Stígandi - 01.04.1944, Page 69

Stígandi - 01.04.1944, Page 69
STÍGANDI SÍÐASTI FJÁRKLÁÐAVÖRÐURINN 147 hafa komizt austur yfir varðlínuna um sumarið. Lögðu þær í Héraðsvötn á Dalseyrunum, að ætlað var, laustfyrirgöngurnar, er nótt var orðin dimm. En að engri sök kom það. Sumarið 1937, eftir þriðjung aldar, gisti ég Polla í annað sinn, þá sem gestur. Það var af óvæntu atviki, og óhamingjusömu að vísu. Þjóðin bar ekki gæfu til að vörðurinn 1904 skyldi verða hinn síðasti í glímu liennar við sauðfjársjúkdóma. Nýjan vágest hafði horið að garði hér, geigvænni öllum fjárkláðafaraldri, að því er virðist. Það er hin svonefnda mæðiveiki, sem enn er bar- izt við, vonlítilli baráttu. Til að hindra útbreiðslu hennar voru girðingar settar upp víða og verðir skipaðir hér og þar, þar á meðal við Héraðsvötn og Austari-Jökulsá. Var hann með sama hætti og hinn fyrri, skipaður 9 manna sveit auk brúarvarða, sem nú voru nauðsynlegir. Efstu varðmennirnir tveir héldu enn til í Pollum. Einn af gömlu varðmönnunum, Gísli Gíslason, tók þátt í verðinum sem brúarvörður. Við þessa frétt vöknuðu hjá mér minningar frá sumrinu 1904 svo sterkar, að þetta tækifæri til að heimsækja fornar varðstöðvar gat ég ekki látið ónotað. Ég var þá fyrir löngu fluttur til Akureyrar. Fór ég með áætlun- arbifreið vestur að Silfrastöðum sunnudaginn 8. ágúst. Þaðan gekk ég fram austan Vatna og náði að Skatastöðum í Austurdal, gömlu bernskuheimili mínu, um kvöldið, en þar er kláfur á Jökulsá. Gisti ég þar lijá góðum kunningjum, og léðu þeir mér hest daginn eftir að varðstöðvunum á Keldudal. Þar héldu vörð Ólafur Jóhannsson bóndi á Miklabæ — nú látinn — og Hrólfur Þorsteinsson bóndi á Stekkjarflötum, livorutveggja frískleika- menn og árvakrir. Við Hrólfur vorum leikbræður í æsku, er við sátum hjá ám á sumrin, hann á Hofi í Vesturdal, en ég á Þor- ljótsstöðum. Er hann orðlagður göngugarpur og þrautreyndur fjárleitarmaður um hina löngu og viðsjálverðu Nýjabæjarafrétt. Þess má geta, að liann hefir nú verið varðmaður í öll þau 7 sumur, er mæðiveikisvörðurinn hefir verið haldinn, þar af 6 suður í óbyggðum. Eg gisti um nóttina hjá þeim félögum, en á þriðju- dagsmorguninn fylgdi Hrólfur mér á hestum suður að Orravatna- rústum. Þaðan gekk ég suður í Polla og var kominn þangað laust eftir liádegi. Fannst mér þá ég hafa náð löngu þráðu marki. Á meðan ég beið heimkomu varðmanna, lét ég hugann reika 10*

x

Stígandi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.