Stígandi - 01.04.1944, Page 35

Stígandi - 01.04.1944, Page 35
STÍGANDI KONUNGUR ÍSLENZRA VIÐA 113 um. Voru fréttirnar um för okkar þegar flognar milli bæja í sveitinni — og þóttu sæta stórtíðindum. „Mennirnir, sem óðu Markarfljót“, vorum við síðan kallaðir af sumum, og flaug sú frægð víða á árunum fyrir Alþingishátíðina! En meira þykir mér samt verð minningin um sjaldgæft ferðalag og ógleyman- lega fagran dag. Tíminn flýgur fram. Bráðum eru seytján ár liðin, síðan þetta var. Reynirinn er fallinn, brotnaði fyrir snjó einhvern veturinn (1936 eða ’37?) á næstliðnum áratug þessarar aldar. En af- sprengur hans lifir á gilsbarminum, að sögn, og getur átt eftir að verða mikill og voldugur eins og meiðurinn gamli. En hans er saknað, svo er víst. Síðan þetta var, hefi ég séð nokkra væna reyniviði. Þeir myndarlegustu eru reynirinn í Bæjargilinu í Skaftafelli í Öræfum, þjóðfræg hrísla, og reynirinn í Eyvindar- árgili á Fljótsdalshéraði, sem fáir þekkja, en er tvímælalaust eitt hæsta tré á landinu. Þó var „hríslan“ í Nauthúsagili án efa miklu stærst. Hún var fyrirbrigði, ef til vill kynlegasti kvistur, í bókstaflegri merkingu, sem sprottið hefir úr íslenzkri mold á næstliðnum öldum. í sannleika sagt hefi ég mörgum sinnum undrazt þroska hins gamla viðar í skugga Eyjafjalla. Og hann hefir við íhugun orðið mér tákn, ímynd þess bezta, er vaxið get- ur úr íslenzkri mold, aukið trú mína á gæði hennar og hollustu- gildi þess að búa í nágrenni við eldinn og ísinn — þrátt fyrir allt. 8

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.