Stígandi - 01.04.1944, Qupperneq 75

Stígandi - 01.04.1944, Qupperneq 75
STIGANDI DR. ROBERT MAYNARD HUTCHINS: TÓMSTUNDIR - ÞJÓÐFÉLAGSÞROSKI Sannasti mælikvarðinn á menntun einstaklinga er, hvernig þeir verja tómstundum sínum. Forngrikkir sögðust vinna til þess að öðlast tómstund- ir. En af orði því er hjá þeim táknaði hugtakið tómstund, er komið orðið skóli. Þeir litu ekki svo á, að vinna bæri til þess að afla fjár til bíóferða eða baðstaðalífs. Vinnan var í þeirra augum nauðsynleg til að afla þeim að- stöðu til fræðslu, íhugunar og til að gegna borgaralegum skyldum. Og af því að þeir vörðu tómstundum sínum á þennan hátt, þá urðu þeir leiðtogar og kennifeður allra þroskasækinna kynslóða. Grikkir litu svo á, að markmið lífsins væri hamingja. Hamingjan fælist fyrst og fremst í þroskun æðri eiginleika mannsins, og þessi þroskun ynnist við fræðslu, íhugun og virka þátttöku í félagslífi, og sá, sem hafði þær fáar sem engar, var tæpast talinn til manna. Tómstunda sinna öfluðu Grikkir sér með þeim hætti, sem við teljum ekki lengur réttmætan. Þeir létu þræla vinna fyrir sig. Þrælar voru ekki taldir til manna. Hugsuðir Grikkja héldu því fram, að þar eð tómstundir væru hverjum manni nauðsynlegar til þroskunar mannrænum hæfileikum sínum, gætu þeir, sem engar tómstundir hefðu, er gæfi þeim tækifæri til fræðslu, um- hugsunar og þátttöku x stjórn borgríkisins, ekki talizt hæfir sem borgarar lýðríkis, væru ekki menn. í nútíma-þjóðfélagi er litið á tómstundir sem almenn mannréttindi. I stað þræla eru vélarnar komnar. Vinnustundum fækkar sífellt. Tómstund- ir eru ekki lengur forréttindi fárra, heldur sjálfsagt keppikefli allra. Þessi þróun mun halda áfram. Og eftir þetta stríð mun margt nýtt koma fram á sviði tækninnar, sem enn dregur úr vinnuþörf mannsins við likamlegt erfiði. Eg hygg, að mannkynið standi nú við upphaf en ekki endi byltingar vísindanna. Framleiðslan mun gerast enn tröllauknari, kröfurnar til vinnu- afls mannsins enn minni. Þrátt fyrir endurskipulag og endurreisn eftir stríðið, þrátt fyrir geysi- skuldir og geysi-skyldur við miljónir manna, sem allt hafa misst, mun vinnudagur verkajnannsins enn styttast og vinnuvikan einnig, og sá tími lengjast, sem hann á sjálfur ráð á. Vélar geta leyst menn úr ánauð. En frelsi er ekki endanlegt takmark. Frelsið er þér engin náðargjöf, nema þú kunnir að notfæra það. Ef við álítum eins og Forngrikkir, að hamingju lífsins sé að finna í þrosk- un gáfna og siðgæðis og þjóðfélagslegum störfum, þá eru það hinar sönnu frjálsu stundir okkar, sem við verjum þann veg.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Stígandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.