Fréttablaðið - 12.04.2014, Side 104

Fréttablaðið - 12.04.2014, Side 104
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| TÍMAMÓT | 60TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@365.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ðurh 5, Rv 5 1 00 t n Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir Hinrik Valsson Þökkum innilega samúðarkveðjur og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra SIGURÐAR SÆBERG ÞORSTEINSSONAR Ársölum 1, Kópavogi, sem lést miðvikudaginn 19. mars. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heima- hlynningar líknardeildar Kópavogs og Hótels Sögu fyrir einstakan stuðning og hlýju. Hrafnhildur Jónsdóttir Þorsteinn Sæberg Gerður Sigurðardóttir Þorgeir Sæberg Hrafnhildur Grímsdóttir Margrét Sæberg Skúli Haukur Skúlason barnabörn og barnabarnabörn. Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Símar: 567 9110 & 893 8638 www.utfarir.is • runar@utfarir.is Alhliða útfararþjónusta Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson Þorbergur Þórðarson Ástkær sonur minn og bróðir, JÓN ERLINGSSON Miðstræti 6, Neskaupstað, sem lést á heimili sínu 7. apríl, verður jarðsunginn frá Norðfjarðarkirkju þriðjudaginn 15. apríl klukkan 14.00. Guðný Jónsdóttir Önundur Erlingsson Kær systir mín og frænka, STEINUNN M. STEPHENSEN lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 2. apríl sl. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju 16. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Guðrún Magnúsdóttir Stephensen Magnús Haraldsson Heiða Pálmadóttir Björn Haraldsson Sverrir Haraldsson Guðrún Guðbjörnsdóttir Bergþór Haraldsson María G. Jónsdóttir og fjölskyldur þeirra. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns, föður, tengdaföður og afa, LOFTS HILMARS LOFTSSONAR sem lést 14. mars sl. Guðbjörg Jónsdóttir Jón Borgar Loftsson Þórleif Hjartardóttir Loftur Steinar Loftsson Matthildur Brynjólfsdóttir Þórhildur Loftsdóttir og barnabörn. Kær móðir, tengdamóðir, amma og langamma, HULDA JÓNA HÁVARÐSDÓTTIR Kumbaravogi, áður til heimilis að Borgarhrauni 21, Hveragerði, lést fimmtudaginn 27. mars á Kumbaravogi. Útför hennar hefur farið fram í kyrrþey. Þökkum auðsýnda samúð við fráfall hennar. Sendum sérstakar þakkir til starfsfólks Kumbaravogs fyrir góða umönnun. Reynir Örn Eiríksson Hilmar D. Ólafsson Jóhanna Egilsdóttir Ólafur Ólafsson Guðmunda I. Júlíusdóttir Hlynur Ólafsson Sólborg Guðmundsdóttir ömmu- og langömmubörn. „Við viljum ýta við hópum sem annars mundu kannski ekki leiða hugann að skyndihjálp,“ segir Sólveig Ólafsdótt- ir, upplýsingafulltrúi Rauða kross- ins á Íslandi, um nýtt lag sem komið er út. „Þess var gætt sérstaklega að takturinn í laginu hentaði við endur- lífgun sem kallar á um það bil 100 hnoð á mínútu. Vonandi festist það í huga fólks,“ heldur hún áfram. Í myndbandi sem fylgir með lag- inu lendir hinn seinheppni Klaufi í hremmingum en á skjótum við- brögðum samferðamanna sinna líf sitt að launa. Útgáfan er liður í skyndihjálpar átaki sem Rauði kross- inn er með í tilefni 90 ára afmæl- is síns á þessu ári. Lagahöfundur er Snæbjörn Ragnarsson en textinn er eftir Sævar Sigurgeirsson. Tíu þekktir söngvarar og leikarar flytja lagið í sjálfboðavinnu, þau Gunnar Helgason, Saga Garðarsdóttir, Sig- ríður Eyrún Friðriksdóttir, Jóhann- es Haukur Jóhannesson, Felix Bergs- son, Agnes Björt Andradóttir, Ólafía Hrönn Jónsdóttir, Rúnar Freyr Gísla- son, Ragnhildur Gísladóttir og Vil- helm Anton Jónsson. Þórunn Lárusdóttir og Gunnhildur Sveinsdóttir höfðu umsjón með gerð myndbandsins, Erla María Árnadótt- ir myndskreytir gerði teikningarnar og Lára Garðarsdóttir gæðir teikn- ingarnar lífi. Sólveig segir skyndihjálpina eitt elsta og samfelldasta verkefni félags- ins í 90 ára sögu þess. Því hafi þótt við hæfi að fara í skyndihjálparher- ferð í tilefni afmælisins. „Okkur er mikið í mun að gera eitthvað sem kemur öllum til góða og við getum skilið eftir hjá þjóðinni,“ segir hún og heldur áfram. „Við byrjuðum með skyndihjálpar-app sem hefur náð mikilli útbreiðslu. 25.000 manns hafa þegar sótt sér það enda ætti það að vera staðalbúnaður í öllum snjall- símum og spjaldtölvum. Appið er gagnvirkt með fræðslu og skemmti- legum myndböndum og þar eru hag- nýtar leiðbeiningar um það hvernig á að haga sér mitt í aðstæðum þar sem maður þarf skjót og skýr svör. Skilin milli lífs og dauða geta verið svo stutt og fólk sem kann til verka á slysstað er svo mikilvægt.“ gun@frettabladid.is Hundrað hnoð á mínútu Sérstakt lag og myndband sem hjálpar fólki að fi nna rétta taktinn þegar beita þarf endur- lífgun er eitt af verkefnum íslenska Rauða krossins á nítugasta afmælisárinu. LYKILKONUR Sólveig á milli þeirra Þórunnar Lárusdóttur og Gunnhildar Sveinsdóttur sem höfðu umsjón með gerð nýja myndbandsins um hann Klaufa. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fimmtán manna hópur undir stjórn Víkings Kristjánssonar leikur syng- ur, dansar og spilar í Edinborgar- húsinu í kvöld og segir um leið sög- una af Jörundi hundadagakonungi í búningi eftir Jónas Árnason. Sagan hefur lifað með þjóðinni í meira en tvö hundruð ár því það var sumarið 1809 sem Jörundur var hér á land- inu bláa. Sveinbjörn Hjálmarsson, eða Simbi í Hafnarbúðinni, fer með hlutverk Jörundar og alls koma 35 manns að sýningunni. Önnur sýning verður annað kvöld, 13. apríl, og þriðja og fjórða sýning verða á miðvikudag og fimmtudag. Allar hefjast klukkan 20. - g un Sem kóngur ríkti hann Litli leikklúbburinn frumsýnir Þið munið hann Jörund eft ir Jónas Árnason í Edinborgarhúsinu í kvöld. GLAÐBEITTUR Sveinbjörn Hjálmarsson sem Jörundur hundadagakonungur. MYND/ÚR EINKASAFNI
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.