Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Page 64

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.06.2014, Page 64
SUNNUDAGUR 8. JÚNÍ 2014 Tveir átta vikna hvítir ljóns- hvolpar, Mombasa og Nala, voru frumsýndir í dýragarði í Ung- verjalandi í vikunni. Hvolparnir, sem fæddust á Norður-Ítalíu í apríl, hafa dafnað vel síðan þeir komu í heiminn. Þeir æfðu í það minnsta öskrin fyrir blaða- og fréttamenn sem fjölmenntu til að sjá þá. Hvít ljón eru meðal sjaldgæf- ustu dýra veraldar en samkvæmt Vísindavefnum er ekki vitað til þess að villt hvít ljón finnist leng- ur í náttúrunni. Að sama skapi finnast á þriðja tug hvítra ljóna í dýragörðum. Ástæða þess að hvít ljón eru ekki lengur til í náttúrunni er að hvítum ljónum gengur mun verr að veiða sér til matar. Ljón hlaupa ekki langar vegalengdir á eftir bráð sinni heldur reyna að laumast sem næst og taka síðan á sprett, en þau geta hlaupið á 60 kílómetra hraða á klukkustund. Til að komast nálægt bráðinni kemur hinn klassíski feldur þeim vel en getur reynst hvítum ljónum erfiður, enda er hvítur litur ekki beint algengur á sléttum Afríku. Þau Mombasa og Nala munu eyða ævinni í Magán-dýragarðinum, sem er rúma 60 kílómetra frá höf- uðborginni Búdapest. FURÐUR VERALDAR Hvít ljón í Ungverjalandi „Hvít ljón eru ekki albínóar í ströngustu merkingu þar sem litarefni er til stað- ar í augum og loppum þótt það vanti í húð og feld,“ segir á Vísindavefnum. AFP ÞRÍFARAR VIKUNNAR Ryan Gosling leikari. Luke Shaw knattspyrnumaður. Pétur Viðarsson knattspyrnumaður. Á ferðinniÍ sumarhúsinuÍ útilegunni H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA 12.990 kr. Gegn 6 mán. 4G Netáskrift, stærri en 1 GB eða 22.990 kr. stgr. 4G Ferðanetbeinir (MIFI) Gegn 6 mán. 4G Netáskrift, stærri en 1 GB eða 15.990 kr. stgr. 7.990 kr. 4G Nettengill 22.990 kr. Gegn 6 mán. 4G Netáskrift, stærri en 1 GB eða 36.990 kr. stgr. 4G Netbeinir 4G Netáskrift er fyrir þá sem vilja tengjast netinu á auðveldan hátt í sumarhúsinu, bílnum og á ferðalögum innanlands. 1.190 kr. 2.190 kr. 3.990 kr. 1 GB Áskrift Áskrift & netfrelsi Áskrift & netfrelsi 5 GB 15 GB 5.190 kr. 6.490 kr. Áskrift Áskrift 50 GB 100 GB Undirbúðu sumarið Þú missir ekki af neinu í sumarhúsinu eða á ferðalögum innanlands með ferðanetbúnaði og 4G Netáskrift Vodafone. Kíktu við í næstu verslun okkar og græjaðu þig upp fyrir sumarið. Vodafone Góð samskipti bæta lífið Það er líf og fjör í Húsdýragarðinum um þessar mundir en í byrjun viku kom í heiminn splunkunýr kópur í Húsdýragarðinum. Það var hún Esja sem kæpti fyrsta kópnum snemma á mánudagsmorgun. Esja er sjálf fædd 2005. Urturnar sem búa í Fjölskyldu- og hús- dýragarðinum eru þrjár talsins og hafa yfirleitt fært sjómönnum landsins einn kóp að gjöf enda flestar kæpt í kringum sjómanna- daginn. Stella Kristjánsdóttir, dýrahirðir í Fjölskyldu- og húsdýragarð- inum, segir að allt hafi gengið að óskum. „Það er búið að ganga ljómandi vel,“ segir Stella. Urturnar hafa allar kæpt árlega og er venjan að einn kópur komi í hvert skipti. „Við gerum ráð fyrir að það komi tveir kópar í viðbót á allra næstu dögum.“ Spennan er því mikil og um að gera að skella sér í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn til þess að berja þessi dásamlegu dýr augum. Urturnar fæða kópana með næringarríkri mjólk í fjórar vikur en eftir það eru þeir upp á eigin spýtur. Það getur verið erfiður tími þar sem þeir þurfa að átta sig á því hvað fæða er og hvernig þarf að ná í hana. NÝTT LÍF Í HÚSDÝRAGARÐINUM Esja kæpti einum kópi Nýi kópurinn, sem er urta. Ljósmyndir/Stella Kristjánsdóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.