Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 10
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| FRÉTTIR | 10
SVEITARFÉLÖG Hagnaður af
rekstri sveitarfélagsins Ölfuss
nam 93,8 milljónum króna í
fyrra. Rekstur sveitarfélagsins
fyrir fjármagnsliði var jákvæður
um 402,5 milljónir.
Eignir Ölfuss námu við árslok
4.130,6 milljónum króna en skuld-
ir 2.150,7 milljónum. - hg
Skuldar rúma tvo milljarða:
Ölfus hagnast
um 94 milljónir
ÞORLÁKSHÖFN Eiga fjóra milljarða en
skulda tvo. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
SVEITARSTJÓRNIR Bæjarráð
Árborgar vill spyrja kjósendur
í skoðanakönnun um möguleika
á sameiningu sveitarfélaga. „Ef
kjósendur vilja skoða slíkan
möguleika verði gefnir þeir
möguleikar að merkja við Árnes-
sýslu sem eitt sveitarfélag eða
sameinast einu eða fleiri sveitar-
félögum í Árnessýslu.“ Í Hvera-
gerði stendur einnig til að gera
svipaða könnun samfara bæjar-
stjórnarkosningum. - gar
Skoðanakönnun í Árborg:
Spurt um vilja
til sameiningar
FJÁRMÁL Sigurður Ingi Jóhanns-
son, sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðherra, ætlar að beita sér
fyrir því að rekstrargrundvöll-
ur Hafrannsóknastofnunar verði
styrktur, enda verður ekki lengra
gengið í niðurskurði fjárframlaga
til stofnunarinnar. Með því vill
hann tryggja að mögulegt verði
að sinna grunnrannsóknum og að
það endurspeglist í fjárframlögum
næstu ára.
Þetta kom fram í máli ráðherra
í sérstakri umræðu á Alþingi á
fimmtudag um stöðu hafrann-
sókna. „Það verður að segjast eins
og er að á föstu verðlagi ársins
2014 þá féllu fjárveitingar síðustu
fimm ára frá ríkinu til Hafrann-
sóknastofnunar um 700 milljónir.
Þetta er orðin nærri 30% lækkun á
fjárveitingum á föstu verðlagi frá
árinu 2007. Það segir sig sjálft að
það þarf að grípa þar inn í,“ sagði
Sigurður.
Málshefjandi var Steingrímur
J. Sigfússon, þingmaður Vinstri
grænna. Hann setti stórt spurn-
ingarmerki við þá staðreynd að
Hafrannsóknastofnun væri í
þeirri stöðu að fækka úthaldsdög-
um rannsóknaskipa sinna úr 340
niður fyrir 200 – og leggja öðru
þeirra í sumar vegna fjársvelt-
is, sérstaklega í ljósi mikilvægis
þessara rannsókna fyrir íslenskt
samfélag. Þvert gegn þróun mála
telur Steingrímur að efla þurfi
hafrannsóknir í ljósi breytinga á
hitastigi sjávar, á göngumynstri
fiskstofna og vegna súrnunar
hafsins og afleiðinga hennar.
Eins og Fréttablaðið fjallaði um
í vikunni þá hafa útgjöld til haf-
rannsókna dregist saman þrátt
fyrir að veiðigjöld á útgerðina hafi
hækkað verulega á síðustu árum,
en eitt af grundvallarmarkmiðum
stjórnvalda við álagningu veiði-
gjalda var frá upphafi að fjár-
magna þjónustu við sjávarútveg-
inn – ekki síst hafrannsóknir.
Á þessu hnykkti Össur Skarp-
héðinsson, þingmaður Samfylk-
ingarinnar, sérstaklega í umræð-
unum, sem og Steingrímur.
„Vígstaða stjórnvalda er því ekki
sterk hvað það varðar að draga svo
mjög úr fjárveitingum til mála-
flokksins að ekki sé hægt að halda
uppi lágmarksrannsóknum,“ sagði
Steingrímur.
svavar@frettabladid.is
Ráðherra segir ótækt
að Hafró sé í fjársvelti
Sjávarútvegsráðherra ætlar að beita sér fyrir auknum fjárveitingum til Hafrann-
sóknastofnunar, enda verði ekki lengra gengið í niðurskurði. Steingrímur J. Sigfús-
son setur stórt spurningarmerki við stöðu Hafró í ljósi mikilvægis stofnunarinnar.
Á ÚTSTÍMI Ein grundvallarforsendan fyrir gjaldtöku af útgerðinni– kostun hafrannsókna– virðist gleymd. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Dreglar og mottur
á frábæru verði!
Margar
stærðir
og gerðir
Breidd: 1 metri
Verð pr. lengdarmeter
Ódýrar mottur
40x60 cm frá kr.
PVC mottur 50x80 cm1.490
Breidd: 66 cm
erVerð pr. lengdarmet
66x120 cm kr 2.790
100x150 cm kr 4.990
Kletthálsi 7, Reykjavík
Fuglavík 18, Reykjanesbæ
Nýlegir Mitsubishi Pajero á
rekstrarleigu til fyrirtækja
Laugavegi 174 | Sími 590 5040 - Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga kl. 12-16
HEKLA býður nú fyrirtækjum nýlegar Mitsubishi Pajero bifreiðar í rekstrarleigu.
Í rekstrarleigu fá fyrirtæki nýlegar bifreiðar til umráða í 1 ár gegn föstu mánaðar-
gjaldi. Leigutaki losnar við alla fjárbindingu og endursöluáhættu. Greitt er fast
mánaðarlegt leigugjald og bifreiðinni einfaldlega skilað í lok leigutímans.
Dæmi:
Pajero 3.2 Instyle
Árgerð 2012, dísil
Ekinn 38.000 km, sjálfskiptur
Mitsubishi Pajero er knúinn 3,2 l dísilvél sem skilar
200 hestöflum. Meðal búnaðar bifreiðanna eru
leðurinnrétting, rafdrifin framsæti, aukasæti (7
manna), bakkmyndavél, xenon ljós, ný heilsársdekk
o.fl. (miðað við Instyle útfærslu).
Mánaðarlegt leigugjald:
136.041 kr. m/vsk
Haf-
rannsókn-
irnar eru
einhver
mikilvægasta
undirstöðu-
starfsemin
sem fyrirfinnst í þessu
landi. Ég hélt að það væri
engin deila um það. Þetta
kemur því næst að reka
björgunarþyrlurnar.
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður VG