Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 48
KYNNING − AUGLÝSINGPáskar LAUGARDAGUR 12. APRÍL 20142
Þegar ég var lítil var aðalspennan á páskadagsmorgun að fara af stað og leita að páskaeggjunum.
Ég man eftir einu skipti þegar ég fann
eggið á fyrstu mínútunum og þótt-
ist ekki hafa séð það, því ég var búin
að leita svo stutt og vildi ekki þurfa
að bíða eftir öllum fjórum systkinum
mínum meðan þau leituðu að sínum,“
segir Tinna Rós en páskaeggjaleitin er
í hennar huga hápunktur páskadags.
Tinna Rós er nú búsett í Genf þar
sem hún starfar fyrir alþjóðastofn-
un sem nefnist Y‘s Men International
og er samstarfsaðili Heimssambands
YMCA (KFUM). Hún hefur í fjölmörg
ár starfað hjá KFUM og KFUK á Ís-
landi. Sumarbúðareynslan og leið-
togaþjálfun samtakanna jók á hæfni
hennar og hugmyndaflug til að finna
upp ratleiki en þá hefur hún ófáa búið
til um ævina.
„Á mínu heimili voru leikirnir hafð-
ir einfaldir. Pabbi og mamma földu
eggin og við börnin leituðum. Leitin
gat tekið frá nokkrum mínútum upp
í meira en klukkutíma, í það minnsta
í minningunni,“ rifjar Tinna Rós upp.
Systkinin fengu svo að fela egg foreldr-
anna sem vakti mikla kátínu.
Mismunandi flækjustig
Ratleikir geta verið af ýmsum toga
og gaman að gera þá eilítið f lókna þó
vissulega þurfi að meta aðstæður og
aldur hverju sinni. „Þegar ratleikirn-
ir eru útbúnir er mikilvægt að taka
tillit til aldurs barnsins og meta færni
þess og úthald. Einnig er mikilvægt
að stjórnendur leiksins muni hvar öll
eggin eru falin, sem getur reynst erfitt
þegar þau eru mjög mörg,“ segir Tinna
Rós kímin og þekkir það greinilega af
eigin raun. „Ratleikur þar sem börn
eru leidd áfram af miðum með vís-
bendingum eru alltaf klassískir. Þá er
skemmtilegt að hafa vísbendingarn-
ar í gátuformi á borð við „næstu vís-
bendingu er mjög kalt, en henni er
alveg sama því hún er að gæða sér á
íspinna“. Þeir sem eru mjög metnað-
arfullir geta svo haft gáturnar þyngri,“
lýsir Tinna Rós.
Hún segir um að gera að nýta sér
áhugasvið barna og það sem er í upp-
áhaldi á hverjum tíma. „Til dæmis
væri hægt að hafa Harry Potter-, fót-
bolta- eða Biblíuþema fyrir þá sem
vilja tengja leikinn við hátíðina sjálfa
og ástæðu hennar.“
Þrautalausnir
„Önnur hugmynd að ratleik er að búa
til verkefni eða þraut sem þarf að leysa
til að fá næstu vísbendingu. Til dæmis
mætti kaupa lítið púsl, fela bitana og
gefa börnunum lista með vísbending-
um um hvar púslin er að finna,“ segir
Tinna Rós og bendir á að hugmyndin
með púslið henti einnig börnum sem,
til að mynda, eru rúmföst vegna
veikinda. „Þá er hægt að
vera með spurninga-
keppni þar sem eitt
púsluspil fæst fyrir
hvert rétt svar og
þegar myndin er
heil er endastöð-
inni náð og páska-
eggið leyst út.“
Utan dyra
Hressustu fjölskyld-
urnar geta svo fært
leikinn út fyrir hússins
dyr. „Til dæmis mætti skipta
fjölskyldunni upp í tvö teymi og hafa
ratleik í nærumhverfinu. Gaman væri
að vera með góða blöndu af líkamleg-
um þrautum á borð og hugarþraut-
um,“ segir Tinna Rós og telur best að
fullorðinn aðili fylgi báðum liðum
og gangi úr skugga um að öllum
þrautum sé lokið.
„Auðvitað er skemmti-
legast þegar fullorðna fólk-
ið tekur þátt með börnun-
um,“ segir hún en bend-
ir fólki á að hafa í huga
að láta leikinn frekar snú-
ast um skemmtun en sam-
keppni.
Ratleikur á páskadagsmorgni
Í stað þess að hefja páskadag á því að gúffa í sig páskaeggjasúkkulaði í svefnrofunum gæti verið gaman að skipuleggja ratleik
í kringum leitina að egginu. Tinna Rós Steinsdóttir hefur skipulagt og tekið þátt í ófáum páskaeggjaratleikjum.
Hressustu fjölskyldurnar geta fært leikinn út fyrir hússins dyr.
NORDICPHOTOS/GETTY
Í Mosfellsbæ eru óteljandi mögu-
leikar til útivistar og hreyfing-
ar sem er tilvalið að nýta um
páskana. Þar er hægt að fara í
sund, golf, göngur, hlaupa- og
hjólaferðir í fallegu umhverfi.
