Stígandi - 01.04.1944, Page 10

Stígandi - 01.04.1944, Page 10
STÍGANDI GAMALT LAG" Mér gengur að hjarta gamalt lag, sem glitrandi fer um liðinn dag. Eg heyrði af fógætri, fágaðri örk eitt flóð af tónum — einn sorgar brag. Einn einstakan förumann eigin dóm heyja og að alvalds knjám sig í duftið beygja, er fótsár af ævinnar eyðimörk fann einn unaðsblett — til þess að deyja. Eitt gamalt lag — og ein glitrandi vin; geislandi vor, undir söngva hlyn með aðdrætti væringja um opin sund. Æ önnur í námunda fegurri en hin. Móðir og bræður á eflingar armi — og útsýnin jafnframt á glötunar barmi, Væringjaleit og opin und í eldum af þrá — og harmi. Víðfaðma sál, með sár í rót, er sóttir fram um hver tímamót, með vaxtarins þrá í innstu eind og efans trefjar í hverri rót; ljóma af flugdirfðar fyllsta þori í fágætri leit að nýju vori, sindur á mannssálna leyndustu leynd — og launsár í hverju spori. Þú áttir þér trú og efa til hálfs. Fórst einn þína leið til þíns eigin sjálfs, einstigi þar, sem engin mögn ná öðru miði en síns eigin sjálfs. Allra jniði, sem ákalli hlýða útsævar líðandi, stríðandi tíða. Með stærstu und þína í stórri þögn þú steigst fyrir dómara lýða.-----

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.