Stígandi - 01.04.1944, Blaðsíða 80
158
LEYNDARDÓMAR TILVERUNNAR
STÍGANDI
Það er reyndar athyglisvert að
gera samanburð á þessu og eldri
kenningum dulspekinga: Stjarn-
líkaminn, sem þeir töluðu um, er
líkami orku og sálrænna tilfinninga,
og er talinn tæki huglíkamans.
Stjarnlíkaminn svarar til fjórðu
stærðar, en huglíkaminn svarar til
hugmyndar okkar um fimmtu stærð.
Dulspekingar kenndu reyndar, að
til væru sjö tilverusvið, og öll í sam-
bandi við mannheima, skal því ekki
að svo komnu setja fram nokkrar
fullyrðingar um upptök fimmtu
stærðar.
Það mun flestum nokkur áreynsla
að gera sér grein fyrir ósýnilegum
heimum, sem umlykja þá, og öllum
þeim óteljandi milljónum geisla,
sem leika gegnum loft og jörð úr öll-
um áttum og á öllum tímum. En
þegar þetta skilst, geta menn hugsað
sér mannlegar verur og fasta hluti,
eins og óbreytilega og storknaða
kristallsgervinga, sem svífi í heimi
tindrandi og blikandi hreyfinga.
Þegar við vitum, að allir geislar
þessa heims bera einhvern lit, —
jafnvel hugsanir manna — þá fer
okkur að skiljast margbreytni þess
lifs, sem umkringir okkur, en sem
okkur er hulin, þetta hlýtur að
vekja til nýrra hugsana. — Mitt í
hinni ósýnilegu tilveru svífa frum-
myndir þær og form, sem líf okkar
mótast af. En hvort heldur formin
berast með geislum eða eru þeim
á einhvern hátt samrunnin, verður
ekkert fullyrt um. Hitt er víst, að
myndir og form eru þar, og eru hér,
og alls staðar, stöðug og óbreytileg,
hverju sem viðrar. Ofsarok, hiti,
kuldi, vindur, ský, sólskin og myrk-
ur, hafa engin áhrif á þau. Þau eru
þar, eins og þrýst hvort inn í annað,
og fylla hvern blett rúmsins.
Samkvæmt skilningi okkar er
rúmið svæði, þar sem saman er
komið visst magn af efnum, svo sem
lofttegundum, sem liggja hver að
annarri, hlaðast hver á aðra, en hafa
hreyfingu til allra átta. Rúmið tek-
ur yfir allt, það er fullt af stöðum.
Það hreyfist, sem fer stað úr stað,
en þetta nær aðeins til hinnar
fjórðu stærðar. En er við athugum
eðli hinnar fimmtu stærðar, og tök-
um að skilja hið flókna eðli hennar,
þá sjáum við, hversu gagnólíkar
þessar stærðir eru, og þá reynir á
skilning og þanþol ímyndunar okk-
ar. I stað rúms, sem þengst út, verð-
um við að hugsa okkur rúm, sem
gengur saman. í stað hluta, mynda,
eða forma, sem hlaðast saman og
liggja þétt, fáum við vitneskju um
tilverusvið, þar sem allt er á hverj-
um stað, og allt á öllum stöðum. í
stað hreyfingar frá stað til staðar,
kemur orka, sem umlykur allt. Ferð-
laus hreyfing, sem tala mætti um,
sem varaorku, eða vilja. Fjórða
stærðin starfar út á við, fimmta
stærðin inn á við. En þetta þýðir,
að orsök alls vaxtar, form hans og
orka sú, sem heldur forminu föstu
og varðveitir það, kemur ekki að
utan, heldur er hún uppspretta inn-
an frá hinni fimmtu stærð, sem
menn munu ekki skilja að fullu fyrr
en eftir nokkur hundruð ár.
Samtímis og nýjar uppgötvanir
verða gerðar á sviði stærðanna,
þroskast skilningur okkar á hinum
miklu orkulindum, sem þær geyma.
Lítið hugsandi maður mundi ætla,
að steinöxi hefði meiri styrkleika en
loftkennt efni. Sá hinn sami ætti að
veita því athygli, hvemig þykkar
járnplötur eru ristar sundur með
logsuðutækjum, jafnvel á marar-
botni, til þeirra framkvæmda kæmi
steinöxi að litlu liði.
Þegar fjórðu stærðar orka er
beizluð, þá yfirstigur hún allt, sem
þriðja stærðin á yfir að réða.