„Við erum með þróunarverk-
efni í gangi sem ber yfirskriftina
Heilsueflandi samfélag en for-
senda þess er að allir íbúar hafi
tækifæri, upplýsingar og aðgengi
til að velja lífsstíl sem leiðir til
heilbrigðis á líkama og sál. Verk-
efninu, sem er unnið með heilsu-
klasanum Heilsuvin og Embætti
landlæknis, hefur verið skipt í
fjóra þætti og er unnið með hvern
þátt í eitt ár í eftirfarandi röð; Nær-
ing-mataræði, Hreyfing-útivist,
Líðan-geðrækt, Lífsgæði-forvarnir
og fleira,“ segir Aldís Stefánsdóttir,
forstöðumaður þjónustu- og upp-
lýsingamála.
Mosfellsbær er, fyrst sveitar-
félaga á Íslandi, heilsuef landi
samfélag og tekur forystuna í
þessu verkefni. Markmiðið er
að þróa samfélagslegan ramma
utan um markvissa og heildræna
heilsueflingu, en verkefninu er
ætlað að ná til allra aldurshópa í
samfélaginu meðal annars í gegn-
um heilsuef landi leik-, grunn-
og framhaldsskóla, vinnustaði
og starf eldri borgara og stuðla
þannig að góðri heilsu, vellíðan
og auknum lífsgæðum.
Verkefnið nær yf ir helstu
áhersluþætti landlæknis og miðar
að því að setja heilsuef lingu í
forgrunn í allri þjónustu sveitar-
félagsins. Sambærileg verkefni
eru þekkt erlendis en er nú í fyrsta
skipti tekið upp hér á landi. Liður í
verkefninu er sérstakur heilsudag-
ur í bænum 7. maí.
Mosfellsbær er
heilsueflandi samfélag
Útivistarmöguleikarnir í Mosfellsbæ eru óteljandi og um að gera að nýta
svæðið til útivistar og hreyfingar um páskana.
Fjölmargar gönguleiðir er að finna í Mosfellsbæ.
Sundlaug Mosfellsbæjar er sannkölluð ævintýraveröld.
Útgefandi: 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, s. 512 5000Umsjónarmenn auglýsinga: Bryndís
Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512-5434 Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal.
ÓLÍKAR MATARHEFÐIR
Íslenska lambakjötið hefur verið vinsælt á
borðum landsmanna yfir páskana undanfarna
áratugi. Aðrar þjóðir eiga sína matarsiði í
tengslum við páskahátíðina og kennir þar
ýmissa grasa.
Síldin er órjúfanlegur hluti páskahátíðarinn-
ar í Svíþjóð en hún er að mestu leyti veidd á
vorin þar í landi. Hún er verkuð á ýmsa ólíka
vegu og oft borin fram með rúgbrauði, sýrðum
rjóma og kartöflum. Kaldur snafs fylgir líka oft
með.
Í Rússlandi er hefð fyrir því að bera á borð Paskha sem er pýramídalaga
eftirréttur úr rjómaosti, kotasælu og þurrkuðum ávöxtum. Rétturinn er oft
skreyttur bókstöfunum XB sem vísar í upprisu Krists.
Íbúar Brasilíu útbúa gjarnan sæta millibitann Paçoca de Amendoim um
páskana sem er búinn er til úr krömdum hnetum, sykri og hveiti.
Capirotada er kryddaður brauðbúðingur sem er á boðstólum víða í Mexíkó
um hverja páska. Búðingurinn inniheldur meðal annars rúsínur, kanil,
negulnagla og ost.
Skírdagur gengur undir nafninu „græni fimmtudagur“ í Þýskalandi. Þá
reyna landsmenn að borða sem mest af mat sem er grænn á litinn eins og
nafn dagsins gefur til kynna. Meðal vinsælla rétta þann daginn er súpa úr
garðakerfli.
Panettone-kakan er á boðstólum bæði um jól og páska á Ítalíu. Um páskana
er kakan bökuð í laginu eins og dúfa sem á að tákna frið. Yfir hana strá
heimamenn möndlum og sykri.
Gatið mjórri endann á egginu fyrst. Notið
títuprjón eða nál. Sniðugt er að líma yfir
eggið með málaralímbandi, og stinga
gatið í gegnum það. Þá brotnar eggið
síður. Stækkið gatið síðan með stærri nál,
tannstöngli eða prjóni.
Gatið sem innihaldið á að fara út um þarf
að vera tvisvar sinnum stærra en hitt.
Hrærðu upp í innihaldinu með nál eða bréfa-
klemmu. Þá verður auðveldara að koma því út.
Blástu svo í minna gatið. Einnig er hægt að blása í gegnum sogrör eða
nota sprautu. Helltu vatni yfir minna gatið til að hreinsa restina innan
úr egginu. Þurrkaðu það svo í ofni við 150 gráður í tíu mínútur eða láttu
það hanga svo stærra gatið vísi niður og þorna í 2-3 daga.
Skreytið að vild. wikihow.com
Blásið úr eggi
NORDIC PHOTOS/
GETTY