Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 44

Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 44
4 – Margt smátt ... „Dagurinn þegar vinur minn fékk mig með sér til að biðja um hjálp er versti dagur sem ég hef upplifað en um leið sá besti. Mér leið bölvanlega þar sem mér fannst ég skríða eftir hjálp,“ segir Ester Ellen Nelson sem hefur samþykkt að deila sögu sinni með okkur þrátt fyrir að berjast við eigin fordóma. „Já ég vil segja sögu mína vegna þess að við eigum að hætta að skammast okkur fyrir að vera efnalítil. Það geta allir lent í aðstæðum sem þeir ráða ekki við og þá er svo svakalega mikilvægt að eiga einhvern að sem réttir út hjálparhönd. Þessi einhver þarf ekki endilega að vera skyldmenni eða vinur, það getur allt eins verið einhver ókunnugur,“ segir hún. Ekki aftur snúið Ester Ellen, kölluð Ellen, er fædd árið 1973 og uppalin í Montanafylki í Bandaríkjunum. Móðir hennar er íslensk en faðir bandarískur. „Já mamma er frá Sandgerði. Hún kynntist pabba þegar hann var hér í hernum og flutti með honum út. Við komum samt alltaf til Íslands í heimsókn til ömmu á sumrin og mér fannst allt æðislegt hér. Náttúran svo falleg og tungumálið svo flott,“ segir hún og afsakar um leið íslenskukunnáttu sína [innskot blaðamanns: sem er annars bara prýðis- góð]. „Mig dreymdi um að eiga heima hérna og ég stefndi alltaf að því að flytja hingað aftur.“ Ellen lærði grafíska hönnun í háskóla í Bandaríkjunum og vann með skólanum eins og týpískum Íslendingi sæmir. Hún gifti sig og eignaðist tvo syni en þau hjónin skildu. „Mér hefur alltaf gengið vel í skóla og þegar mér bauðst styrkur til að læra íslensku var ég mjög spennt fyrir því. Ég hélt að það yrði lítið mál að koma hingað með strákana mína. Þegar kreppan skall á var ég búin að taka ákvörðun um að upplifa þetta ævintýri, nýbúin að selja allt mitt og var bara á leiðinni hingað. Ég hugsaði með mér að ég myndi nú alveg ráða við aðstæður en þetta varð erfiðara en ég átti von á.“ Ellen kom til Íslands árið 2OO9 og settist að í Reykjanesbæ til að búa nálægt ömmu sinni sem þar býr og er orðin sjóndöpur. Hún byrjaði í BA-námi í íslensku sem annað mál við Háskóla Íslands en talaði lítið fyrsta árið. „Ég vildi ekki tala eins og smábarn,“ segir hún og hlær. „Svo kynntist ég íslenskum manni sem ég fór að búa með og tók þá vinnu sem mér bauðst því styrkurinn dugði skammt. En það er mikið atvinnu- leysi í Reykjanesbæ svo það var ekki auðvelt að fá eitt - hvað að gera þannig að það var nú svolítið basl á mér.“ Spírall niður á við Sumarið 2O1O fór yngri sonur Ellenar í frí til pabba síns í Bandaríkjunum. Þegar líða tók á sumarið fékk Ellen skilaboð frá barnsföður sínum um að hann ætlaði ekki að senda barnið aftur til Íslands. Þá hófst mjög erfitt tímabil í lífi Ellenar sem þó var svo heppin að fá aðstoð bandarísks lögfræðings sem tók mál hennar að sér án endurgjalds. „Ef ég hefði þurft að borga fyrir starf lögfræðingsins hefði það kostað mig um fimmtán milljónir króna. Ég hefði aldrei haft efni á því og því ekki fengið son minn til baka. Ég er óendanlega heppin og þakklát þessum góða manni.“ Ellen hefur haft forræði yfir sonum sínum frá því þau hjónin skildu. Á grundvelli Haag-samningsins sem tekur meðal annars á ólögmætu brottnámi barns vann lögfræðingur hennar mál gegn fyrrverandi eiginmanni hennar fyrir alríkisdómstóli í Bandaríkjunum. „En málaferlin voru löng og ströng og næsta ár var svo erfitt að það er ólýsanlegt. Ég þurfti að hætta í háskólanum og gat ekki sinnt fastri vinnu þar sem ég þurfti að fara út reglulega til að vera við réttarhöldin. Það tók tólf mánuði að fá son minn aftur til Íslands en þá voru fjármálin í rúst. Í ofanálag komst ég að því að ég gekk með barn en sambandið við sambýlismanninn íslenska gekk ekki upp og við skildum.“ Tíminn sem í hönd fór var mjög erfiður. Ellen var hætt í háskólanum, vann lítið og var kvíðin og döpur. „Ég reyndi að halda í geðheilsuna en ég veit ekki hvort það tókst,“ segir hún og hlær. „Ég fór út að hlaupa á morgnana og reyndi hvað ég gat að gera eitthvað af viti en það var allt á niðurleið. Ég var í miklum peninga vandræðum og að lokum gat ég ekki meira. Ég fór mjög langt niður andlega og mig langaði helst að vera uppi í rúmi með sængina upp fyrir haus þótt ég hafi nú ekki gert það.“ Það er augljóst að Ellen finnst erfitt að segja sögu sína. Hún beitir húmornum óspart en hún er alvarleg þegar hún heldur áfram: „Mér finnst mjög erfitt að tala um þetta. Ég skammast mín þótt ég viti að ég eigi ekki að gera það. Mann langar ekkert að vera í þessum aðstæðum en þannig er lífið stundum bara.“ Ellen útskýrir að hún hafi starfað sem grafískur hönnuður í Bandaríkjunum en líka sem ráðgjafi fyrir bágstatt fólk. „Ég man eftir að hafa hugsað um aðstæður þessa fólks og ég reyndi virkilega að setja mig í spor þess. Núna get ég hins vegar sagt að ég viti raunverulega hvernig það er að upplifa fátækt. Ég hef svo sannarlega lært að vera auðmjúk.“ „Ekki gefast upp!“ Rétt fyrir jól árið 2O11 var svo komið að Ellen gat ekki lengur rekið bíl, hún var á hrakhólum með húsnæði og átti varla fyrir mat fyrir fjölskylduna. „Góður vinur minn kom þá til mín og sagði að ég yrði að passa upp á mig og hugsa um börnin mín. „Ekki gefast upp, komdu með mér!“ sagði hann við mig og það var akkúrat það sem ég þurfti. Hann vildi að ég færi með honum að hitta aðra vinkonu hans sem vann í kirkjunni í Reykjanesbæ. Ég vissi ekki að þar væri aðstoð að fá og mig langaði heldur ekki að biðja um hjálp, ég vildi ekki þiggja ölmusu. Dagurinn þegar ég ákvað að fara með þessum vini mínum og leita mér aðstoðar er erfiðast dagur lífs míns en um leið sá besti,“ segir Ellen Ester Ellen Nelson „Erfiðustu skref sem ég hef á ævinni stigið“ „Við þurfum öll að eiga einhvern að sem segir: Heyrðu, ekki gefast upp! Við getum líka öll stoppað þegar við sjáum bíl við vegkantinn til að athuga hvort bílstjórann vanti aðstoð, hjálpin þarf ekki að vera stór.“ Ester Ellen Nelson segir erfitt að sigrast á eigin fordómum en að það eigi enginn að þurfa að skammast sín fyrir að vera efnalítill. Hún vill burt með ölmusuhugsun, það geti allir misst fótanna.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.