAM Á TÓNLEIKUNUM.
Menning
E
in eftirsóttasta klassíska hljóm-
sveit samtímans, Mahler Cham-
ber Orchestra (MCO), kemur
fram á Midsummer Music Festi-
val í Hörpu 15. júní næstkom-
andi. Er það fagnaðarefni fyrir tónlistarunn-
endur, því þessi vandaða hljómsveit er á
ferðalagi í 150 til 200 daga á ári hverju og
kemur fram í helstu tónleikahúsum, þar sem
gagnrýnendur ausa hana lofi fyrir ferska og
skýra túlkun á samtímatónlist sem eldri
klassískum verkum. Rúmlega þrjátíu hljóð-
færaleikarar koma hingað til lands og leika
undir stjórn hins athyglisverða finnska fiðlu-
leikara Pekka Kuusist. Og efnisskráin er í
anda Midsummer Music-hátíðarinnar, nýtt
og gamalt í bland: fiðlukonsert eftir Johann
Sebastian Bach, „Shaker Loops“ eftir John
Adams og þrjú verk eftir einn helsta meist-
ara mínimalismans, Steve Reich.
MCO var stofnuð árið 1997 af hópi tónlist-
arfólks sem var þá vart orðið tvítugt en þau
voru öll fyrrverandi meðlimir einnar bestu
ungmennahljómsveitar heimsins, Gustav
Mahler Youth Orchestra. Þau kusu að kenna
sig áfram við Mahler og bættu við „kamm-
erhljómsveit“; gagnrýnendur benda þó iðu-
lega á að hljómsveitin sé mun stærri en
hefðbundin kammerhljómsveit og í raun er
það sinfóníetta sem hingað kemur en kjarna
sveitarinnar skipa um 45 manns, flestir á
aldrinum 35 ára til fertugs.
Allt frá stofnun vann MCO náið með hin-
um heimskunna hljómsveitarstjóra Claudio
Abbado, sem lést í janúar síðastliðnum.
Einnig hafa þau unnið mikið með Daniel
Harding, sem var um skeið aðstoðarmaður
Abbados, og þá hefur hljómsveitin á undan-
förnum árum unnið með norska píanóleik-
aranum Leif Ove Andsnes og flutt alla pí-
anókonserta Beethovens víða um lönd, við
einróma lof. Meðal annarra listamanna sem
MCO hefur starfað og hljóðritað með má
nefna Esa-Pekka Salonen, Pierre Boulez og
Mörthu Argerich.
Alls staðar frábærir dómar
Steinunn Birna Ragnarsdóttir fagnar komu
MCO til Íslands enda sé um eina bestu og
vinsælustu hljómsveit samtímans að ræða.
Hún segir að áður en Abbado lést hafi við-
ræður um komu hans hingað, með Mozart-
hljómsveitinni sem hann leiddi einnig, verið
langt komnar. Af því varð ekki vegna fráfalls
meistarans en hún hitti stjórnendur MCO að
máli og samningar náðust um að hljóm-
sveitin kæmi hingað í sumar. „Það er erfitt
að finna staðgengla fyrir risa eins og Claudio
Abbado og Mozart-hljómsveitina en ef ein-
hverjir standa undir því þá er það Mahler
Chamber Orchestra,“ segir Steinunn Birna.
„Þau vinna eftir þeirri hugmyndafræði að
tónlistin sé tungumál sem allir eiga sameig-
inlegt og allir eigi að hafa jafnt aðgengi að.
Það getur verið erfitt að lifa eftir þeim
ásetningi en það er virðingarvert að sjá
hljómsveit á borð við MCO leggja sig í líma
við að láta það ganga upp.
Þetta er hljómsveit af hæsta mögulega
gæðastaðli og það verður merkisviðburður að
heyra hana leika í Hörpu. Hún fær alls stað-
ar frábæra dóma.“
Miðla tónlist af ástríðu
Uppbygging og skipulag MCO er um margt
óvenjulegt þegar um svo stóra og virka
hljómsveit er að ræða. Stofnfélagarnir hafa
allir jafnan atkvæðisrétt um allar ákvarðanir
sem tengjast rekstri og listrænni stefnu og
þá hefur hún ekkert fast tónlistarhús sem
sveitin getur kallað heimili. Á skrifstofu
hljómsveitarinnar í Berlín eru tíu starfsmenn
MAHLER CHAMBER ORCHESTRA LEIKUR Í HÖRPU
„Ekkert leysir upplifun á
tónleikum af hólmi“
„ÞAÐ VERÐUR MERKISVIÐBURÐUR AÐ HEYRA HANA LEIKA Í HÖRPU,“ SEGIR TÓNLISTARSTJÓRI HÚSSINS UM
HINNA KUNNU HLJÓMSVEIT, MAHLER CHAMBER ORCHESTRA, SEM KEMUR Í FYRSTA SKIPTI FRAM Á ÍSLANDI.
Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is
Finnski fiðluleikarinn Pekka Kuusisto
stjórnar Mahler Chamber Orchestra á
tónleikunum í Hörpu um næstu helgi og
leikur auk þess einleik í öðrum fiðlukons-
erti J.S. Bachs.
Þetta er í fyrsta skipti sem Kuusisto
starfar með hljómsveitinni en er
óhræddur við nýjar leiðir og er ein skær-
asta unga stjarna klassíska tónlist-
arheimsins í Norður-Evrópu. Hann varð
fyrstur Finna til að sigra í alþjóðlegu Si-
beliusar-fiðlukeppninni og hlaut Nor-
rænu tónlistarverðlaunin árið 2013.
Stjörnufiðlarinn Pekka Kuusisto.
Ljósmynd/Kaapo Kamu
Ein skærasta
unga stjarnan
FIÐLULEIKARINN KUUSISTO