Stígandi - 01.04.1944, Page 64

Stígandi - 01.04.1944, Page 64
142 SÍÐASTI FJÁRKLÁÐAVÖRÐURINN STÍGANDI syðstur bæja í Skagafirði. En Hjálmar fékk leyfi sýslumanns Skag- firðinga, Guðmundar Björnssonar, síðar Barðstrendinga yfir- valds, sem settur var fyrir sýsluna þetta sumar, til að hafa mig í verðinum á eigin ábyrgð við og við um sumarið á meðan hann gegndi nokkrum nauðsynlegum störfum heima. Þá er vörður hófst, stóðu fyrir dyrurn fráfærur og sumarkauptíð. Var ég því fyrstu 14 dagana þar efra. Og síðar um sumarið var ég þar tvisvar fáa daga i senn. Auk þess flutti ég matföng til þeirra félaga um sumarið nokkrunr sinnum. Þriðjudaginn 14. júní lögðum við Björn af stað í útivist þessa. Ég var fullur eftirvæntingar. Nú gafst mér færi á að kanna nýjan heim og lifa þar um stund við lítt jrekkt kjör, heim, sem ég hafði heyrt gangnamenn segja frá og lýsa og ég liafði oft horft til lang- þráðum augum af fjallshrúnum Vesturdals. Veðrið var gott, að- eins lítil norðankæla og þykkt loft. Við höfðum sinn hestinn hvor til reiðar og flutning, svo sem vistir, tjald og fatnað á hinum þriðja. Fórum við upp úr Vesturdal hjá Þorljótsstöðum, og svo venjulega gangnamannaleið suður hálendið. Björn var alveg ókunnugur þarna, en ég hafði einu sinni komið upp að Efribökk- um en ekki lengra. Er Jrá komið nokkuð inn fyrir efstu drög Vest- urdals, og um það hil hálfnuð leið frá byggð til jökuls. En ég Jjekkti lítillega afstöðu Jjar suður, og auk þess hafði Hjáhnar lát- ið okkur fá lauslegan uppdrátt eða riss af landslaginu, er lengra kom inn á öræfin, til stuðnings og leiðbeiningar. Við héldum nú för okkar áfram viðstöðulítið að gangnamanna- kofa, sem er norðvestur við Orravatnarústir. Opnast þar meiri sýn til suðurs. Var nú komið fram undir miðnætti, en um kl. 3 höfð- um við lagt af stað úr byggð. Himininn var að mestu heiður orð- inn og blikuðu jöklarnir í suðri fagurlega. Við áðum nú þarna og lögðum okkur til svefns, en notuðum Jjó ekki kofann né nenntum að leysa upp tjaldið. Laust eftir sólaruppkomu, — en sólin kemur snemma upp þarna um þetta leyti árs, — vöknuðum við með hálfgerðum hrolli, Jrví að næturkul var nokkurt, þótt veður væri gott. Varð ekki meira um svefn hjá okkur, enda dróst nú athyglin að útsýninu, sem var undra stórfenglegt og fagurt Jjarna í morg- unljómanum. Og að eyrum okkar barst margraddaður, liljómþýð- ur fuglasöngur sunnan úr Rústunum. Var Jretta hrífandi morgun- stund. Er þarna vítt og mikið mýrlendi, margar smátjarnir og einnig stærri vötn, Reiðarvötn, Orravatn, og auðugt fuglalíf á sumrin. Þar var alkunnugt grasatekjuland í ganrla daga. Annars

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.