Stígandi - 01.04.1944, Qupperneq 76

Stígandi - 01.04.1944, Qupperneq 76
154 TÓMSTUNDIR — ÞJÓÐFÉLAGSÞROSKI STÍGANDI Þroski þjóðfélags þess, sem við lifum og hrærumst í, ákvarðast af því, hvort okkur auðnast að verja vaxandi tómstundafjölda okkar til sóknar að fyrmefndum markmiðum eða eyðum aðeins meiri tíma í æðikeyrslu um þjóðvegi landsins, í kappakstrinum um að sjá allt — ekkert, kynnast öllu — engu. Það er komið svo, að það er orðið eitt af ábyrgðarmestu viðfangsefnum okkar, hvernig gagnslausum tómstundum fjöldans verði breytt í náms- og þroskatíma. Ekki til að fræðast um, hvernig við fáum okkur bezt borgið efnalega, heldur hvernig við fáum lifað farsællegast. Flestir iðnverkamenn læra verk sitt fullkomlega á tveim til þrem vik- um. Með vaxandi véltækni verðum við meir og meir þjóðfélag hnapp- styðjenda, og tíminn, sem fer í það að læra, hvernig styðja skuli á rétta hnappinn á réttum tíma, styttist sífellt meir og meir. Þegar unnið er við hagkvæmustu skilyrði, þarf verkamaðurinn á minni leikni og minna verks- viti að halda en nokkru sinni fyrr í sögu mannkynsins. Þekkingin á því og færnin til þess „að bjargast" krefst minni og minni að- gæzlu, en erfiðleikarnir við það og vandkvæðin á því að lifa sönnu, farsælu lífi og vera góður þjóðfélagsþegn eru engu minni — ef ekki meiri — en nokkru sinni fyrr. Fræðsla okkar og menntun hefir á öðru leitinu haft að markmiði að búa einstaklinginn undir viss störf eða embætti, en á hinu leitinu svokölluð há- skólastörf. Hins vegar hefir þjóðfélagið Iítið sem ekkert unnið að því að beina sívaxandi tómstundaorku almennings í skynsamlega farvegi, enda er svo komið meðal sumra stétta, að þessi krossgáta, hvernig á ég að verja tómtundum mínum, hefir orðið gáfum þeirra og skapgerð hinn versti nið- höggur. Við vitum ekki, hvað við eigum af okkur að gera þessar verklausu stund- ir. Við stöndum í þeirri ábyrgðarstöðu að teljast ein af forystuþjóðunum á sóknarleiðinni til lýðræðis og jafnréttis,- en erum varbúnir þess að færa þær fórnir, sem slík staða krefur. Eigi allir menn að verða frjálsir, verður að ala hvern mann upp til frelsis. Eigi heimurinn að verða ein lýðræðisleg heild, verður hverri þjóð að lærast að skilja og meta aðrar. Sérhvert þjóðfélag hvílir á hornsteinum samskipta þegnanna, þeir blanda geði saman, skiptast á skoðunum. En slík samskipti leiða til aukins gagn- skilnings. Það er hið mikla uppeldishlutverk framtíðarinnar að örva og glæða þann skilning og hylla menn til að verja tómstundum sínum í þágu samfélagsins og um leið eigins þroska. az
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Stígandi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stígandi
https://timarit.is/publication/1085

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.