Fréttablaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 2
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 2
Bjarni Frímann Karlsson
sagði það ólýsanlega mikinn
létti að vera loks búinn að
skila frá sér skýrslunni um
fall sparisjóðanna. Bjarni var í
rannsóknarnefnd Alþingis um
fallið.
Jörundur Guðmundsson,
formaður Félags háskólakenn-
ara, sagði háskólakennara
standa fast á því að ekki yrðu
haldin nein próf næðust ekki
sættir í kjaradeilunni við ríkið.
Sigríður Mogensen hagfræð-
ingur sagði vísbendingar um
umfangsmikla svarta atvinnu-
starfsemi í ferðaþjónustunni.
Skatttekjurnar fylgdu ekki auk-
inni neyslu ferðamanna.
Ragnheiður Elín Árnadóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra,
biðlaði til landeigenda við
Geysi um að halda ímyndinni
um frjálsa för óspilltri.
FIMM Í FRÉTTUM SPARISJÓÐASKÝRSLA OG SVÖRT VINNA
➜ Tinna Helgadóttir, sem varð Íslandsmeistari í badminton í þriðja sinn, sagði að eldmóð
vantaði í barna- og unglingastarfi ð í badminton hér á landi.
ANDSTÆTT ÍSLENSKUM HAGSMUNUM AÐ
SLÍTA 16
Þorsteinn Pálsson um aðildarviðræður við Evrópusambandið.
SAGA ÚR SAKAMÁLI 18
Gestur Jónsson um vitni, upplýsingar og hlutverk verjanda.
ORKA, FISKUR OG JAFNRÉTTI 18
Gunnar Bragi Sveinsson um alþjóðlega þróunarsamvinnu.
FRÉTTIR 2➜12
SKOÐUN 16➜18
HELGIN 20➜58
SPORT 82➜84
SEGLAGERÐIN ÆGIR
Þar sem ferðalagið byrjar
FERÐAVAGNAR
Þýsk
gæði
ÚRSLITALEIKUR 84
Liverpool tekur á móti Man. City í leik sem er stillt upp
sem úrslitaleik ensku úrvalsdeildarinnar í ár.
ERFIÐ FERÐALÖG 82
Dregið var í riðla fyrir EM 2016 í handbolta í gær. Ísland
lenti í snúnum riðli og þarf að leggjast í löng ferðalög.
MENNING 68➜71
HAMLET LITLI
FRUMSÝNDUR 68
Fylgt er upprunalegu verki Shake-
speares, sögunni af drengnum litla
Hamlet.
FRÍMÚRARAR HALDA
TVENNA TÓNLEIKA 68
Frímúrarakórinn heldur tvenna tónleika
á morgun í regluheimilinu að Skúlagötu.
LÍFIÐ 72➜90
UNGUR Á UPPLEIÐ 76
Grettir Valsson fer með hlutverk í sýningunni
Dagbók djasssöngvarans.
MCDONALD’S Í TÍSKU 74
Moschino kynnti nýja tískubylgju á tískupöllunum.
HART BARIST UM HYLLI ÁHORF-
ENDA 72
Næstu þátttakendur í Ísland Got Talent kynntir.
GRÆÐA VEL Á BRÉFUM 4
Starfsmenn Sjóvár, sem keyptu bréf í
hlutafj árútboði tryggingafélagsins, gátu
við lokun markaða í gær grætt allt að 1,5
milljónir króna á bréfunum. Almennir fj ár-
festar gátu mest grætt 34 þúsund krónur.
TREYSTA UTANRÍKISRÁÐU-
NEYTI MINNST 8
Í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup segjast fæstir
treysta utanríkisráðuneytinu en fl estir
menntamálaráðuneytinu. Munur er á
viðhorfi til ráðuneyta eft ir stjórnmála-
skoðunum.
FJÖLSKYLDA FÉKK
SPARISJÓÐSFÉ 12
Fyrrverandi stjórnarformaður, einn
stjórnarmaður og börn sparisjóðsstjóra
Sparisjóðsins í Kefl avík nutu mikillar
fyrirgreiðslu hjá sjóðnum. Útlán til starfs-
manna námu alls 1.520 milljónum króna
við yfi rtöku FME.
FJÖLBREYTT ÚTSKRIFTARSÝNING 20
Björg Vilhjálmsdóttir er einn af tíu nemendum sem sýna afrakstur meistara-
náms í hönnun og myndlist.
VILL EKKI HRÆÐA FÓLK 32
Marta Eiríksdóttir hefur tvisvar fengið að kenna á hinum skæða
Lyme-sjúkdómi.
BESTU OG VERSTU ENDURGERÐIRNAR 36
Fréttablaðið tók saman lista yfi r nokkrar góðar og slæmar endur-
gerðir kvikmynda í Hollywood.
VILL ÞÉTTA BYGGÐ 38
S. Björn Blöndal um borgarmálin í Reykjavík.
RÁDÝR OG VILLISVÍN Í REYKJAVÍK 54
Flækjusaga dagsins frá Illuga Jökulssyni.
STJÓRNMÁL Í nýrri skoðanakönn-
un sem Capacent Gallup gerði
fyrir hóp sem kannar möguleika
á stofnun nýs stjórnmálaflokks
kemur fram að 21,5 prósent
aðspurðra telja það líklegt eða
öruggt að þeir myndu kjósa Evr-
ópusinnaðan flokk hægra megin
við miðju.
