Stígandi - 01.04.1944, Síða 72
STÍGANDI
GRÍMUR SIGURÐSSON:
NOKKUR ÖRNEFNI
í LANDNÁMI EYVINDAR LOÐINSSONAR.
Gunnsteinar og Ódeila.
Á uppdrætti herforingjaráðsins danska stendur nafnið „Ó-
deila“ við fjallið sunnan Austara-Hvanndals í Eyrarfjalli, eða
réttara sagt, á mörkum Eyrarfjalls og Víknafjalla.
í tímaritinu „Dvöl“ birtist fyrir skömmu snjöll grein um
Kinnarfjöll eftir Þóri Baldvinsson. í grein þeirri getur „Ódeilu"
í Kinnarfjöllum. Þar er, fyrir víst, „Ódeilu“-nafnið á fjallinu
sunnan Hvanndala tekið gott og gilt og þá farið eftir uppdrætti
herforingjaráðsins. Þetta fjall getur þó naumast talizt til Kinnar-
fjalla. — En hvað um það; hitt er víst, að Ódeilunafnið hefir aldrei
fyrr en nú á korti herforingjaráðsins verið tengt þessu fjalli. Það
er einnig í mesta máta óheppilega til fundið að festa Ódeilu-
nafnið við Jretta fjall; það liggur í augum uppi, þegar athuguð er
urnsögn Landnámu um Ódeilu og afstöðu landnáma Eyvindar
Loðinssonar og Þóris snepils.
í Landnámu segir svo um landnám í Flateyjardal:
„. . . . en Eyvindur son hans (Loðins önguls) nam Flateyjardal
upp til Gunnsteina ok blótaði þá; þar liggur Ódeila á milli ok
landnáms Þóris snepils. . . .“
Um landnám Þóris snepils segir:
,,. . . .Þórir nam síðan Hnjóskadal allan til Ódeilu. ..."
Hvar eru þá Gunnsteinar og hvar er Ódeila?
Frásögn Landnámu bendir ótvírætt til þess, að Gunnsteinar
hafa verið á endamörkum landnáms Eyvindar. Hann nam land
„upp til Gunnsteina". Á Gunnsteinum hafði Eyvindur helgi „ok
blótaði þá“. Eflaust hefir hann framið blótin uppi við Gunn-
steina.
Á innanverðri Flateyjardalsheiði, í „gilinu" við Finnboga-
kamb, gengur all-sérkennileg klettabrík fram í gilið og til norð-
austurs. Milli bríkur þessarar og gilbarmsins að austan myndast
kriki. Kriki þessi nefnist „Véskvíar".