Fréttablaðið - 12.04.2014, Qupperneq 134
12. apríl 2014 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 90
MYNDAR HEIMSFRÆGA
FATAHÖNNUÐI
Silja Magg ljósmyndari, sem býr og
starfar í New York, opnaði í vikunni
sýningu á ljósmyndum sínum í Milk
Studios-galleríinu þar í borg í sam-
starfi við Simon Collins, deildarfor-
seta í Parsons School of Design, en
Silja útskrifaðist úr ljósmyndadeild
skólans árið 2011. Sýningin
samanstendur af þrjátíu
andlitsmyndum af
þekktustu hönnuðum
sem útskrifast hafa
úr skólanum, en þar
á meðal eru frægir
fatahönnuðir á
borð við Alexander
Wang, Önnu Sui og
Donnu Karan. - ósk
„Þú getur verið
athafnakona, móðir,
listamaður og femínisti
– hvað sem þú vilt vera
– og enn verið kynvera.“
SÖNGKONAN BEYONCÉ
UM TVÖFALT SIÐGÆÐI Í VIÐ-
TALI VIÐ TÍMARITIÐ OUT.
„Ég þekkti hana ekki neitt fyrir en var þó mikill
aðdáandi hennar, núnar er ég hins vegar orðinn
sérstaklega mikill aðdáandi hennar,“ segir gítar-
leikarinn Friðrik Karlsson en hann spilar með tón-
listarkonunni Kate Bush á 22 tónleikum í London í haust. Mikil aðsókn
er að tónleikunum, 110.000 miðar seldust á einungis fimmtán mínútum.
Friðrik, sem er nýfluttur heim eftir átján ára búsetu í Lundúnum,
segir það mikinn heiður að spila á svona tónleikum. „Umboðsmaðurinn
hennar hafði samband við mig og athugaði hvort ég væri laus á þessu
tímabili. Ég þekkti hljómsveitarstjórann vel því við höfum unnið tals-
vert saman í ýmsum söngleikjum. Svo kom að því að ég spurði umboðs-
manninn hennar með hverjum ég væri að fara spila og hann svaraði
Kate Bush. Klukkutíma eftir símtalið við umboðsmanninn hringdi Bush
í mig og spurði hvort ég væri til í verkefnið,“ útskýrir Friðrik og bætir
við: „Það ætlar að ganga eitthvað illa að flytja heim aftur,“ en aðalástæð-
an fyrir flutningunum heim er að dóttir Friðriks, María Von sem er 12
ára, vildi verða Íslendingur en hún er fædd og uppalin á Bretlandi.
Það eru engir aukvisar sem spila í hljómsveit Kate Bush en á meðal
þeirra eru trommuleikarinn Omar Hakim, sem trommaði meðal annars
vinsælasta lag síðasta árs, Get Lucky með Daft Punk, og David Rhodes
sem hefur í fjölda ára verið gítarleikari Peters Gabriel, ásamt fleiri
reynsluboltum. „Það var alveg smá stress í manni þegar ég
mætti í fyrstu æfingatörnina fyrir skömmu en þetta gekk
mjög vel og allur aðbúnaður var til fyrirmyndar,“ bætir
Friðrik við.
Friðrik er þó vanur að vinna með miklu fagfólki í tón-
listarheiminum, hann spilaði til að mynda inn á fjölda
platna þegar hann bjó í London, til dæmis með hljómlistar-
fólki á borð við Boyzone, Westlife, Ronan Keating
og Spice Girls, ásamt því að spila í söngleikjum og
í X Factor UK. „Það var alltaf nóg að gera þegar
ég bjó úti, ég kynntist góðu fólki og fékk fullt af
frábærum verkefnum.“ Friðrik segir það mikil-
vægt að komast í klíkur, því menn fái talsvert
af verkefnum ef menn eru vel tengdir.
Friðrik gekk fyrir skömmu á ný í hljómsveit-
ina Mezzoforte en hann er einn af upprunalegum
meðlimum sveitarinnar. „Það er frábært að vera
kominn á ný í Mezzoforte, við erum að spila tals-
vert á næstunni.“
Síðast en ekki síst hefur Friðrik í nægu að snúast
í slökunartónlistinni en hann hefur gefið út fimm-
tán plötur hér á landi og 40 í Bretlandi með slökun-
artónlist sem hefur farið sigurför um heiminn en
plöturnar hafa farið í dreifingu um allan heim.
