Stígandi - 01.01.1949, Síða 69
Árin og eilífðin.
Haraldur Níelsson: Arin ug ci-
lifÖin. Helgafell.
Út kom á sl. ári á vegum Helgafells
önnur útgáfa á stólræðum sr. Haralds
Níelssonar, Árin og eilífðin. Þetta er ná-
kvæm endurprentun fyrstu útgáfunnar,
og mun eigi þurfa að kynna bókina fyrir
lesendum Stíganda. Hér er þessarar ann-
arrar útgáfu bókarinnar til þess eins
gctið, að þeir viti, að þeir geta nú aftur
fengið bók þessa í bókaverzlunum, en
þar hefir hún verið ófáanleg um nokk-
urra ára skeið.
Úr þjóðlífinu.
Gungur ug réttir I. Bragi Sigur-
jónsson lajó til prentunar. Norðri.
l'etta er aðeins hluti ritsafns, og þó
25 arkir stórar. Til er ætlazt, að til við-
bótar komi a. m. k. annað bindi ekki
minna, og líklega tvö. í þessu bindi er
fjallað um göngur og réttir sunnanlands,
frá sýslumörkum Austur-Skaftafellssýslu
að austan til vestur og norður sýslu-
marka Mýrasýslu. Vantar þó ýmislegt í,
svo sem um leitir og réttir Mýrdæla og
Austur-Skaftfellinga, Hrunamanna — en
þeir eiga mikil og ævintýraleg afréttar-
lönd — Grímsnesinga og Laugdæla, allar
leitir vestan Olvesár og sunnan Hval-
fjarðar og einnig úr hingvallasveit og
um leitir og réttir Mýrasýslu vestan
Norðurárdals. Bragi Sigurjónsson er rit-
stjóri þessa ritverks alls, jafnt þess, sem
þegar er komið, og þess, sem ókomið er,
og hefir hann safnað skýrslum og rit-
gerðum um þessi efni um allt land, rað-
að þeim og valið til birtingar, lagt til
hæfis og fellt efniviðinn saman. En rit-
gerðir þær, er honum hafa borizt, hefir
hann tekið upp í ritið lítið eða ekki
breyttar frá hendi höfunda þeirra, nema
hvað eitthvað smávegis hefir verið fellt
úr við samskeyti, svo að betur falli í þá
umgerð, sem hann hefir um þær gert.
Orðfæri höfunda hefir hann látið hald-
ast óbreytt, cnda var það sjálfsagt, þar
sem með því eru varðveitt þau tilbrigði
ýmis, sem eru í leitarmannamáli víðs
vegar um landið. Alls koma fram í þessu
fyrsta bindi um 30 höfundar, sumir áður
þjóðkunnir, aðrir lítt kunnir, en allir
kunna þeir vel eða sæmilega að halda á
penna. Mest er framlag þessara manna:
Guðmundar J. Hoffells, Hoffelli í Nesj-
um, Viðfúsar Sæmundssonar, Borgarfelli
í Skaftártungu, Sæmundar Einarssonar,
Stóru-Mörk undir Eyjafjöllum, Sigur-
þórs Olafssonar, Kollabæ í Fljótshlíð,
Olafs Jóhannssonar, Koti á Rangárvöll-
um, Guðmundar Árnasonar, Múla á
Landi, Guðjóns Jónssonar, Ási í Holtum,
Jóhanns Kolbeinssonar, Hamarsheiði í
Gnúpverjahreppi, Eiríks Jónssonar í
Vorsabæ á Skeiðum, Einars J. Helgason-
ar, Holtakotum í Biskupstungum og
Kristleifs Þorsteinssonar á Stóra-Kroppi.
Hefir hver þessara manna ritað afréttar-
lýsingu sveitar sinnar eða jafnvel héraðs
(Kristleifur) og rakið tilhögun gangna
og réttarhalds, en aðrir hafa orðið til að
rita einstakar frásagnir og ævintýri úr
lcitum.
Nú er eftir hlutur Vestlendinga, Norð-
linga og Austlendinga, og eru þeirra af-
réttir eigi síður ævintýralegir, fjöll og
heiðar um Snæfellsnes, Dali og Vest-
fjörðu, Arnarvatnsheiði, sem til norðurs
er gengin, Auðkúluheiði, Grímstungu-
heiði, Eyvindarstaðaheiði, Hofsafrétt,
Nýjabæjarafrétt, afdalirnir milli Skaga-
fjarðar og Eyjafjarðar, Fjörður norður
og Flateyjardalsheiði, dalirnir inn úr
Fnjóskadal, Framdalir og Mývatnsöræfi,
Reykjaheiði og Ásheiði, Öxarfjarðar-
heiði, dalirnir og heiðarnar upp frá
Þistilfirði og Langanesströndum, Haugs-
öræfi og Möðrudalsheiði, Smjörvatns-
heiði, Jökuldalsheiði, Vesturöræfi og
Fljótsdalsheiði, svo að aðeins nokkuð sé
nefnt af því, scm til er. Eiga og Vest-
lendingar, Norðlingar og Austlendingar
þess enn kost að taka Sunnlendingana
5*
STÍGANDI 67