Stígandi - 01.01.1949, Blaðsíða 54
ýmsum nýjum matartegundum, gervimatartegundum. Með til-
liti til þess skorts, sem mannkynið á við að búa á „náttúrumat",
og ef til vill fer vaxandi en ekki minnkandi, má það vissulega
vera fagnaðarefni.
Mánaðarnöfnin
Janúar cr heitinn eftir rómverska guðinum Janusi, guði upphafsins. Hann hafði
tvö andlit og horfði öðru í austur, en hinu í vestur.
Febrúar er nefndur eftir guðinum Februus (Pluto).
Marz var herguð Rómverja.
April er dregið af af latnesku sögninni aperire, þ. e. að opnast.
Mai dregur nafn af Maia cða Majesta, móður Hermesar, en hún var elzt af 7
dætrum Atlas og Pleione (grísk goðsögn).
Júni hefir hlotið nafn sitt af rómversku gyðjunni Juno, gyðju frjósemdarinnar.
Júli heitir eftir Júlíus Caesar.
Ágúst dregur nafn af Augustus keisara.
September, Október, Nóvember, Desember draga nöfn sín af septem, octo, novem,
decem, latneskum talnaheitum, og þýða sjöundi, áttundi, níundi og tíundi
mánuður.
52 STÍGANDI