Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 40
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 40
Hagnýtt App vikunnar er að þessu
sinni ákaflega hagnýtt íslenskt smá-
forrit og ber það nafnið Já.is-appið,
en það fór í loftið fyrir skömmu.
Þetta er í fyrsta skipti sem upp-
lýsingar af Já.is eru gefnar út á
app-formi.
Auðvelt Allir þekkja það að vera
í vandræðum með að leita að
símanúmeri og þurfa að bíða eftir
því í langan tíma að já.is-síðan í
símanum hlaði sig, hvað þá að
bíða eftir því að ná sambandi við
já.is símleiðis þegar maður þarf að
nálgast símanúmer í snatri. Já.is
appið leysir mörg vandamál í þeim
efnum.
Þriðjungur þeirra sem heimsækja
Já.is gerir það í gegnum spjaldtölvur
eða snjallsíma og mun appið bæta
aðgengi þeirra notenda að upp-
lýsingum vefjarins til muna.
Þægindi Hönnun og framsetning
upplýsinga í appinu er mikil bylting
frá því sem Íslendingar þekkja í
númeraleit. Til að mynda tekur
aðeins 5-10 sekúndur að opna
appið og fá þær upplýsingar sem
óskað er eftir í samanburði við 30-
50 sekúndur sé farið í gegnum Já.is
í vafra símtækis.
Hentugt Ókeypis verður að fletta
upp í appinu líkt og á vefnum Já.is.
Ásamt því að geta fundið upplýs-
ingar um símanúmer er einnig hægt
að hringja, senda sms-skilaboð eða
tölvupóst, skoða staðsetningu á
korti, fá vegvísun, finna afgreiðslu-
tíma, samfélagsmiðla og finna
umsagnir um fyrirtæki í gegnum
appið.
Ókeypis Appið er frítt og virkar
fyrir Android stýrikerfið (2.3.3 og
nýrri) og Apple stýrikerfi, iPhone og
iPad (iOS 6 eða nýrri).
Já.is tekur skýrt fram að Já.is-
appið kemur ekki í staðin fyrir Já
Núna appið sem veitir þér upp-
lýsingar um þann sem er að hringja
áður en símtali er svarað.
APP VIKUNNAR JÁ.IS
Heimasíða barnafatatískutímaritsins
La petite Magazine er einstaklega
skemmtileg og veitir góða innsýn í
heim tískunnar fyrir yngri kynslóðina.
Á síðunni er að fi nna blaðið í vefút-
gáfu og blogg sem ljúft er að fylgjast
með. Myndirnar eru hver annarri fe-
gurri. Þetta er síðan fyrir mæður sem
hafa áhuga á tísku. Skoðið hugmyndir
að fl ottum barnaherbergjum og ýmiss
konar heimasmíði og föndri. La petite
Magazine er einnig að fi nna á Insta-
gram og Facebook.
FYLGSTU
MEÐ...
Barnatiskusíðunni
lapetitemag.com
1 Hvað halda margir um þig sem er alls ekki rétt? Að ég sé miklu eldri. Ég er þrjátíu en
sumir halda að ég sé 42 ára.
2 Hvað kæmi fólki sem kynntist þér mest á óvart? Mjög líklega hvað ég er laginn
rafsukkari. Ég átti að fara í rafvirkjun frekar
en að verða viðskiptafræðingur.
3 Hvað kemur út á þér tárunum? Gleðiefni, oftast tengd bata, sögulegum sáttum eða
einhvers konar upprisu.
4 Hvað gerir þig pirraðan? Stundum allt, stundum næstum ekkert. Ég er raketta.
Snöggur upp en sneggri niður.
5 Hvað er fyndnast í heimi? Bresku Office-þættirnir hafa ekki enn verið toppaðir.
6 Er líf á öðrum hnöttum? Ég treysti mér allavega ekki til að útiloka það.
7 Hvert er fallegasta hljóð sem þú hefur heyrt? Ok, væmið, en það er sennilega
hjalið í drengjunum mínum nýfæddum.
8 Hvað gerirðu þegar allir aðrir eru sofn-aðir? Fer í FIFA 14.
9 Hvaða frægu persónu ertu skotinn í? Oliviu Pope í sjónvarpsþáttunum Scandal.
10 Ef þú mættir taka eina bók, eina plötu og eina bíómynd með þér á eyðieyjuna, hvað
yrði fyrir valinu? Ég myndi taka Gamlingjann,
því ég á eftir að lesa hana, platan (geisladisk-
urinn) yrði Sumarliði, Hippinn og allir hinir,
sem er safnplata með Bjartmari. Síðan myndi
ég horfa daglega á Jón Odd og Jón Bjarna.
11 Hver er fyrsta minningin þín? Ég stand-andi í stofuglugganum heima í Kamba-
hrauni 44. Amma Hulda heitin er að renna úr
hlaði á litlu Súkkunni (Suzuki) sinni. Ég horfi
á hana keyra í burtu og segi: „Haltu kjafti,
amma.“
12 Hvað verðurðu að gera eftir fimm ár? Ég held
ég verði að gera svipaða hluti.
Tengda fjölmiðlum og skemmti-
bransa. Ég er að gera það sem
mér finnst skemmtilegast.
13 Pálmi Gunnars eða Björn Jörundur? Pálmi, að sjálfsögðu.
Björn er dásamlegur en Pálmi er
bara samanburður sem enginn myndi
standast.
14 Hver var æskuhetjan þín? Maradona, þangað til hann fór að
grenja þegar hann tapaði í úrslitum
á HM 1990. Það fannst sjö ára
Sólmundi ótækt. Þá tók Bruce
Lee við keflinu.
15 Er ást í tunglinu?
Þegar það
er fólk þar,
annars ekki.
YFIRHEYRSLAN SÓLMUNDUR HÓLM, SKEMMTIKRAFTUR OG DAGSKRÁRGERÐARMAÐUR
Snöggur upp en sneggri niður
KÁLFASÍÐ PILS ERU ÞAÐ SEM KOMA SKAL Í SUMAR
ROKSANDA ILINCIC CHRISTIAN DIOR BOTTEGA VENETA MARNI DELPOZO
➜ Skemmtikraftur í útvarpið
Sólmundur Hólm hefur getið sér gott orð sem
skemmtikraftur og eftirherma. Nýlega varð
hann hluti af tvíeykinu Andra Frey og
Gunnu Dís í útvarpsþættinum Virkir
morgnar á Rás 2. Sólmundi, sem gjarna
er kallaður Sóli, er margt til lista lagt.
Meðal annars hermir hann vel eftir
söngvurunum Pálma Gunnarssyni
og Gylfa Ægissyni en hann skrifaðu
einmitt ævisögu þess síðarnefnda
sem kom út árið 2009.
Pósthólf 8409 128 Reykjavík www.if i.is
IÐNFRÆÐINGAFÉLAG
ÍSLANDS
Iðnfræðingafélags Íslands
Verður haldinn þann 30. apríl næstkomandi,
kl. 20.00 í Verkfræðingahúsinu að Engjateigi 9.
Aðalfundur