Þú finnur stjörnuspána þína
í Spádómsegginu frá Góu.
PIP
P
PA
R
PAAA
R\
A
R\\TTBWBW
A
W
AA
•
SÍA
•
SÍA
•
S
•
1
4
0
5
0
5
0
55
9
5
9
5
9
7
9
7
9
77
Aðalfundur KEA
Einnig verður hægt að nálgast
upplýsingar á heimasíðunni
verður haldinn í Menningarhúsinu Hofi
miðvikudaginn 30. apríl kl. 20:00.
Á dagskrá fundarins eru
venjubundin aðalfundarstörf samkvæmt
samþykktum félagsins.
Tillögur sem óskað er ef tir að verði afgreiddar
á fundinum skulu berast stjórn skriflega
eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund.
Dagskrá og ársreikningur munu liggja frammi
á skrifstofu félagsins viku fyrir aðalfund.
www.kea.is
Friðrik var einn af stofnendum
Mezzoforte árið 1977 en
sveitin sló í gegn árið 1983 með
laginu Garden Party.
Friðrik flutti til London
árið 1996 og tók þátt í fjölda
verkefna þar ytra en þar ber
helst að nefna:
● X Factor í Bretlandi.
● Ýmsa söngleiki, til dæmis
Jesus Christ Superstar.
● Hljóðfæraleik á plötum með
hljómlistarfólki á borð við
Boyzone, Westlife, Ronan Keating,
Sheryl Crow, Robbie Williams, Il
Divo, Kelly Clarkson, Madonnu,
Spice Girls og Leonu Lewis,
ásamt mörgum fleirum.
FRIÐRIK ÚT UM ALLT
Kate Bush er margverðlaunuð tón-
listarkona og árið 1978 gaf hún út
smáskífulagið Wuthering Heights
og var jafnframt fyrsta konan til
að komast í fyrsta sæti breska
smáskífu listans með frumsamið lag.
Hún hefur átt 25 lög á toppi
breska smáskífulistans en þeirra
á meðal eru lögin Wuthering
Heights, The Man with the Child in
His Eyes, Babooshka, Running Up
that Hill, og Don‘t Give Up sem er
dúett með Peter Gabriel.
KATE BUSH
Spilar með Kate Bush
Gítarleikarinn Friðrik Karlsson, sem er nýfl uttur heim, kemur fram á 22 tónleikum
með Kate Bush í London. 110.000 miðar seldust á tónleikana á 15 mínútum.
Gunnar Leó
Pálsson
gunnarleo@frettabladid.is
Í NÓGU AÐ SNÚAST
Tónlistarmaðurinn Friðrik
Karlsson flutti nýlega til
Íslands aftur, eftir 18 ára
dvöld í London. Hann þarf
þó að hafa annan fótinn í
London á meðan hann spilar
með Kate Bush.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Í FYRSTA SÆTI Í APP
STORE Á ÍSLANDI
Fyrsta útgáfan af samskiptamiðlin-
um Blendin kom út í App Store og
Google Play í gær og fór vel af stað.
Fimm þúsund manns höfðu náð sér
í Blendin-appið á fyrstu klukkustund-
unum og það komst í fyrsta sæti í
App Store á Íslandi, sem verður að
teljast ansi gott þar sem
þetta er fyrsta afurð
Blendin-piltanna.
Davíð Örn Símonar-
son og félagar hans í
Blendin eru mjög sáttir
við byrjunina á
Blendin-ævin-
týrinu.
- glp
MAMMÚT Á FERÐALAGI
Hljómsveitin Mammút hefur lagt upp
í tónleikaferð um landið en sveitin
kom fram á Græna hattinum á Akur-
eyri í gærkvöldi.
Alexandra Baldursdóttir gítarleikari
sveitarinnar segir að um hringferð
um landið sé að ræða því eftir tón-
leikana á Akureyri verði allir Austfirð-
irnir þræddir áður en haldið er
heim til Reykjavíkur.
Sveitin kemur fram á
Eskifirði í kvöld og hafa
nokkrir rokkþyrstir Aust-
firðingar lýst því yfir að
þeir séu spenntir fyrir
komu bandsins í
bæinn.
- ssb