Stígandi - 01.04.1944, Síða 57

Stígandi - 01.04.1944, Síða 57
STÍGANDI í ORLOFI 135 Jón þessi Jónsson hafði aldrei á sláttuvél stigið. Og því var. Eg hraðaði mér í bæinn og fór að raka mig, klæddi mig svo í sparifötin yzt og innst. Ég var að enda við þetta, þegar Gógó birtist í eldhúsdyr- unum. Fögur var hún í gærkvöldi, en hvað er það hjá þessu? Hún er ekki lengur í buxunum, er nú í rauðum kjól úr einhverju fínu, mjúku og gljáandi. Manni getur litist vel á ungar stúlkur í bux- um, en enginn elskar þær fyrr en þær koma í kjólana. Hún var útsofin og endurnærð eftir áreynslu ferðalagsins á öræfum íslands. Þá voru augu hennar með hitabliku, en dauf. Nú eru þau skær og brennandi eins og sólargeislar um miðjarð- arlínu. Og varirnar eins og rauðasta rós. Enda hafði hún brugðið í munn sér broddi nokkrum, sem umbreytti þeim eins og í blómstur á vordegi, sem er lifrautt. Æskan ljómaði af henni og lífsþrótturinn. — Góðan daginn, sögðum við bæði, og rödd hennar leið um mig eins og áfengi. Kaffið sauð. — Jasja, segir hún. Hvar eru bollapörin? Ég get ekki séð, að þú gerir allt. Ég opnaði skáp yfir borðinu. í efstu hillunni var sett af postu- línsbollapörum, alveg uppi við loft. Ég fór að teygja mig upp í hilluna. — Nei, nei, segir Gógó, lof mér, lofaðu mér að gera eitthvað. Svo tiplaði hún upp á bekkinn og studdi um leið á öxlina á mér. Hún orkaði ekki að klífa brattann öðruvísi. Og bollapörin komu sígandi ofan úr hæðunum. Óóh, þetta er svo agalega, voða, voða hátt, segir hún, ég alveg fótbrotna að stökkva. Um leið studdi hún á herðarnar á mér og beygði sig. — Ekki að brjóta litlu fæturna, segi ég, ekki brjóta fætuma, ekki brjóta. Og fjaðurmagn hennar eins og gufaði úr vöðvunum og stælingin. Ég tók yfir um hana, svo að hún félli ekki og hrap- aði og bar hana eins og krakka niður á jafnsléttu. — Hiií, óoh, skríkti hún og hló á meðan og hélt vanga mín- um inn að brjóstunum. Síðan kyssti hún mig með rauðu vörun- um lengi, lengi, lengi. — Elskulega, sagði ég, engin einasta getur heitið eins fallegu stúlku-nafni og þú. Það hljómar eins og ástarkvæði. Um hádegisbilið voru gestirnir búnir til brottferðar. Áðan heyrðust högg úti í gömlu smiðju. Bóndinn var að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Stígandi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.