Fréttablaðið - 12.04.2014, Page 93
Margt smátt ... – 9
„Hér er sko ekkert verið að slugsa. Ég hef bara aldrei
séð aðra eins byssubranda og þessar konur,“ segir
Kristbjörg Hrund Sigtryggsdóttir um samstarfskonur
sínar en allar starfa þær sem sjálfboðaliðar í fata-
úthlutun Hjálparstarfs kirkjunnar. Kristbjörg hefur
starfað sem sjálfboðaliði Hjálparstarfsins frá því í
september 2O13. Hún segir vinnusemi sjálfboðaliðana
skila sér: „Hér er allt í góðu skipulagi, fötin eru hrein
og fín, þeim er raðað í hillur og í rekka eftir stærð og
vandað er til allra verka.“
Kristbjörg sem er viðskiptafræðingur að mennt fór tíma-
bundið af vinnumarkaði vegna veikinda í fjölskyldunni.
„Mér finnst hins vegar gott að koma hingað einu sinni til
tvisvar í viku og hitta skemmtilegt fólk. Starfið er líka mjög
gefandi. Hingað eru allir hjartanlega velkomnir og ég fæ
mikð út úr því að gera eitthvað sem mér finnst skipta miklu
máli. Mér finnst gaman að veita þeim sem ég tek á móti
toppþjónustu, svona eins og veitt er í hátískuhúsi í París,“
segir hún glettin og bætir við: „Ég hef bara gaman af lífinu
og gaman af fólki. Það er skemmtilegt að hitta það hér.“
„Eins og í hátískuhúsi í París“
Sjálfboðaliðar eru velkomnir
Sjálfboðaliðar aðstoða þá sem koma til að fá
notuð föt hjá Hjálparstarfinu á lager okkar að
Háaleitisbraut 66 (gengið inn vestanmegin) á
þriðjudögum milli klukkan 1O og 12. Auk þess að
sjá um fataúthlutun hittast sjálfboðaliðarnir og
flokka fötin, brjóta saman og raða í hillur. Sjálf-
boðaliðar sjá einnig um skráningu gagna og frá
október og fram yfir áramót innheimta þeir söfnunar-
bauka, raða þeim í númeraröð og ganga frá.
Viltu gerast sjálfboðaliði?
Þú ert hjartanlega velkomin/n. Atli Geir Hafliðason
tekur á móti þér á skrifstofunni en þú getur líka
sent honum tölvupóst á netfangið atli@help.is.
Við tökum á móti notuðum fatnaði á skrifstofu
Hjálparstarfs kirkjunnar, Háaleitisbraut 66,
kjallara, alla virka daga frá klukkan 8–16.
Ótvíræðir
r rðir
Yokohama
#1 Minnsta eldsneytiseyðslan
#1 esta ri ið rr m ve i
#1 Hljóðlátasta dekkið
TÜV SÜD í Þýskalandi framkvæmdi viðamikla rannsókn á eiginleikum eldsneytissparandi dekkja.
Þessi rannsókn staðfesti árangur Yokohama.
AKUREYRI
Draupnisgötu 5
462 3002
EGILSSTAÐIR
Þverklettum 1
471 2002
REYKJAVÍK
Skeifunni 5
581 3002
REYKJAVÍK
Skútuvogi 12
581 3022
og hafa betri loftmótstöðu en
sambærileg dekk, sem þýðir
að þ ú kemst lengra á l ítranum!
Í dekkin er notuð appelsínuolía
sem er umhver svænni en
hefðbundin olía og veldur því
að g úmmíið í d ekkinu h arðnar
síður við lækkandi hitastig og
viðh le dur ö ugu gripi.
Yokohama BluEarth
er hljóðlátasta dekkið
í sínum gæða okki en
mynstrið gefur ekkert
eftir varðandi veggrip.
www.dekkjahollin.is
/dekkjahollin
Kristbjörg Hrund Sigtryggsdóttir (fyrst frá vinstri í
aftari röð) í hressum hópi sjálfboðaliða í fataúthlutun.