Stígandi - 01.04.1944, Side 82
160
LEYNDARDÓMAR TILVERUNNAR STÍGANDI
tíðni, og eru hin naemustu sinnar
tegundar, er enn þekkjast.
Læknar telja, að ekki verði ákveð-
ið, hve mikið sé tækjum þessum að
þakka, eða að hve miklu leyti und-
irvitundarsamvinna sjúklingsins
komi til greina .Við notkun sumra
þessara tækja hefir komið í ljós, að
stundum tekst sjúklingnum að veita
sér sjálfur þann bata, sem tækin
veittu. Undirvitund hans hefir
fylgzt með lækningaáhrifum tækis-
ins, numið þau til fulls, og notað
sína eigin orku til að endurskipu-
leggja hrynjandi líkamans. Aðferð
þessi hefir verið nefnd sjálfsefjun,
og engin vísindaleg skýring hefir
enn verið gefin. En þetta sannar, að
hið innra með manninum býr vilji
og orka, sem starfar að baki forms-
ins, sem líkaminn er reistur á, og
sem orkar að breyta hrynjandi hans
og skapa nýtt svið á sama stað.
Þannig finnum við skyldleikann
við frostrósirnar í fimmtu stærð, í
störfum mannslíkamans.
I þremur fyrstu stærðunum höf-
um við fundið hina fullkomnu efnis-
persónu. í hinni fjórðu geislun alls
lífs, orku og tilfinningar. Hin
fimmta felur í sér öll form, sem
vinna hlutverk sín í líkamsformi
mannsins, og síðast þetta dularfulla:
Viljann eða máttinn, sem sker úr
um hinztu niðurstöðu.
Lærdómur sá, er dreginn verður
af þeirri þekkingu, er fengizt hefir
á fimmtu stærð, er þessi: Allt líf á
þessum hnetti verður að skipuleggj-
ast sem ein óbrotin heild. Þetta þýð-
ir ekki, að menn tapi einstaklings-
eðli sínu. Líkami mannsins er sam-
fléttuð heild, en hvert líffæri, já,
hver fruma, hefir sín sérkenni, sína
eigin öldulengd — því flóknari sem
líkamsheildin er, því meira ríður á,
að hver einstök athöfn hvers líffær-
is sé unnin nákvæmlega rétt.
Fullkominn skilningur þeirrar
kenningar, er stærðirnar flytja,
mundu skapa nýja menningaröld, og
gjörólíkt lífsviðhorf. Líf framtíðar-
innar verður undir áhrifum hinnar
fimmtu stærðar, en þangað til verð-
ur það undir áhrifum hinnar fjórðu
stærðar.
FRÁ ÚTGÁFUNNI
Næsta hefti Stíganda mun að öllu forfallalausu koma út í
sept. Hefir ritið tryggt sér ágætar myndir frá hátíðahöldunum
17. júní, bæði frá Þingvallahátíðinni og svo hér á Akureyri.
Vonumst við eftir að geta birt þær í septemberheftinu.
Þáttinn um bækur vannst ekki tími til að þessu sinni að búa
til prentunar, og olli því annríki þeirra, sem hann hafa skrifað.
En úr þessu mun verða reynt að bæta í næsta hefti.