Sextán prósent segja það
hvorki líklegt né ólíklegt og 62,5
prósent segja það ólíklegt eða að
þau myndu örugglega ekki kjósa
flokkinn.
Spurt var: Ef fram kæmi nýtt
framboð Evrópusinnaðs flokks
hægra megin við miðju, hversu
líklegt eða ólíklegt er að þú
myndir greiða slíku framboði
atkvæði þitt í alþingiskosning-
um ef kosið yrði til Alþingis í
dag? Könnunin var unnin 3. til
10. apríl. Svarendur voru 1.667
og þar af tóku 1.378 afstöðu.
Í nýlegri skoðanakönnun MMR
sagði 38,1 prósent aðspurðra
koma til greina að kjósa nýtt
framboð hægri manna sem
nyti stuðnings Þorsteins Páls-
sonar, fyrrverandi formanns
Sjálfstæðis flokksins.
Benedikt Jóhannesson, for-
maður sjálfstæðra Evrópu-
manna, tengist hópnum sem stóð
að könnuninni. „Ég held að niður-
stöðurnar staðfesti að það virð-
ist vera góður grundvöllur fyrir
frjálslyndum flokki sem leggur
áherslu á markaðsviðskipti og
vestræna samvinnu. Miðað við
þetta er allmargt fólk sem telur
að það sé einmitt tímabært að
fara fram með hann núna,“ segir
Benedikt.
Ef greint er hvað þeir sem
líklegt er að kjósi þennan flokk
kusu síðast kemur í ljós að 26
prósent af fylginu koma frá
þeim sem kusu Sjálfstæðisflokk-
inn vorið 2013, 20 prósent Sam-
fylkinguna, 16 prósent Fram-
sókn, 15 prósent Bjarta framtíð,
4 prósent Vinstri græna og 2 pró-
sent Pírata.
Eva Heiða Hönnudóttir stjórn-
málafræðingur
segir niðurstöð-
ur könnunarinn-
ar áhugaverð-
ar. „Það kemur
ekki á óvart að
af þeim sem
eru tilbúnir til
að kjósa nýjan
hægriflokk
kaus fjórðung-
ur Sjálfstæðisflokkinn í síðustu
kosningum. Þar á eftir kemur
Samfylkingin og þar eru væntan-
lega á ferðinni hægri kratarnir
sem eru Evrópusinnaðir,“ segir
Eva Heiða. „Það er líka áhuga-
vert að 16 prósent af þeim sem
myndu kjósa nýtt framboð kusu
Framsókn síðast, miðað við
hversu mikið Framsókn hefur
sett sig á móti ESB.“
freyr@frettabladid.is
20% myndu kjósa
nýjan hægri flokk
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup myndu rúm 20 prósent að-
spurðra kjósa nýjan Evrópusinnaðan stjórnmálaflokk hægra megin við miðju.
BENEDIKT
JÓHANNESSON
Formaður sjálf-
stæðra Evrópu-
manna segir
niðurstöðurnar
staðfesta að
góður grundvöll-
ur sé fyrir nýjum
hægriflokki.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
EVA HEIÐA
HÖNNUDÓTTIR
SUÐUR-AFRÍKA Oscar Pistorius
sagði við réttarhöld í gær að kær-
astan hans, Reeva Steenkamp,
hefði ekki öskrað þegar hann greip
byssu sína og skaut hana til bana.
Saksóknarinn sagði ólíklegt
að Steenkamp hefði staðið inni í
baðherberginu án þess að segja
nokkuð á meðan Pistorius var
þrjá metra í burtu að æpa á hana
að hringja í lögregluna. Pistorius
sagðist ekki geta útskýrt hvers
vegna hún kallaði ekki á hann.
Íþróttamaðurinn hefur neitað
því að hafa myrt Steenkamp og
segir það hafa verið slys. Hann
hafi haldið að innbrotsþjófur væri
í húsinu og skaut af byssu sinni í
gegnum baðherbergisdyrnar.
Saksóknarinn spurði Pistorius
hvers vegna hann athugaði ekki
hvort Steenkamp hefði heyrt hróp
hans um að hringja í lögregluna
og af hverju hann hefði ekki viljað
fara með hana í öruggt skjól í stað
þess að skjóta á hinn meinta inn-
brotsþjóf. Pistorius sagði það vera
hluta af persónuleika sínum að
takast strax á við þann aðila sem
hann hélt að væri að brjótast inn.
Saksóknarinn sakaði Pistorious
um lygar. „Hún var ekki hrædd
við innbrotsþjóf. Hún var hrædd
við þig,“ sagði hann. - fb
Yfirheyrslur yfir íþróttamanninum Oscari Pistorious héldu áfram í gær:
Segir Steenkamp ekki hafa æpt
OSCAR PISTORIUS Getur ekki útskýrt
hvers vegna Steenkamp kallaði ekki á
hjálp. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Ólíklegt/örugglega ekki
Öruggt/líklegt
Hvorki líklegt né ólíklegt
62,5%
16,0%
21,5%
Ef fram kæmi nýtt framboð Evrópusinnaðs
flokks hægra megin við miðju, hversu
líklegt eða ólíklegt er að þú myndir greiða
slíku framboði atkvæði þitt í alþingiskosn-
ingum ef kosið yrði til Alþingis í dag?
STUÐNINGUR VIÐ
NÝJAN HÆGRI FLOKK